Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1985, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1985, Blaðsíða 8
Ingmar Bergman segir, að hin nýja mynd sín, „Fanny og Alexander", sé summan af ævistarfi sínu sem kvikmyndahöfund- ur. 64 ára gamall segir hann að meira en 50 myndum loknum, að þessi mynd verði Kórónan á sköpunar- verki Bergmans er brot úr ævisögu hans sjálfs og nú þegar þessu verðlaunaða stórverki er lokið nýtur Bergman ein- veru og kyrrðar í húsi sínu á Sauðey. sín síðasta. Hann vilji láta staðar numið núna, „þegar allt er í góðu gengi". Og víst er það, að maður- inn, sem hefur eignazt átta börn í fimm hjónaböndum og ástarsam- böndum, virðist hafa tekið upp rólegri lífshætti. Hann býr með Ingrid, sem hann hefur verið gift- ur í 12 ár, á einangraðri eyju, Sauðeyju, (Fárö), við Gotland. Lit- krítarteikningar barnabarna hans prýða veggi heimilisins og hann horfir á sjónvarpsþætti á borð við „Dallas". í grein í „New York Tim- es Magazine" ræðir Michiko Kak- utani, sem skrifar um menningar- leg efni í blaðið, um breytingarnar á lífi Ingimars Bergman og fjallar um þýðingu myndarinnar „Fanny og Alexander", sem hún segir að sé eins konar efnisyfirlit allra verka hans. SUMMAN AF Ævistarfi Sextíu og fjögurra ára gamall er Ingmar Bergman virðulegur á svip. En þó að grágræn augu hans geti allt í einu orðið köld og tor- tryggin, er oft barnsleg birta í svip hans og hann getur sagt Fanny og Alexander. Bergman hefur ekki farið dult með, að drengurinn Alexander sé byggður & endurminningum úr æsku höfundarins sjálfs. einkar alúðlega hluti. Þessa dag- ana virðist hann reyndar vera sér- staklega ánægður í hlutverki hins góðviljaða fjölskylduföður — bæði á vinnustað og heima á eynni. Hin nýja hugmyndaauðgi hans kemur fram í síðustu mynd hans, „Fanny og Alexander", — mynd, sem lýsir bæði þeim hættum, sem fjöl- skyldulífi eru búnar, sem og þeirri ánægju og gleði, sem það getur veitt. Myndin er „summan af ævi- starfi mínu sem kvikmyndahöf- undar," segir Ingmar Bergman. Hann fullyrðir, að þetta sé síðasta kvikmyndin, sem hann ætli að gera. „Ég hafði svo mikla ánægju af því að gera myndina „Fanny og Alexander" að mér fannst, að ég myndi aldrei öðlast þá tilfinningu aftur,“ segir hann. „Það væri dap- urlegt að vinna að annarri mynd, sem svo yrði drungaleg, þung og strembin með fullt af vandamál- um. Og ég hef séð marga af starfs- bræðrum mínum eldast æ meir og verða æ leiðinlegri, þangað til þeim skyndilega er hent út, og þeir geta ekki fengið fjármagn fyrir næstu mynd og verða að ganga á milli manna með hattinn í hend- inni. Það er nokkuð, sem ég vil ekki. Þá er betra að hætta, meðan allt er í góðu gengi." Kaflar Úr Sjálfsævisögu Hversu furðulegt sem það kanna að virðast, eru hinar marg- slungnu myndir Ingmars Berg- man á vissan hátt kaflar úr sjálfs- ævisögu, og „Fanny og Alexander" er í senn angurvær endurfundur við æsku stjórnandans sjálfs og endanlegt uppgjör að verki loknu. Öll hin gamalkunnu stef og við- fangsefni Ingmars Bergman koma þarna fyrir — auðmýking lista- mannsins, helvíti og himnaríki hjónabandsins, leitin að ást og tryggð — en að þessu sinni verður vart nýrrar hlýju, mildi og samúð- ar. Myndin „Fanny og Alexander" býr yfir andríki, sem minnir á seinni gamanleiki Shakespeares, því að Ingmar Bergman virðist vera í hæfilegri fjarlægð frá fortíð sinni og sætta sig við hana, þegar hann gerir upp reikningana. „Það er ef til vill ímyndun, en mér finnst, að ég sjái víðar og skilji meira," segir hann. „Það er eins og að ganga á fjall. Þeim mun hærra sem maður kemst, þeim mun þreyttari og móðari verður maður, en útsýnið verður víðáttumeira." Þessi mynd vísar á svo margan hátt til fyrri verka Ingmars Bergman, að í augum þeirra, sem fylgzt hafa með ferli kvikmynda- stjórans, verður hún sem eins kon- ar heildaryfirlit yfir verk hans. Og þó er hún einnig aðgengilegri, ein- faldari í sniðum og frásögn en margar fyrri myndir hans. 5o Kvikmyndir á 40 ÁRUM Eftir að Ingmar Bergman festi sig í sessi um miðjan sjötta ára- tuginn með „Sjöunda innsiglinu", „Villtum jarðarberjum" og „Sumarleikjum" hafa gagnrýn- endur litið á hann sem einn af fremstu kvikmyndastjórum heims, og hann hefur hlotið lof í samræmi við það. Á fjögurra ára- tuga starfsferli hefur hann gert um 50 kvikmyndir. Með því að flytja hin magnþrungnu og inn- hverfu verk Strindbergs frá leiksviðinu á kvikmyndatjaldið jók hann á alvöru þessarar grein- ar — „skemmtun" varð „list“ — eins og merkingarmunur væri orð- inn á bíómynd og kvikmynd, og hann sýndi einnig fram á, að þessi miðill gæti krufið heimspekileg vandamál og kannað sálarfylgsni manna. Bergman-hjónin búa fjarri hin- um þaulskipulögðu borgarhverf- um Svíþjóðar, langt frá hinum þægilegu, nútíma samgönguleið- um. Til að komast til Sauðeyjar, Fárön, verða menn fyrst að fljúga frá Stokkhólmi til Visby, hins forna höfuðstaðar Gotlands, þar sem eru margar minjar frá mið- öldum. Frá Visby verður síðan að aka klukkutíma leið um hina klettóttu eyju. Síðan þarf að fara með ferju yfir sundið milli Got- lands og Sauðeyjar og svo að aka þvert yfir eyna sjálfa, sem er mjög strjálbýl, framhjá hrörlegum bóndabýlum og fiskimannakofum um haga og skóglendi til húss kvikmyndastjórans, sem stendur eitt sér eins og viti úti við sjávar- strönd. Það er sami litur á húsinu og á steinunum á ströndinni, og það virðist næstum tilheyra landslag- inu. Það er grátt, hörkulegt og óaðlaðandi. En þegar inn er kom- ið, ljá veggfóður og þægileg sænsk nútímahúsgögn íbúðinni vina- legan og látlausan blæ, sem þó Jól bjá Ekdahl-fjölskyldunni. Fanny og Alexander var sýnd um jólin á Norðurl Fyrir myndina fékk Bergman Óskarsverðlaun fyrir sviðsetningu og búninga, am sú bezta með erlendu tali.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.