Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1981, Blaðsíða 9
Efri myndin: Menn ganga til vopna sinna fyrir konsertinn í Vín; glímuskjálfti að
sjálfsögðu, en allt rólegt á ytra boröinu. Neðri mynd: í Eisenstadt. Hljómsveitin leikur í
Haydn-salnum í Esterhazy-höllinni.
Ó þú dýrlega fortíð — mikill er sá arfur sem hér er til að gæta. Árni Elvar
teiknaði gosbrunninn framanvið listasafnið í Vín.
hann einnig 7. sinfóníu sína. Gröf
Mozarts í Zentralfriedhof er allt aö því
helgur staöur, þótt næsta fáir fylgdu
honum til grafar áriö 1791. Og í
Nussdorfer Strasse 54 er haldið til haga
því húsi, sem Schubert fæddist í og þar
er safn um hann.
En hver og einn verður aö fljúga eins
og hann er fiöraður og sjálfur fór ég í
einskonar pílagrímsför í annað hús og
haföi þaö lengi veriö ætlunin, nefnilega í
Kunsthistorische Museum aö sjá eina
einustu myndartítlu, sem ég vissi aö átti
aö vera niöurkomin þar. Hún er ein af
þeim sárafáu myndum, sem til eru eftir
hollenzka stórmeistarann Johannes
Vermeer frá Delft, en þykja hvarvetna
gimsteinar í söfnum. Þetta er raunar
stærsta mynd Vermeers: Málarinn og
módel hans heitir hún og sýnir bakhlut-
ann á málaranum sjálfum, þar sem hann
er aö byrja á mynd af ungri konu og situr
hún fyrir. Þessi mynd sýnir sömu stofuna
og flestar myndir Vermeers; Ijósiö kem-
ur inn frá vinstri; kort af heimsbyggðinni
á vegg, flísalagt gólf og Ijósakróna
hangir niður úr loftinu. Yfir öllu þessu
hvílir sú rósemi og sá þokki, sem erfitt er
aö útskýra fremur en hljómburöinn í
Musikvereinsaal. í mínum huga er þessi
mynd svo stór, aö hún gnæfir yfir
Hofburg og Schönbrunn og allan þann
dýrölega marmara, sem umlykur hana í
þessu safni. Framhald á bls. 10
Tveir aðrir úr hljómsveitinni eru hrein-
lega á skrá sem flóttamenn aö austan og
eiga þess engan kost aö heimsækja
ættingja og vini. Annar þeirra er Patrek-
ur Neubauer pákuleikari, sem búinn er
aö starfa á íslandi um 12 ára skeiö; hann
er frá Prag. Hinn er Dorfman bassaleik-
ari, Gyöingur frá Úkraínu, en kom til
íslands frá Bandaríkjunum.
Hús snillinganna —
og mynd efftir Vermeer
19. maí. Sólskin og blíða og bæirnir
allt í kring í Vínarskógi. Sumir héldu árla
inn í borgina og kíktu í búðir í
Mariahilferstrasse, því kannski er smá-
fólk heima, sem væntir sér einhvers.
Öörum er efst í huga aö gjöra pílagríms-
för í þau hús, sem kennd eru viö
stórsnillinga tónlistarinnar og hafa síðan
veriö vernduö, þótt sjálf dæju sum
þessara tónskálda án þess aö miklum
tíöindum þætti sæta.
Menn tala saman í hálfum hljóöum af
einskærri andakt í Domgasse 5, þar sem
Mozart flutti inn með Constanze Weber
og samdi m.a. Brúökaup Fígarós. í
Mölkerbastei númer 8 er minningarhús
um Beethoven, sem raunar bjó víöa um
borgina; ekki mjög lengi á hverjum staö,
því honum gekk misvel aö komast af viö
fólk. í þessu húsi samdi hann sína
einustu óperu, Fidelio, sem flutt var án
leiks í Háskólabíói í vetur og þar samdi
Mikið gull meðal hljómleikasala er Stephaniensaal í Graz, en hljómburðurinn þar samsvarar ekki fegurðinni. Myndin er tekin
andartaki áöur en hljómleikarnir hófust — hér er beöið eftir Páli.
-•.-ii
9