Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1978, Blaðsíða 13
MMY CARTER?
Eftir Lance Morrow
í staöinn fyrir brosiö breiöa, sem
þykir alveg nauösynlegt í Ameríku
og kjósendur stóöust ekki, sést nú
miklu oftar beizkjusvipur á andliti
forsetans. Vonbrigöin leyna sér
ekki. Bandaríkjamenn gera kröfur
til forsetans, sem hæpiö er aö
nokkur maöur geti mætt til lengdar.
Eins og oft hefur átt sér staö áöur,
hraðminnkar fylgi Carters.
algjöru lágmarki. Hvað árangur snertir á
venjulegu máli, þá stakk Carter upp á
mörgu, ef til vill of miklu, en kom nærri
eins litlu til Ieiðar og nokkur nýliði í
forsetastóli eftir Calvin Coolidge. Ef til
vill væri sanngjarnara að bera hann
saman við John Kennedy á fyrsta ári
hans. En þó að Kennedy væri ekki sérlega
framtakssamur, náði hann þó verulegum
árangri með persónutöfrum sínum.
Óvissan í kringum Carter getur orðið
afar hvimleið. Vinir hans hafa sagt, að
menn dái hann eftir 15 mínútur, hati
hann eftir sex mánuði og skilji hann eftir
10 ár. En því miður Carters vegna þá er
ekki víst, að Bandaríkjamenn hafi næga
þolinmæði til að vilja leysa gátuna.
Starfslið Hvíta hússins er stundum að
reyna að gefa í skyn, að Carter sé að
vinna að nýju, pólitísku samhengi til
handa bandarísku þjóðinni, allt, sem líti
út sem mótsagnir hjá honum, eigi trúlega
eftir að renna saman í eina heild eins og
hjá Hegel, og þá, þá munum við skilja,
hvað hann hafi verið að stefna að. En
menn efast um það.
Eftir því sem séð verður í dag, þá er
Carter enn í vafa um, hvort hann sé hinn
alþýðlegi hugsjónamaður, sem hélt út-
nefningarræðuna í Madison Square
Garden (hann sagði, að landinu hefði
verið stjórnað af „útvöldum stjórnmála-
mönnum hagfræðingum" og að skatta-
kerfið væri „smám gagnvart mannkyn-
imi“), eða hvort hann sé eins og hver
annar efnamaður frá smábæ í Georgíu.
Carter náði kjöri á tvenns konar
forsendum: hinni almennt orðuðu, kenni-
mannlegu fullyrðingu hans um, að
heiðarleiki og ráðvendni myndu aftur
ríkja í hinni spilltu Washintgonborg, og
stjórnunarhæfni hans, því heiti hans að
draga stórlega úr hinu uppblásna skrif-
tofubákni, gera kerfið virkt á ný.
Hvað hugsjónir snertir, var þetta
blandiö ár. Mál Bert Lance, Guð minn
góður, tók mesta glansinn af siðbót
Carters. Þetta var furðulegt vandræöa-
mál. Greinilegt var, að í Carter börðust
tvenns konar skyldutilfinningar, annars
vegar gagnvart stjórn hans og hins vegar
einum af beztu vinum hans. „Bert“, sagði
hann opinberlega, „ég er stoltur af þér.“
Það sem helzt verður talið Carter til
varnar fyrir frammistöðuna fyrsta árið
er, að hann er fljótur að læra, góður
námsmaður. í þessu tilviki lærði hann af
biturri reynslu. Eitthvað var augljóslega
bogið við fjármál Lance, og hefði Carter
verið búinn að öðlast meiri reynslu, hefði
hann gert sér ljóst miklu fyrr, að áfall
vegna vináttu má ekki stofna stjórnkerfi
í hættu.
XXX
Á hinn bóginn var barátta Carters í
þágu mannréttinda í öðrum löndum
mikilsverð, þótt árangur hennar sé ekki
ótvíræður. Sumum bandamönnum, sér-
staklega í Vestur-Evrópu, þótti þessi
áróðursherferð hans hættulega heimsku-
leg. Hún vakti spurningar um, að hve
miklu leyti eitt land gæti hlutazt til um
innanríkismál annars og Carter stóð
berskjaldaður fyrir ásökunum um yfir-
drepsskap. Hann hótaöi því að taka fyrir
efnahags- og hernaðaraðstoð til hvers
þess ríkis, sem ekki léti af verstu óþokka-
og glæpaverkunum, en hann taldi sig
tilneyddan að afsaka hernaðarlega mikil-
væga bandamenn svo sem Suður-Kóreu
og Iran. (En þrátt fyrir það virtist íran
taka mun mildilegar í andófsmönnum
vegna þrýstings frá Carter.)
Það sem veldur mestum áhyggjum í
fari Carters er, hversu mjög hann er
sjálfum sér ósamkvæmur og á erfitt með
að einbeita sér, en það er skrítinn
eiginleiki hjá hinum samvizkusama,
hraðlæsa dugnaðarmanni, sem gestir lofa
alltaf fyrir hina einlægu athygli, sem
hann sýnir þeim. Carter fjallaði um
feikilegan fjölda af smámálum. Hann
svaraði greinargerðum á augabragöi og
skipti sér af öllum hlutum (fyrstu tíu
mánuðina ákvað hann jafnvel, hverjir
mættu nota tennisvöll Hvíta hússins). En
í því liggur ef til vill skýringin á
vandanum. Það kann að vera, að Carter
haldi sig við smámálin, af því að hann
kann bezt við sig þar. Ef hann fæli öðrum
fleiri ákvarðanir — til dæmis yfirmanni
starfsliðs Hvíta hússins — og helgaði
krafta sína framgangi meiri háttar
áhugamála sinna og hugsjóna, þá gæti
verið að ýmislegt færi að þokast í áttina
í stjórninni.
Snemma varaði Carter þjóðina til
dæmis við neyðarástandi, ef ekki yrði
brugðiö við af festu í orkumálum. Hann
dró ekkert undan og var ómyrkur í máli,
þegar hann boðaði stefnu sína í þeim
efnum. Hér væri um „siðferðilegt jafn-
gildi stsrjaldarÖ að ræða. En í þessari
stefnuskrá hans var ekki gert ráð fyrir
neinum teljandi fórnum Bandaríkja-
manna. Áætlunin var send þjóðþinginu,
soðin saman í flýti af James Schlesinger
og hinu nýja orkumálaráðuneyti hans, og
hún var hreint ekki svo slæm miðað við
það, hvað flýtirinn var mikill. En hún
kom til þjóðþingsins, eins og herir
Napoleons mættu vetrinum í Rússlandi,
og hún tortímdist á hægu undanhaldi.
Iskyggilegt fordæmi tók að koma í ljós:
fyrst djarfmannleg og áhrifamikil ræða
og framkoma, en síðast aulalegt undan-
hald. Hann sakaði olíufélögin um að
reyna „mesta gróðabrall, sem sagan getur
um“, en nokkrum vikum síðar dró hann
í land i hógværri sjónvarpsræðu. Það
gekk manna á meðal í Washington að
Carter væri forseti, sem nær alltaf myndi
lægja seglin eftir hamaganginn í fyrstu.
Það var ömurlegt að sjá, hvernig hann
féll frá hinni óskynsamlegu hugmynd
sinni um 50 dollara skattalækkun, meðan
sumir stuðningsmanna hennar á þinginu
voru enn að berjast fyrir henni. Það þótti
mörgum súrt í brotið meðal þeirra, sem
töldu sig vini hans í þinginu.
Að hluta er vandamálið vel skiljanlegt.
Carter komst í Hvíta húsið með því að
berjast gegn Washington. Hann gerði
snotra dyggð úr takmörkunum sínum —
þeirri staðreynd, að hann hefði litla
reynslu af stjórnun og enga í landsmál-
um. Þess vegna fór mikið af tíma ha.ns
í ofmat og vanmat, í að segja of mikið og
of lítið, kanna málin, gera mistök, reyna
að henda reiður á þeim feiknalega hlut,
sem bandaríska þjóðin hafði falið honum.
Eitt versta vandamál Carters var — og
er ef til vill ennþá — hið einlæga
sjálfstraust, sem er hættulegt, þegar það
er einfaldlega ofmat á sjálfum sér. Carter
og hinir Georgíumennirnir voru fyrst
forviða yfir því, hve traust og sterk borg
Washington væri. í viðtali við James
Reston í New York Times 1977 sagði
Carter, þegar talið barst að þinginu, og
það var undrunarhreimur í rödd hans, að
hann „væri undrandi yfir því, hve
þekking þeirra væri víðtæk og djúpstæð".
Carter gæti hafað notið góðs af því að
ráðgast við suma hinna reyndu manna,
sem hafa dvalið þarna árum saman og
þekkja venjur og hætti þar og leynigöng.
En Georgíumennirnir komu til Washing-
ton fullir hroka og stygglyndi, hugarfarið
var: „Hver þarf á þér að halda?“. Skipan
starfsliðs Hvíta hússins er ruglingsleg á
margan hátt, starfsmennirnir sjálfir
veigalitlir flestir og reynslulausir í siðum
og háttum Washingtonborgar og pólitísk-
ur hugsunarháttur þeirra nær ekki út
fyrir hollustuna við Carter og fylgi við
áhugamál hans. En jafnframt hefur tekið
að gæta nokkurrar einangrunarkenndar
hjá Carter sjálfum, sem minnir á Nixon,
þó að hann hafi verið svo áþreifanlega
kristinn við embættistökuna, að hann
kyssti alla í augsýn. Gamlir vinir hans
eins og Charles Kirbo, lögfræðingur, sem
hefur áhyggjur af því, að Carter hafi
sýnilega elzt í starfinu, hefðu kosið, að
hann færi meira út og hitti fleira fólk,
nyti afþreyingar.
XXX
Carter hefur gaman af því að útskýra
sum vandamál sín á fyrsta ári sínu í
embætti með því að segja brandara af
drukknum manni, sem var dreginn fyrir
rétt í Georgíu, ákærður fyrir að hafa
valdið hótelbruna með því að hafa reykt
í rúminu. Maðurinn viðurkenndi að hafa
verið drukkinn, en neitaði því að hafa
valdið eldsvoðanum. „Rúmið var þegar
alelda, er ég fór upp í það,“ sagði hann
dómaranum. Eins og allir nýir forsetar
tók Carter við ógrynni af óafgreiddum
málum. í hinu logándi rúmi hans voru
meðal annars hinar stöðnuðu SALT
viðræður, hin stöðuga hætta i Miðaustur-
löndum, hraðvaxandi orkuvandamál,
atvinnuleysi, dýrtíð.
Forsetinn hefur sennilega reynt að
gera of mikið. Það er eins og hann hafi
tekið öll áhugamál sín í þágu landsins
(sum þeirra hálfunnin) og fleygt þeim af
handahófi í þingið til meðhöndlunar — en
þaö er alkunna, hvernig það tætir í
sundur óskafrumvörp forseta. Ýmsa sigra
hefur Carter þó unnið. Hann stofnaði hið
nýja Orkumálaráðuneyti, fékk víðtækt
umboð frá þinginu til að endurskipu-
leggja embættismannakerfið og undirrit-
aði veigamikil frumvörp um náma-
rekstur, lágmarkslaun bænda og eflingu
atvinnulífsins. Ef svo fer sem horfir,
munu breytingar hans á velferðarkerfinu
öðlast lagagildi á þessu ári eða hinu
næsta. Kjarninn í stefnuskrá hans er að
skapa 1.4 milljónir opinberra þjónustu-
starfa til að tryggja atvinnu handa þeim,
sem þiggja opinbera styrki, en vilja
vinna.
Hann hefur tekið erfiðar ákvarðanir.
Ein þeirra Var að hætta við B-1
sprengjuflugvélar. Önnur var hör sið-
sið-ferði afstaða gagnvart Suður-Afríku.
Carter skipaði Andrew Young
aðalfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum,
varð fyrir miklum óþægindum, þegar
Young kallaði bókstaflega alla í heimin-
um kynþáttahatara, en fór svo að sjá
betri árangur, þegar Young jók álit og
traust Bandaríkjanna meðal þjóða Þriðja
heimsins.
Traust til ríkisstjórnar var hið mikla
viðkvæöi í kosningabaráttu Carters. Það
hefur alltaf þótt skrítið, að þjóð,-sem var
orðin svo vonsvikin eftir Watergate og
Vietnam, skyldi ekki gjalda varhug við
fagurgala Carters, heldur þvert á móti
gleypa við honum. Það er erfitt að segja,
að hve miklu leyti Carter hafi endurvakið
traustið á ríkisstjórninni. En að sjálf-
sögðu eru bjartar vonir bundnar við
hvern nýjan forseta í fyrstu, og síðan
kemur tímabil meiri eða minni vonbrigða.
Bandarískir kaupsýslumenn voru mjög á
báðum áttum varðandi Carter af þeirri
einföldu ástæðu, að þeir vissu ekki frekar
en flestir aðrir Bandaríkjamenn, hvers
konar maður væri þarna á ferð.
Það er alltof snemmt að spá neinu um
það, hvort Carter muni gegna forsetaem-
bætti annað kjörtímabil. Tugir skoðana-
kannana munu verða gerðar á næstu
þremur árum. Kannski fer Carter að
sækja á aftur. Ferðalag hans við lok
fyrsta embættisársins kann að hafa
víkkað sjóndeildarhring hans. Ef til vill
nær hann góðu samkomulagi á
SALT-ráðstefnunni, fær samþykki þings-
ins fyrir Panama-samningnum, skatta-
lækkuninni til að forðast þann efnahags-
vanda, sem spáð hefur verið síðar á þessu
ári, og einhverjum af tillögum sínum um
orkumál og nýtur góðs af einhvers konar
samkomulagi í Miðausturlöndum, ef þess
er nokkur kostur. Fari svo, gæti Carter
tekið að virðast vera nokkuð, sem hann
hefur ekki gert hingað til — farsæll
forseti, hinn „framtakssami og einbeitti"
forseti, sem stjórnmálafræðingurinn
James Barber sagði fyrir, að hann myndi
verða. Miðað við hæfileika hans til að
breyta sjálfum sér kann aö vera, að farið
verði að kalla hann hinn Nýja Carter,
sem myndi minna óþægilega á hina
mörgu Nýju Nixona, sem þjóðin reiknaði
sér forðum.
En sitthvað varöandi fyrsta ár Carters
er fjarri því að vera góðs viti. Hann var
heþpinn. Engin ógæfa dundi yfir hann.
En hann sveif eins og í draumi yfir sund
af mótsögnum án þess að viðurkenna )eða
kannski jafnvel án þess að gera sér grein
fyrir því), að þær væru í reuninni
mótsagnir. Carter háði kosningabaráttu
sína með einkar mjúkmálli alvöru og
glærri einlægni, en virtist svo fjarri því
Kramhuld á blv l.>
©