Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 16
TVO SOGUKORN l \H MATTHÍAS JOHANNESSEN Síöasti víking- urinn Um hann hafa veriö sagðar margar sögur. Fæstar eru þó lengur á vörum fólks. Aðrar lifa sæmilegu Iffi. Eitthvað á hann þvf eftir að lifa hórna megin grafar, þegar líkaminn bregst honum. Skringilegt orð- færi og einkennileg uppátæki sjá fyrir þvf. Sumir halda því fram að hann stfgi ekki í vitið. Ég er annarrar skoðunar. Held að hann lumi á góðri greind. Ég sá hann einhverju sinni að vetrarlagi sinna kindum. Það var stór hópur, þvf að hann er vel efnaður maður. Hann gerði gælur við hverja kindina á fætur annarri, klapp- aði þeim, leit f augun á þeim eins og góðum fjárbónda sæm- ir. Mér er sagt hann sé natinn við skepnur. Að hann hafi frá- bært auga fyrir kostum búfjár, einkum kúa og hrossa, og frá honum sé mikill fjöldi gæð- inga, auk þess sem nautin hans hafi stórbætt kúastofninn f sýslunni. Mig undrar það ekki. Ég hef séð hann ganga milli skepnanna á alstirndum vetrar- degi, þegar tungl tendrar him- in og myrkur blánar f hvftum sveilum. Allt um kring stjörnu- þyrpingar á sffelldu iði. Augun eins og demantar, hafði ég sagt. Þá komst ég alla leið að hjarta hans. Ég veit ekki hvort orðstfr hans hér á jörð væri borgið, ef hann hefði ekki sýnt gæðinga sfna á kappreiðum vfðs vegar um landið og komizt inn f þjóð- söguna. Þjóðsagan geymir orð- stfr manna betur en þjóðarsag- an. Hann fylgdist með öllu. Éitt sinn sagði hann: Mikið er ég heppinn að búa ekki f Suður- Ameríku. Þar er allt vitlaust 1 hanaslögum. Ég er nógu vitlaus samt (sýnir að hann hefur ein- hvern tfma tekið sjálfan sig til bæna). Ef ég hefði búið þar, ætti ég stórt hænsnabú með 20—30 stæðilegum hönum f öll- um regnbogans litum. Ég hefði látið þá veðja á hanana mfna. En enginn getur verið þekktur fyrir að lifa á hanaslag. Honum þótti tilkomumikið, þegar hann heyrði að bændurn- ir í Suður-Ameríku hefðu í sfð- asta strfði skýrt hanana sfna hershöfðingjanöfnum, eins og Montgómery, Patton, Éisen- hower og Timósjenkóv. Það átti vel við, fannst honum. Ekkert átti raunar betur við að hans dómi en hershöfðingjar f hana- slag. Og hann sá fólkið fyrir sér rffast um beztu sætin sem næst voru blóðvellinum og leggja bréf yfir kné sér, svo að blóð- sletturnar lentu ekki í fötun- um. Ég er á móti blóði, sagði hann og hristi höfuðið. Én ég er af konungakyni og hefði getað hugsað mér að eiga hest með nafni Gústafs Adolfs. Hann hefur Sögur herlæknisins á hraðbergi. Ég verð að játa að heimildir um hann eru af skornum skammti. Það sem ég hef fram að færa er aðeins strjálingur, sögubrot sem ég hef heyrt héð- an og þaðan. Það er vfst ekki enn komið fram að tortryggni var einn helzti eðlisþáttur hans, enda var hann af vfkinga- kyni. Sumir sögðu að hann hefði lært hana af hestunum. Vfst var um það að hann hafði lært meira af þeim en þeir af honum. Hann lærði af þeim gott líferni, fyrirleit t.a.m. drykkjuskap. Einhverju sinni kvörtuðu vinir hans yfir þvf á kappreiðum að hann sinnti þeim ekki. Þá sagði hann: Þið eruð svo helvfti leiðinlegir svfnfullir, að maður bara þekk- ir ykkur ekki. Hann var góður glfmumaður og ávallt til f tuskið. Hafði keppt áður fyrr og enginn skildi, hvernig honum tókst að fella alla þá beljaka, sem lágu hundflatir við tærnar á honum. Auðvitað myndaðist þjóðsaga um svo tröllsleg átök. Sagt hef- ur verið að stundum hafi hann teygt sig upp f eyra mótstöðu- mannsins, meðan beðið var eft- ir flautu dómarans, og hvfslað: Élskan, farðu nú gætilega með mig, ég er svo lítill. Svo vin- gjarnlegt ávarp veikti auðvitað þrek andstæðingsins og jafnan með þeim afleiðingum, að tröll- ið lá í gólfinu um leið og flaut- að var. Einu sinni sem oftar var söguhetja okkar á kappreiðum. Þá kom svolalegur Norðlend- ingur f tjald hans og sagði upp yfir alla: að það væru undur mikil og að öllum lfkindum svindl, að þetta helvftis örverpi hefði verið glfmukappi, enda hefði hann hvorki til þess and- legt né Ifkamlegt þrek. Býður honum út fyrir að reyna kraft- ana. Hann sagði ekkert, gekk þögull út úr tjaldinu og valdi hólmgöngustaðinn. Þar var stór drullupollur, enda hafði rignt eldi og brennisteini allan dag- inn. Það verður mýkra fyrir mig, gamtan manninn, að detta hér, sagði hann, svo að nær- staddir heyrðu. En glfman var ekki fyrr byrjuð en sá að norð- an lá í svaðinu. Þá hrópaði sögupersónan. Piltar, piltar, komið þið og hjálpið mér að reisa helvftis fantinn við. Ég var sko ekki byrjaður. Ég bara sneri mér aðeins við og þá datt hann greyið. En hitt lýsir honum kannski bezt, þegar hann annað sinn og á yngri árum var staddur úti í hesthúsi með félögum sfnum. Þeir handléku riffil, fremur óvarlega eins og ungum mönn- um hættir til. Skot hljóp úr vopninu og f fótinn á nærstödd- um pilti. Þá sagði söguhetja okkar (og við kveðjum hana með orðum hans sj álfs): Ja það var svei mér gott, að þetta fór ekki f hana Mósu mfna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.