Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1977, Blaðsíða 4
Frank Ponzi athugar þær margvíslegu skemmdir, sem komu i Ijós, þegar málverkið var skilið frá blindrammanum (f baksýn) sviði, var t.d. kallaður héðan til Flórenz eftir flóðin miklu þar ár- in 1966 — 67 til þess að taka þátt i björgun hinna frægu listaverka sem þar lágu undir skemmdum. Þangað voru sérfræðingar fengn- ir víða að til þess að vinna um tima og er því verki hvergi nærri lokið enn. Um tima var Frank Ponzi list- ráðunautur Reykjavikurborgar, eins og kunnugt er. Hann gerði við Kjarvals-myndirnar, sem við- gerðar þurftu við i safninu að Kjarvalsstöðum og gaf ráð um hvernig reka skyldi safnið. Nú er Frank Ponzi á förum til þess að skipuleggja mikla nútimalist- sýningu í Kunsthaus safninu i Ziirich, en þá sýningu á síðan að setja upp i Nationalgalerie safni Berlínarborgar, Við heimsóttum Frank í vinnu- stofu hans, um það leyti, er hann var að leggja síðustu hönd á við- gerð altaristöflunnar i Dóm- kirkjunni og spurðum hann, hvað væri helzt um þessa töflu að segja. „Altaristaflan var máluð í Dan- mörku fyrir kór Dómkirkjunnar og sett þar upp 1848. Hana gerði danski málarinn Gustav Theodor Wegener (1817 — 1877), er var af þekktri listamannaætt þar i landi. Sjálfur hlaut hann gullmedaliu árið 1845 í viðurkenningarskyni fyrir störf sín. Taflan er máluð i akademiskum stfl 19. aldar og má vissulega teljast gott verk á sinn máta, en er ekki síður verðmæt Islendingum vegna sögulegs gild- is. Innlendir listamenn hafa mál- Myndin eins og hún var áður en viSgerð hófst. Hliðarbirta sýnir m.a. greinilega sprungur og för eftir þrjár bætur, sem límdar voru aftan á hana. Hér sést efri rönd töflunnar, uppétin af myglu og tvær bætur úr segldúk sem límdar höfSu veriS á kantinn svo hægt væri aS festa málverkiS á blindrammann. DOMKIRKJAN, ALTARISTAFLAN I DÖMKIRKJUNNI 06 ÞJÖÐMINJAR Hulda Valtýsdóttir ræðir við Frank Ponzi, listfræðing EINS og kunnugt er standa nú yfir viögeröir á Dóm- kirkjunni í Reykjavík og á m.a. að mála hana að innan f hólf og gólf. t ljós kom, að altaristaflan í Dómkirkj- unni var stórlega skemmd og var Frank Ponzi, list- fræðingur, fenginn til að annast viðgerðir á töfl- unni. Frank Ponzi er löngu nafn- kunnur maður hérlendis, ekki sist meðal listamanna. Hann er italsk- ur að ætt, ólst upp i Bandaríkjun- um við ítalska siði, en er menntað- ur í listsögu og safnfræði frá há- skólanum í Oxford í Englandi. Aður en hann fluttist til ís- lands, vann hann við listasöfn bæði vestan hafs og austan (m.a. við hið fræga safn Guggenheim í New York). Hann hefur löngum getið sér góðan orðstír á sinu BakhliS töflunnar, sem sýnir bót efst í Mygluskaðinn á léreftinu sést eftir að miðbótin miðju og myglubletti. náðist af. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.