Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1975, Page 9
sælasta flíkin á sumri kom-
anda. Kjóll, sem er alls staðar
laus frá líkamanum eða með
belti, rykktur (Felldur) frá öxl-
um eða brjósti, með viðum
„kimono" ermum, stuttum
eða löngum, oft með uppá-
broti. Dragtir líta aftur dags-
ins Ijós, klassiskar, karlmann-
legar, flestar tvíhnepptar með
bundnum eða hnepptum pils-
um.
Hvitt er mikilvægasti litur
sumarsins, einn sér eða með
röndum. Einnig grátt með
bláum, hvítum eða gulum
blæ. Rendur eru alls staðar i
skyrtum, blússum, stökkum,
pilsum, höfuðfötum, buxum
eða kjólum. Rendurnar eru
ýmist mjóar eða breiðar, sem
aðalatriði eða sem skraut, en
alltaf samsíða. Mest ber á
bláum og hvítum röndum á
fingerðum bómullarefnum.
Kápur með frjálslegu sniði,
eins og hettukápan frá
Christian Aujard eiga eftir að
ná miklum vinsældum.
A’JjSrd héfur óviðjafnanlega
tilfinningu fram i fingurgóma
fyrir litum og meðferð sniða.
Kápan er gulbrún, pilsið úr
dökkbláu gabardine og blúss-
an með fingerðum röndum.
Saint-Laurent er tryggur sí-
9'lda Sahara-stílnum og not-
ar nú í þær flíkur hvítt poplin.
Pyrir næsta sumar hefur
hann og dálæti á viðum,
hegnum, gjarnan köflóttum
blússum og bundnum poplín-
pilsum með stórum utaná
vösum.
Eins og áður hjá Coco
Chanell er Sonia Rykiel fyrir
ótímabundin, afar kvenlegan
fatnað og lætur aðeins smá-
atriðin og litina breytast milli
árstiða á modelum sínum. Á
mynd 3 sjáum við „dæmi-
gerðan" Rykiel glæsibrag.
Síður dökkblár mohair-jakki
með hvítum böndum og
bryddingum við dökkblátt
pils og peysu.
Takið eftir því á kápunni frá
Chloé eru bönd i stað hnappa
og gera þau kápuna þar með
enn fínlegri. Kápan er úr Ijósu
flanelli með tilheyrandi pilsi
og silkiblússu. Frjálslegi kjóll-
inn frá Chloé úr langrönd-
ótta, hvita, bláa og rauða
silkikennda efninu er með
„kimono" ermum og leikandi
léttum plisseruðum „vó-
löntum". Höfundur Chloé
fatanna sækir hugmyndir
sínar langt aftur i söguna, til
tíma Mariu Antoinette er riún
lék sér i silkikjólunum sínum
á grænni grundu við lömbin
smá.
Það er ekki frá þvi, að
Cacharel hafi orðið fyrir áhrif-
um frá Daisy og hinum óvið-
jafnanlega Gatsby á tennis-
vellinum, er hann skóp
sumarfatnaðinn 75. Með þvi
Framhakl á bls. 15