Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1975, Page 5
Hún er fallegasta íornar-
lamb íorsetans í Uganda,
sem hvorki er iæs né skrifandi
Idi Amin, fyrrum boxari og nú forseti Uganda. Ráðherrar hans
hlusta bara á útvarp til þess að heyra hvaða ákvarðanir
forsetinn hafi tekið fyrir þá.
Elizabet af Toro með kollega sinum, þýzka utanrikisráðherranum Hans-
Dietrich Genscher. Amin forseti varð óður og setti Elizabetu af, þegar hann
hélt að hún hefði farið inn á klósett i París með hvitum manni. og nú veit
enginn hvort hún er lifs eða liðin.
nú hangir líf hennar sjálfrar á
bláþræði.
Tilraunir þýzka ráðherrans
Hans-Dietrichs Genschers til þess
að fá Henry Kissinger, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, til að
leggja inn gott orð fyrir hinn fyrr-
verandi kollega sinn, runnu út i
sandinn. Kissinger færðist und-
an; bar hann það fyrir sig, að af
þessu mundu aðeins hljótast
„vandræði".
Rut Brandt, fyrrum kanslarafrú Vestur-Þýzkalands, á heimili sinu ásamt Matthlasi syni þeirra hjóna.
„Þœgilegra
aöveralausviö
lífveröina"
Viötal viö Rut Brandt, hina norsku eiginkonu Willy
Brandts. Eftir Evu Windmöller
Eins og áður er ekið upp á
bjargið, beygt inn I hliðargötu
skammt frá kanzlarabústaðnum á
Kiefernvegi og numið staðar fyrir
framan langt, hvltt einbýlishús
með tigulsteinþaki. En talsverður
munur er samt á að heimsækja
Brandthjónin fyrr og nú. Nú
spyrja mann engir verðir að
nafni, eða sá sægur þjónustu-
fólks, ökumanna og leyniþjón-
ustumanna, sem áður var að
mæta þar.
Bastarðurinn Bastian tekur
geltandi á móti okkur i garðinum.
Rut Brandt kemur sjálf til dyra.
Hún er klædd flauelsjakka og
blússu frá tízkufrömuðinum Louis
Feraud I Paris. Hún minnist á
nýju hárgreiðsluna sina, og
kveður hana sérlega þægilega og
hagkvæma.
Húsið, sem Brandthjónin tóku
á leigu i júli siðastliðnum, er
þægilegra en kanzlarabústaður-
inn gamli var. Úr bjartri dagstof-
unni er opið inn I eldhús, er
rúmar átta manns við borð, og
inn i gestasal. Niðri i kjallara
standa bókakassarnir I stæðum.
Rut Brandt kærði sig ekki um
bókahillur á veggjunum; heldur
hanga þar myndir eftir Káthe
Kollwitz, Max Ernst og Georg
Meistermann meðal annarra.
Niðri er bjórkjallari, sem einnig er
sjónvarpsherbergi. Þar dönsuðu
fjörutiu manns i veizlu i október
eð var. Lars Brandt, tuttugu og
þriggja ára gamall sonur hjóna,
hefur komið sér notalega fyrir i
séribúð á neðri hæðinni. Á efri
hæðinni eru baðherbergi, vinnu-
stofa Brandts, herbergi Matthias-
ar Brandts, sem er þrettán ára
gamall, svefnherbergi hjónanna
og stofa Rutar.
Við spyrjum hvort þau hyggist
búa þarna alltaf framvegis. ,,Það
hugsa ég nú ekki," segir Rut, „en
ég hefi samt oftar en einu sinni
sagt, að þurfi ég að flytja enn
einu sinni muni ég sprengja allt í
loft upp."
Rut Brandt er glaðvær og hlát-
urmild kona, frjálsleg og dugn-
aðarleg I fasi. Hún kveðst reynd-
ar vera feimin að upplagi, en sé
svo, eyðir hún þvi nteð hæðni og
gamanmálum. Við spyrjum hvaða
breytingar hafi helzt orðið á
háttum hennar frá þvi maður
hennar lét af embætti kanzlara.
„Ég fer fyrr á fætur," segir hún,
„borða ekki lengur morgunverð i
rúminu, og ég sef lika skemur á
daginn." Þar sem mestallt þjón-
ustufóikið frá kanzlaratimanum
er nú farið og ekki eftir nema
norska húshjálpin, hafa heimilis-
störfin hlaðist æ meir á frúna.
Hún fer i innkaupaferðir — og nú
lífvarðarlaus. ,,Ég hafði prýðilega
lifverði," segir hún, ,,en það er
nú samt þægilegra að vera laus
við þá." Af námi Matthíasar son-
ar síns skiptir hún sér litið. „Ég
hef alltaf sagt börnum minum, að
ég geti hjálpað þeim þar til i
öðrum bekk — en ekki lengur."
Stjórnmálaumræður hafa auk-
izt á heimilinu frá þvi að Brandt
lét af embætti. „Við höfum meiri
tima núna," segir kona hans.
„Áður var svo mikið um að vera,
að ég hafði oft fréttir mínar fyrst
úr útvarpinu. Nú má hann vera að
þvi að ræða málin við ntig." Við
spyrjum hvort kanzlaranum fyrr-
verandi hafi ekki brugðið við um-
skiptin. „Streitan hefur náttúru-
lega stórminnkað," segir Rut.
„En hann hefur svo sent kappnóg
að gera eftir sem áður. Mór finnst
hann einn albezti stjórnmála-
maður, sem nú er uppi. Ég er
e.t.v. ekki hlutlaus um málið, en
ég held nú samt, að þetta sé ekki
fjarri sanni."
Á mánaðarfresti heimsækir
hún Pétur, son sinn, sem er
tuttugu og sex ára og býr i Berlin.
©