Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1975, Qupperneq 5
Joan þótti mjög fögur, en samt hafði hún ekki það sama til brunns að bera og svilkonur hennar, Ethel og
Jacqueline. Og nú er nokkurnveginn vist, að hún verður aldrei forsetafrú.
fyrir þessu. Við nálguðumst skyndilega hvort annað. Mér varð
Ijóst, að Ted þarfnaðist tryggrar eiginkonu og vinar, sem
styddi hann og styrkti í einu og öllu.
En svo gekk árið 1969 i garð og slysið við Chappaquiddick-
eyju. Enn voru hinar verstu þrengingar eftir.
Seint um nóttina hinn 19. júli 1969 vaknaði Joan Kennedy
við simhringingu. Eiginmaður hennar, Edward Kennedy, var í
símanum og hafði þær fregnir að færa, að hann hefði lent i
bilslysi um miðnæturbil við Chappaquiddickeyju og ungur
einkaritari hans, Mary Jo Kopechne, hefði drukknað. Hann
vissi, að ekki liðu margar klukkustundir þar til fregnin yrði
komin um allt land og það hafði mikla þýðingu, að Joan frétti
þetta frá honum sjálfum en ekki einhverjum öðrum.
Unga konan, sem var barnshafandi og komin þrjá mánuði á
leið og hafði af þeim sökum ekki farið með manni sinum til
Chappaquiddick, settist nú niður og beið hans, meðan fregnin
flaug á öldum Ijósvakans um gjörvöll Bandarikin.
Dagblað nokkurt lét svo um mælt: — Það getur farið svo,
að þetta verði endirinn á hjónabandi Teds og Joan; vonbrigðin
eru þegar orðin of mikil, árekstrarnir of margir, — og nú
þetta. Nánir vinir Joan segja þetta hafa orðið henni þungt
áfall. Hún er bæði reið og vonsvikin, að þetta skyldi koma
fyrir. Henni finnst hún hafa verið svikin. Og þetta er sannar-
lega beizkur biti.
En skilnaðarsögurnar reyndust ekki á rökum reistar. Ted
þarfnaðist hjálpar Joan og Joan stóð með honum og varði
hann með kjafti og klóm í moldviðrum slúðursins og gróusagn
anna. — Það hefur aldrei hvarflað að mér að sllta hjónabandi
okkar, sagði hún. Þeir, sem halda því fram, fara með fleipur.
Og vinir hennar gerðu sér fleiri rangar hugmyndir um hana.
Hún bað ekki um meðaumkun þeirra, hún kærði sig ekki um
meðaumkun nokkurs manns. Þegar fólk vildi sýna henni
meðaumkun átti það bágt með að skilja viðbrögð hennar, að
hún skyldi ekki fara að gráta og þakka þvt fyrir hugulsemina.
— Ég var lengi að komast til botns í hlutunum, segir hún.
Ég skildi þá ekki fyrr en nokkrum tíma eftir að þeir gerðust.
Með timanum jókst tryggð mín við Ted og ég gat orðið æf af
reiði, ef einhver góðviljaður kallaði mig „veslinginn litla" eða
öðrum álika gáfulegum nöfnum. Ég sagði fólki blátt áfram, að
ég kærði mig sízt um meðaukun þess; ekkert okkar kærði sig
um meðaumkun. Þá byrjaði það náttúrulega undir eins að
segja mér nýjustu kjaftasögurnar um slysið. Það var viðbjóðs-
legtl Ég anzaði þvl ekki. i fyrsta sinn fannst mér ég geta axlað
mlnar byrðar ein og hjálparlaust. Ég hafði vaxið að afli og
áræði eftir slysið.
Hún var viðstödd jarðarför Mary Jo Kopechne ásamt Ted.
Skömmu seinna lét hún fóstri I þriðja sinn og þá var eins og
hið dýrkeypta sjálfstraust hennar færi dvlnandi.
— Loks var það gersamlega þorrið, segir hún. Hið eina, sem
ég þóttist enn mega telja mér til gildis var það, að ég væri
sæmilega lagleg og þokkaleg vaxin.
Hún tók að færa sér þetta I nyt. Hún litaði hárið Ijósara og
hafði það slegið, hún klæddist æ styttri pilsum og fatnaður
henna var yfirleitt allur ögrandi.
Árið 1 969 kom hún svo stuttklædd til veizlu í Hvíta húsinu,
að viðstaddir stóðu á öndinni. Nixon forseti átti fullt I fangi
með að hafa augun af fögrum fótleggjum hennar og boðsgest-
ir störðu eins og naut á nývirki.
Daginn eftir voru blöðin full af myndum af henni og mikið
var um þetta rætt. Joan varð felmtri slegin að hafa vakið
þvllikt umtal, og lýsti þvi yfir, að hún hefði valið klæðnað sinn
með það eitt fyrir augum að gleðja eiginmann sinn. Ted trúði
kunningja stnum hins vegar fyrir þvi, að hann hefði nóg að
gera við að draga pilsin hennar niður.
Árið eftir var þeim aftur boðið til veizlu I Hvtta húsinu, og
kom þá i Ijós, að Joan virtist ekki hafa lært mikið af atvikinu
árið áður. Hún kom til veizlunnar i hnéháum, svartgljáandi
leðurstígvélum, níðþröngu pilsi og gegnsærri blússu. Menn
gripu andann á lofti, og daginn eftir birti eitt dagblaðanna
mikla vandlætingargrein, er hljóðaði m.a. svo: — Skyldi þessi
léttlynda móðir og eiginkona gera sér grein fyrir því, hvað hún
gefur fólki í skyn með þessari framkomu? Hvita húsinu? Með
þessum klæðnaði gefur hún til kynna virðingarleysi sitt fyrir
sjálfri sér, gestgjöfum sinum, eiginmanni sinum og umhverfi.
Að sjálfsögðu fylgir hún aðeins tíðarandanum, en þetta
speglar þó einnig innri vandamál hennar —.
— Ég á bágt með að skilja það nú, að ég skyldi ekki sjá
þetta fjaðrafok fyrir, sagði Joan seinna. Þetta var furðu
barnaleg hegðun af minni hálfu. Ég gerði mér það ekki Ijóst
þá. sem ég veit nú, að auðvitað vildi ég umfram allt vekja á
mér athygli. Þess þarf ég ekki lengur. Til þess liggja ýmsar
ástæður. Hún vakti mikla athygli, er hún hélt píanótónleika i
borginni Philadelphiu og 2500 áheyrendur risu úr sætum
sinum og hylltu hana. Skömmu seinna kom hún fram i
sjónvarpsþætti Andy Williams og vakti mikla hrifningu. Fyrir
þann þátt fékk hún jafnvirði 800.000 isl. króna.
— Mér fannst stórkostlegt, að þeir skyldu borga mér fyrir
þetta sagði hún. Og það jafnmikið og frægri kvikmynda-
stjörnu! Mér fannst stórfenglegt, að þeir skyldu meta fram-
lag mitt svona mikils, að þeir skyldu yfirleitt kæra sig um
þátttöku mína. Ég hafði raunverulega unnið fyrir þessum
peningum, lagt eitthvað af mörkum. Ég á erfitt með að lýsa
því, hverja þýðingu þetta hafði fyrir mig. . .
Hún hélt fleiri tónleika. — Tónlistin hefur verið mér mikil
stoð i leit minni að „sjálfri mér", sagði hún. Þýðingarmest var
þó það, að Ted lét loksins undan þrábeiðni hennar um það að
mega leita til geðlæknis. Hún ætlaði að reyna að gera sér
málin Ijósari, greiða úr tilf inningaflækjum sínum, afstöðu sinni
til Kennedyættarinnar — og einkum þó afstöðu sinni og
tilfinningum til eiginmanns síns.
— Það lá þungt farg á Joan, segir einn góðkunningi hennar
um þetta. Hún var að kikna undir þvi. Þar kom, að einn
geðlæknir dugði henni ekki; hún varð að ganga til tveggja.
annars á þriðjudögum, hins á fimmtudögum, til þess hún gæti
borið saman sjúkdómsgreiningar þeirra. Á þessu gekk i eitt ár.
Hún er ekki „ósvikinn" Kennedy, og þess vegna veitist henni
svo erfitt að laga sig að þeim. Það 6ru þessir erfiðleikar sem
leggjast svo þungt á hana. Geðlæknunum tókst að hjálpa
henni að vissu marki, en þó held ég að stysið við Chappa
quiddick hafi valdið mestum straumhvörfum i lifi hennar.
Fram að þvi hafði hún verið nokkurs konar stofustáss, en eftir
slysið var hún helzti bandamaður Teds. Hann þarfnaðist
hennar mjög,hún gerði sér það Ijóst, og óx af þvi.
Hún þurfti lika vissulega á þvi að halda. Chappaquiddick-
slysið varð til þess, að sögurnar um kvennafar Teds Kennedy
vöknuðu upp tviefldar. Hann hafði löngum veri talinn talsverð
ur giaumgosi. Hann var þegar orðinn þekktur i skóla fyrir
hispurslausa framkomu. Hitti hann stúlku. sem hann girntist,
gekk hann beint til verks og lét uppi erindið. Hann vænti þess,
að stúlkurnar væru jafn fljótar til svars. Og megi marka
eitthvað af þeim sögum sem ganga um hann í Washington.
hefur hann ekki orðið hlédrægari með árunum.
En enginn þingmaður sem einhverjum tíma eyddi i skyldu-
störf kæmist yfir annað eins kvennafar og Ted Kennedy er
sagður stunda. Slíkt dregur þó engan veginn úr söguburði,
eins og alkunna er. Sagt var, að þingmaðurinn lifði eftir þeirri
skoðun, sem hann hafði einhverju sinni látið uppi: „Það er
aðeins rúm fyrir einn glaumgosa i Kennedyfjölskyldunni, og
hvers vegna skyldi það ekki verða ég?"
Vinir hans létu sér ekki bregða. — Já, en hjálpi mér, svona
hefur þetta verið árum saman! Fjölskyldan hefur vitað af
þessu lengi — og Joan líka. Og enginn virðist megna að hafa
hemil á þessari veiðigleði Teds. Hann er sifellt á höttunum
eftir nýjum stelpum. Jafnvel Rose Kennedy veit þetta og gerir
sér Ijóst. að þetta getur haft óheillavænleg áhrif á stjórnmála-
feril sonar síns,,,.
Um þetta leyti lá við borð, að slúðrið og rógurinn yrði Joan
um megn. Öllum var Ijóst, að henni var ákaflega þungt i huga.
Hún leit illa út, glampinn var horfinn i augum hennar, hún lét
útlit sitt engu varða og hún nagaðar á sér neglurnar. Eitt sinn
skulfu hendur hennar svo, að handsnyrtistúlkan varð að hætta
við hálfnað verk. Sagt var, að hún væri farin að drekka.
f fyrra haust gaus enn einu sinni upp kvitturinn um
yfirvofandi hjónaskilnað. Þau hjónin, Ted og Joan, höfðu farið
hvort i sina áttina i sumarfrí. Skömmu seinna fór Joan ein til
Italiu á mikla alþjóðahátið fyrirfólks og þar voru teknar af
henni myndir I vangadansi við blaðamann frá Róm, Giorgio
Pavone að nafni. Þegar blaðamaður spurði Joan, hvar Ted
væri, sagði hún: — Hann er heima i Hyannis Port að gæta
barnanna.
— Joan og Ted hafa komið sér saman um að lifa hvort sinu
einkalifi, sögðu bandarisk dagblöð. Ted gaf þegar út yfirlýs-
ingu, þar sem sagði svo: „Það ylli mér talsverðri undrun, ef
hjónaskilnaður væri yfirvofandi." Joan gaf einnig út yfirlýs-
ingu: „Við Ted erum hvort öðru mjög nákomin. Hann er
dásamlegur og tillitssamur maður. Ég elska hann heitar en
nokkru sinni fyrr."
Sameiginlegur vinur þeirra hefur þetta að segja: „Þegar
Joan giftist dreymdi hana um notalegt heimilislif. en hún
giftist stjórnmálamanni og þetta hefur farið nokkuð á annan
veg en hún ætlaði. Hún getur ekki setið ein að manni sinum,
og það hefur hún aldrei getað sætt sig við. Enginn vafi leikur ð
þvi að hún elskar Ted. Hins vegar er erfitt að segja. hvort hann
elskar hana jafnheitt.
Ekki var langt liðið á haustið þegar einn harmleikurinn í
viðbót varð I lifi Joan. Elzti sonur þeirra hjóna. Ted yngri, fékk
krabbamein og taka varð af honum hægri fótinn. Læknar
vonast til þess. að Joan geti bjargað lífi hans. Rannsóknir hafa
sýnt, að i blóði hennar er mjög fágætt andefni, sem nú er tekið
að vinna á reglulegum fresti og er þvl siðan dælt i æðar
Teddys litla Enda þótt fóturinn hafi verið tekinn af honum er
samt hætta á þvi, að sjúkdómurinn breiðist út um likamann.
Joan Kennedy verður aldrei forsetafrú. Alls konar mótlæti,
ekki sist dauðsfall Mary Jo og kannski dvinandi hylli innan
flokksins, urðu til þess að Edward Kennedy gaf þá yfirlýsingu,
að hann myndi ekki framar sækjast eftir embætti Bandarikja-
forseta. Vinir þeirra hjóna álita, að sú ákvörðun hafi verið
mikill léttir fyrir Joan. Hún hafði áhyggjur af þvi að sagan
endurtæki sig ef hann yrði forseti.
— Ég er enn hrædd um, að eitthvað komi fyrir hann, segir
hún. Kannski er einhver í fjöldanum, sem hefur ákveðið að
ryðja öllum Kennedybræðrunum úr vegi. Maðurinn minn
óttast það og ég óttast það sjálf. Og við höfum bæði verið
nátengd forsetaembættinu. Ég skil ekki að mönnum skuli
þykja það svo heillandi.
©