Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1967, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1967, Blaðsíða 12
í hreinskilni sagt: Vondinn nð semjn fyrir börn Eftir Alan Boucher, dósent Einu sinni sagði gamall kunningi við mig: „Af hverju skrifarðu ekki bók fyrir fullorðið fólk?“ — Ég hafði nefnilega í nokkur ár verið að skrifa bækur, útvarpsþætti og annað, aðal- lega fyrir börn og unglinga, og hon- um fannst efalaust tími til kominn, að ég færi að sýna aukinn þroska með því að snúa mér að erfiðara og mikilvægara efni. En þetta er sjálfsagt algjör mis- skilningur. Listin að skrifa og skapa fyrir börn, er ekki sú, sem hver og einn hefur vald á. Til þess þarf meira en góðvild eina saman. Mér liggur nær að segja, að margir þeirra, er taka að sér að skrifa fyr- ir börn, séu ekki einu sinni færir um að skrifa fyrir fullorðið fólk. Hér á landi verður maður stund- um var við afstöðu hans kunningja míns, ekki sízt meðal þeirra, sem teljast gagnrýnendur og ættu því að vita betur. Ég hef tekið eftir því, til dæmis, hvernig þeir, er rita um dagskrá hljóðvarps og sjónvarps virðast helzt vilja sniðganga þenn- an lið hennar, þar sem mér sýnist þurfa mestu aðgæzlu. Enska Ijóð- skáldið Wordsworth sagði, „The child is father of the man“ (barnið er faðir mannsins), og listin getur haft eins mikið að segja fyrir þroska barns sem skólakerfi lands- ins. Því finnst mér Hinrik Bjamason eigi skilið viðurkenningu fyrir sinn ágæta þátt, Stundin okkar, ekki að- eins vegna efnisins — bömin frá tón- listarskólanum síðastliðinn sunnu- dag voru framúrskarandi — heldur einnig vegna þess, hvemig honum tekst að tala eðlilega og tilgerðar- laust við áhorfenduma, án vitundar uppgerðar lítillaetis. Hún Rannveig er einig ágæt. Því miður get ég ekki sagt eins um öll bamaleikrit í útvarpinu, þar sem stundum er ýkt fram úr hófi í því skyni að gera þau áhrifameiri fyrir krakkana. Þetta finnst mér hálf móðgandi fyrir börnin, sem eru ekki eins barnaleg og leikstjórarnir virð- ast oft halda. Og sjálfsagt er það heldur leikstjórunum að kenna, þeg- ar persónur í leikritunum eru gerð- ar að skopmyndum. Til dæmis: flug- kennarinn í Áma í Hraunkoti hefði aldrei fengið kennarastöðuna, eins taugaveiklaðuT og hann er, en Olli ofviti, sem á að vera ungur mað- ur, er aumt gamalmenni. Því minna sem menn og atburðir eru tengdir raunveruleikanum, þeim mun síður vekja þeir hlátur okkar, vegna þess að undirstaða hláturs er einmitt sú, að þetta hefði getað komið fyrir okk- ur. Aftur á móti var sögumaður Árna góður og mér finnst höfundar út- varpsleikrita fyrir hina fullorðnu geta lært töluvert af barnaleikrit- um í þessum málum, þar sem margt fer miklu betur í frásögn en í sam- tali — sérstaklega það sem gerist. Það er kjánalegt að heyra mann segja til dæmis: „Nú er ég búinn að slökkva ljósið“, eða eitthvað þess háttar, en sögumaður getur eðlilega sagt okkur frá því. BYSSAN Framhald af bls. 2 vopnum Kúlur byssanna urðu brátt öflugri skeyti en sterkustu lásbogar og auk þess mátti hlaða þær bæði með höglum og kúlum á víxl. Lásbogarnir voru þó ekkert barnaglingur, hinir sterkustu þeirra voru spenntir með tækjum sem minna á bifreiðatjakka og gátu skotið járnboltum gegnum 5—8 þumlunga þykkar eikarhurðir. Um aldamótin 1500 datt byssusmiðum í Mið-Evrópu sennilega i Núrnberg að smíða kveikjuútbúnað sem minnir helzt á vindlingakveikjara nútímans. í byssu- lásnum var komið fyrir hjóli með hrjúf- um ytri hring. Þetta hjól var knúið fjöður Iíkt og klukkuhjól og lá upp að tinnusteini. Þegar tekið var í handfang eða gikk losnaði um hjólið, það snerist við tinnuna og sló eldneista sem bár- ust að púðrinu á pönnunni. Loksins kom útbúnaður sem gerði skotmenn óháða því a(5 bur'íast með sérstök eldfæri eða ganga með logandi kveik á byssunni. Hinir frægu klukku- og byssusmiðir Þýzkalands og annarra landa í Mið- Evrópu tóku þessari uppfinningu feg- inshendi og fóru nú að smíða fjöldann allan af byssum, sem margar hverjar eru hreinustu listaverk, fagurlega skorn- ar, skreyttar og lagðar gulli, fílabeini og skelplötu. Þessar byssur hentuðu all- vel til veiða og kaupendur þeirra voru því gjarnan konungafólk, aðall og efna- menn sem horfðu lítt í kostnað. Fjöld- inn allur af þessum kjörgripum er til enn í dag á söfnum og, í einstaklings- eign og óskemmdar hjóllásbyssur eru mjög eftirsóttar af söfnurum. Hjóllás- inn hafði samt sína meinlegu galla. Út- búnaður hans var allflókinn og við- kvæmur og til þess að smfða hann þurfti hina högustu smiði. Þetta varð því of dýrt tæki til þess að fá í hendur venju- legra hermanna. En hálfri öld seinna kom lausnin. Frá aldaöðli kunnu menn að slá sam- an stáli og tinnusteini til þess að kveikja eld„ Það var óþekktur byssusmiður á Niðurlöndum sem fékk þá hugmynd um 1550 að festa mola af tinnusteini á lít- inn hamar og festa enda hans með bolta gegnum byssulásinn. Við boltann var tengd sterk fjöður sem sneri hon- um og lét hamarinn falla þegar tekið var í gikkinn, með allmiklu afli á stál- þynnuflöt og skjóta þannig neistum ofan í pú'ðurpönnuna. Þarna var fundinn upp einfaldur, sterkur lás sem næstum hver handlaginn járnsmiður gat gert við og jafnvel smíðað, auðveldur í notkun og ódýr í framleiðslu. Fljótt komust menn upp á lagið með að setja lok á púður- pönnuna, sem opnaðist þegar hamarinn eða byssuhaninn, eins og hann var nefndur vegna þess hve hann minnti á hana sem heggur, sló fram, og þannig var orðin til byssa sem mátti ganga með hlaðna og lás sem þoldi bæði vind og regn. Enda þótt hjóllásinn héldi eftir sem á‘ður velli einkum á lúxusbyssum, varð tinnubyssan eins og hún hefur verið nefnd hin algenga byssa næstu aldirn- ar allt fram á síðustu öld. Þetta var byssan sem hinar blóðugu trúarstyrjaldir 16. og 17. aldar voru háðar með, byssan sem landnemar Norð- ur-Ameríku beittu til að útrýma vís- undahjörðum vestursléttanna og börð- ust við Indíána með, byssan sem her- menn Napóleons höfðu í höndunum er þeir frusu í hel á sléttum Rússlands. Og enn þann dag í dag eru þessar byss- ur ekki úr sögunni. Þær eru búnar til mönnum til gamans, sem langar til þess að skjóta með sams konar verkfæri og langafi þeirra notaði. Allt fram á síð- ustu ár hafa fátækir bændur í skóg- lendi austurfylkja Bandaríkjanna smfð- að þær og notað til veiða vegna þess hve skotfæri fyrir þær eru sáródýr. Jafnhliða sem menn unnu að endur- bótum á kveikjutækninni glímdu tækni- fræðingar við það að smíða hentugar byssur sem hægt væri að hlaða að aft- an, einnig við að búa til byssur sem tækju fleiri en eitt skot í senn. Mönnum er svo tamt að hugsa sér aftanhlaðninginn sem tiltölulega nýtt fyrirbrigði að það vill gleymast að ein- hverjar elztu byssur sem til eru frá upphafsdögum byssunnar eru einmitt aftanhlæður. Aftanhlaðnar fallbyssur h nar svonefndu „bjórkönnuibyssur" voru í notkun á 14. öld og ef til vill öld fyrr. Þær voru smíðaðar þannig, að aftan og ofan á hlaupinu var numið burt stykki, nær helmingur hlaupsins á parti. Kúlunum var stungið fram í hlaupið inn um þetta gat og síðan smeygt á eftir sívölu járnhylki, lokuðu að aftan með handarhaldi líkast bjór- könnu í laginu, inn í hlaupið sem fyllti upp í skerðinguna. í þessari „bjórkönnu" var púðrið, sem tendra’ð var á venju- legan hátt gegnum örlítið gat á botni hennar. Með þessu móti fékkst skot- hraði sem gaf lítið eftir fallbyssum sem notaðar voru í fyrri heimsstyrjöld- inni. Auðvitað er augljóst, að þessar byssur þoldu ekki eins sterka hleðslu eins og framhlaðningar sem voru með heilan hlaupbotn og þar stóð einmitt hnífurinn í kúnni. Byssusmiðir smíðuðu alls kyns gerðir af aftanhlöðnum byss- um. Margar þeirra voru bráðsnjallar hugmyndir og hin mesta snilldar smíð. Gallinn við þær allar var að þær voru veikbyggðari en framhlaðningarnir því að glóandi púðurloginn vildi þrengja sér út um samskeytin. Eins og menn vita innsiglar patrónuhylkið þennan leka við samskeyti lássins á nútíma skotvopnum, en skothylkið eða patrón- an, ýmist úr málmi eða pappa, málm- klædd að aftan, var ekki fundin upp fyrr en á 19. öld og ekki nothæf fyrr en hvéllhettan kom til sögunnar. Uppfinningamenn sem glímdu við marghlæður rákust á sama vandann. Me'ðan hleðslan þurfti að liggja óvarin í hlaupinu svo hægt væri að kveikja í henni var nær ókleift að búa til not- hæfar margskotabyssur. Marghleypan var helzta þrautalendingin, byssa sem hafði 2, 3 eða fleiri hlaup sem hlaðin voru hvert fyrir sig og sérstakan kveikjuútbúnuð hvert þeirra, en slíkar byssur voru þungar og flók- in smiði, enda þessi lausn helzt not- uð við skammbyssusmiði. Eftir að tinnulásinn var fundinn upp, var ein- falt að smíða tvíhleypur, sem eru ekkert a;jnað en tvær byssur felldar saman á eitt skefti, enda urðu þær vinsælar me’ðal veiðimanna. Hinar fyrstu höfðu hiaupin hvort upp af öðru en síðan sáu byssusmiðir að einfaldara var að hafa þau hlið við hlið og þannig varð drottn- ing allra veiðivopna, hin klassíska tví- hleypa til. Seint á 15. öld datt einhverjum óþekktum byssusmið í Niirnberg eða Leipzig í hug að skera spírallaga rákir í byssuhlaupið innanvert til þess að byssukúlan fengi snúning um sjálfa sig á fluginu og flygi þannig miklu beinna en ella. Sumar heimildir eigna þessa uppfinningu Agústi Kotter byssusmið í Núrnberg, en fleiri nöfn koma til greina. Þessi uppfinning þarf ekki að vekja mikla fudðu þegar það er haft í huga að bogskyttur höfðu þá þegar um langahríð snúið upp á stýrisfjaðrir örva sinna til þess að láta þær spinna um sjálfa sig á fluginu. Orsakir til þess að kúlur sem snerust um sjálfa sig flugu beinna og hraðar en kúlur í slétt- um hlaupum höfðu menn ekki hugmynd um því vísindalegar skýringar á lög- málum þeirrar fræðigreinar sem kall- ast ballistic komu ekki fyrr en seint á 18. öld er enski stærðfræðingurinn Tinnulás sem notaöur vaa- frá 1550—1850 og tíðkast jafnvel enn í dag. Kveikjulás eins og tíðkaðist á 15. og 16. öld. Benjamín Robbins hóf sínar athuganir og tilraunir um þetta efni. Helzt höll- uðust menn að því að djöfullinn ætti erfitt með áð setjast klofvega á kúlu sem snerist og afvegaleiða hana því spuni hennar væri guðleg hreyfing, aðr- ir hölluðust að hinu gagnstæða, spuna- hreyfingin væri einmitt satanísk í eðli sínu og því ætti sá gamli auðveldara með að gæta þess að spinnandi kúlan flygi beinna og næði betur sínum djöf- ullega tilgangi. Einhver elzti riffill sem til er í heim- inum er frá dögum Maximilians keisara af Habsborg, hin vandaðasta smíði méð nákvæmum miðunartækjum. Rifflar voru síðan notaðir bæði til hernaðar og veiða þó þeir yrðu aldrei eins al- gengir og byssur með sléttu hlaupi. Kristján 4, Danakonungur er talinn fyrstur hafa útbúið hermenn sína riffl- um og hugsanlegt er að Jón Indíafari hafi bæði séð þá og notað er hann var í þjónustu hans. Frásagnir greina frá hátíðlegum skot- keppnum á síðar; hluta 15. ald.ar þar sem greint er milli keppenda sem notuðu riffla og hinna sem skutu með óriffluð- um byssum. Þegar 'haft er í huga að samkvæmt reglum í sumum keppnis- greinum var færið haft yfir 800 fet og markið ekki stærra en 314 fet á hvem veg og skotið standandi á það sést að hér hafa engir Klaufar verið að verki. Rifflar með aftanhlöðnum hjóllás voru einatt búnir til handa skyttum sem ekki þurftu að horfa í skildinginn en framhlaðnar tinnulausar byssur voru samt miklu algengari. Gall- inn við fram'hlaðna riffla var hversu erfitt var að reka kúluna r.iður í hlaup- ið ef hún féll þétt í sem hún varð að gera ef rifflurnar áttu að koma að gagni. Menn leystu þennan vanda þó brátt með því að vefja lappa úr tuskum éða skinni uian um kúlu sem var miórri en rif.fl- að hlaupið. Þess háttar kúla var auð- rekin niður í hlaupið og lappinn sem var smurður feiti gegndi því tvöfalda hlutverkj að hreinsa hlaupið er kúlan var rekm niður eftir bví og gefa kúlunni snúning þegar hleypt var af. Frda bét.t þessir r:fflar væru furðu- lega nákvæmir og auðveldir í meðför- um kusu margir veiðimenn heldur byss- ur með óriffluðu hlaupi. Ein ástæðan var sú að þær voru ódýrari, önnur að í þær mátti nota bæði kúlur og högl á víxl, en riffluð hlaup fara mjög illa með haglahleðslu og auk þess voru ó- riffluðu hlaupin nægilega nákvæm til ]2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 26. nóvember

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.