Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1967, Qupperneq 6
FEDORENKO
P
* astafulltrúi Rússlands á þingi
Sameinuðu þjóðanna í New York
hlýtur ætíð að draga að sér athygli
heimsins. Þess er skammt að minn-
ast, er Andrei Vishinsky gegndi
embættinu og flutti litríkar skamm-
arræður sínar í fundarsölum
S. Þ., og síðar sýndi Valerian
Zorin þar ósveigjanleik sinn á eftir-
minnilegan hátt. Nú er það eftir-
maður Zorins, sem athyglin beinist
að. Hann heitir Nikolai Trofimo-
vich Fedorenko fullu nafni og er
sérfræðingur í kínverskum orðs-
kviðum. Vopnaburður hans á þingi
Sameinuðu þjóðanna einkennist af
bitru háði, fyrirlitningu og hnýfil-
yrðum. Þegar hann ásakar andstæð-
„ inga sína um tvöfeldni, gerir hann
þeim upp orðin á eftirfarandi hátt:
„Þetta er ekki kameldýr, þetta er
hestur — hestur með hnúð á bak-
inu“. Hann reykir oft pípu með
bognu munnstykki, og þegar hann
tekur hana út úr sér er það til þess
að leyfa brosi að brjótast fram. Einn
af eftirlætisorðskviðum Fedorenkos
er á þessa leið: „Þegar ljónið ber
bráð sína, er óskynsamlegt að gera
ráð fyrir að það sé að brosa,“ en
þeir sem bezt þekkja til, segja að
þetta eigi ekki við Fedorenko sjálf-
an, því að hann sé líkari ref en
ljóni. Hann er hár maður á velli,
grannur, hárprúður nokkuð og hár-
ið ögn farið að grána. Hann ber
hornspangargleraugu við lestur og
gengur oft í gráum fötum með þver-
slaufu. Hégómaskapur verður ekki
merktur í fari Fedorenkos, segir í
nýlegri grein, sem um hann hefur
verið rituð. Og bætt er við: Brosið
á andliti hans kann að vera einbert
háðsglott og það er ekki víst að hann
sé að sýnast með því. Háðið virðist
vera honum eðlislægt.
]N"ikolai Fedorenko er fæddur 9.
nóvember ári'ð 1912 í borginni Pyati-
gorsk í norðurhluta Kákasus. Þangað
leggur hann enn leið sína öðru hverjú
til að heimsækja móður sína, sem enn
er á lífi. Umhverfi Pyatigorsk er byggt
fleiri en einum þjóðflokki og enda þótt
Fastafulltrúi
Rússa hjá
Sameinuðu
þjóðunum
nafn Fedorenko-fjölskyldunnar sé af
úkraínskum uppruna, þá er fjölskyldan
rússnesk að uppeldi og menningarerfð-
um. Faðir Nikolais var smiður að at-
vinnu og tók þátt í baráttu rauðliða í
borgarastyrjöldinni, sem fylgdi á eftir
byltingunni 1917.
egar í barnaskóla varð Fedor-
enko þátttakandi í samtökum kommún-
ista, fyrst í barnasveitum, en síðar í
unglingasveitum Kommúnistaflokksins
rússneska. Hann tók á þeim árum þátt
í almennri herferð gegn menntunarleysi,
fer’ðaðist um sveitahéruðin og kenndi
bændum að lesa og skrifa. Um upp-
skerutímann gekk hann að því með öðr-
Fedorenko ræðir hér við tvo háttsetta menn frá heimalandinu, Kosygin, forsætis-
ráðherra, til vinstri, og Gromyko, utanríkisráðherra, á miðri mynd. Umræðuefnið
kvað vera vandamál ríkjanna í Austurlöndum nær.
um drengjum, sem þátt tóku í þessu
fræðslustarfi, að bjarga uppskeru ná-
lægra héraða í hús fyrir veturinn. Fe-
dorenko hefur ánægju af því að rifja
upp bernskuárin og hann minnist þess
frá þessum árum, er hann tók þátt í því
í mótmælaaðgerðum að brenna eftir-
mynd af Chiang Kai-shek, eftir að hann
sagði skilið við kommúnista á Kuomin-
tang 1927. Fedorenko kveðst hafa rifjað
þetta upp er hann hitti Chiang Kai-
shek í Kína á dögum seinni heimsstyrj-
aldarinnar, og þá ekki fundi'ð til neinn-
ar iðrunar.
Mr egar Fedorenko hafði lokið und-
irbúningsnámi, fékk hann vinnu á við-
gerðarverkstæði dráttarvéla í Pyati-
gorsk sem aðstoðarmaður. Hann hefur
sagt svo frá síðar, að helzta viðfangs-
efnið þar hafi verið verksmiðjugalli á
strokkhausum Fordsondráttarvélanna.
Venjuleg málmsuða kom ekki að haldi
vi'ð viðgerð strokkhausanna, svo að
verkstæðisformaðurinn fann upp nýja
aðferð, sem dugði og þessa aðferð
kenndi hann Fedorenko. Mörgum ár-
um síðar hitti Fedorenko Henry Ford
II. að máli í Bandaríkjunum og þá
ámælti hann honum fyrir þessa göll-
uðu strokkhausa á Fordson-dráttarvél-
unum.
F edorenko virðist á þessum ár-
um hafa verið efnilegur unglingur, er
þeir, sem til þekktu, bundu vonir við.
Því var það, að kommúnisku æskulýðs-
samtökin og formaður vi'ðgerðarverk-
stæðisins studdu hann til frekara náms.
Fyrst komst hann að sem lærlingur í
flugvélaiðnaði og þar sem hann sýndi
mjög góðar stærðfræðigáfur, var honum
gert kleift að halda áfram til enn frek-
ara náms. En á þessu stigi námsins
breytti Fedorenko til um viðfangsefni
og tuttugu og fimm ára að aldri útskrif-
aðist hann úr deild austrænna mála við
Moskvuháskóla. Þetta var verulegur
áfangi, en Fede,r,enko komst að raun um
að stærðfræðikunnátta hans kom honum
a'ð gagni við enn frekara nám í kín-
versku og fimm árum síðar varði hann
doktorsritgerð er fjallaði um rannsókn-
ir í kínverskri málfræði.
Arið 1938 hóf Fedorenko störf sin
í utanríkisþjónustunni og næstu tólf ár-
in var hann lengstaf í Kína. A þessum
árum safnaði hann efni í um það bil
hundrað greinar og bækur um kín-
verskar bókmenntir. Kunnugir telja, að
hann hafi á þessum árum einnig komið
fleiru til leiðar. Þannig telur André
Malraux, franski menntamálaráðherr-
ann, sem um eitt skeið var félagsmað-
ur í Kommúnistaflokki Kína og dvaldist
þar samtímis Fedorenko, að sá síðar-
nefndi hafi átt drýgstan þátt í því a'ð
koma Mao Tse-tung til valda árið 1949.
Framhald á bls. 14
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
10. september 1967