Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1965, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1965, Blaðsíða 7
Bandarískir unglingar til Islands á vegum ASF M ÞESSAR ntuiulir dvelj- ast hérlendis íjórir bandarískir unglingar á vegum AFS — Amcrican Field Service. Starf- nemi AFS er öllum að góðu fcunn, en hún miðar að því að veita íslenzkum ungmennum Btyrk til ársdvalar í Bandaríkj- unum. Til þess að endurgjalda gestrisni Bandaríkjamanna tek- nr hið íslenzka AFS-félag á móti nokkrum bandariskum unglingum á sumri hverju og Itefiir milligöngu um að sjá þeim fyrir tveggja mánaða vist lijá íslenzkum fjölskyldum. Bandarísku unglingarnir, sem valizt hafa til íslandsferðar að þessu sinni eru Chris Hammer, en hún dvelst í Borgarnesi, Ronald Ferris, sem dvelst á Reykhólum í Austur-Barða- strandarsýslu, Mary Ann Adams, sem dvelst í Reykjavík og Gail George, sem dvelst einn ig í Reykjavík. Þau komu til Reykjavíkur í ofanverðum júnímánuði og hafa látið mjög vel yfir dvöl sinni hér á landi, enda hafa gestgjafar þeirra séð um, að dvöl þeirra verði sem ánægju- legust. Heimleiðis halda þau í byrjun september. Meðan á íslandsdvöl þeirra stendur munu þau ferðast um landið og njóta þar leiðsagnar forráðamanna AFS hérlendis, en núverandi formaður er Vil- hjálmur Vilhjálmsson. Þess má geta, að 11. ágúst n.k. munu þau verða viðstödd árshóf AFS, og hitta þar íslenzk ungmenni, sem notið hafa styrkja AFS. A lls hafa nú 109 íslenzk ungmenni dvalið árlangt í Bandaríkjunum á vegum Ame- rican Field Service, en hingað til lands hafa komið 14 banda- riskir unglingar til tveggja mánaða dvalar. Hinn 14. ágúst n.k. munu 18 íslenzkir ungling- ar halda vestur um haf og dveljast þar í eitt ár á vegum AFS. Myndin var tekin daginn sem bandarisku unglingarnir komu til íslands. í baksýn sér á Keili. Skipaður ritstjóri Hóskólo- bloðsins PILTCKINN á mynðinni heitir Sigfús Kogich, og hann stundar nám í blaða- mennsku við háskólann í Nevada í Bandaríkjunum. Okkur barst nýlega úrklippa úr bandarisku blaði, þar sem þess er getið, að Sigfús hefði verið skipaður ritstjóri há- skólablaðsins, sem nefnist „Sagebrush“, en slíkt þykir jafnan mikill sæmdarauki. Virðingarstöðu þessa hefur Sigfús hlotið sakir góðrar frammistöðu, sem hann hef- ur sýnt i náminu. Sigfús er ættaður frá Vest. mannaeyjum, sonur Ragn- heiðar Árnadóttur, en móð- urafi hans er Árni Sigfússon. Myndin var tekin um síð- ustu jól, eins og sjá má. Sig- fús stendur þarna við fagur- lega skreytt jólatré. Teikningar eftir Jörgen Knudsen LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7 25. thl. 1065

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.