Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1961, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
355
Loft á tunglinu
ÞAÐ var á köldu kvöldi suður
í Texas. Við vorum nokkur á
gangi úti á víðavangi. Loft var
heiðskírt og tungl í fyllingu. Við
staðnæmdust stundarkorn og
horfðum á það. Þá sagði ein
stúlkan: „Svei mér þá ef ekki er
svo bjart að maður getur vel
séð að ekkert loft er á tunglinu".
Nú, þetta var nú ekki annað
en það sem allar kennslubækur
hafa sagt, síðan Giovanni Batista
Riccioli ritaði „Almagestum nov-
um“ árið 1651: Það er ekkert loft
á tunglinu! Og þótt nútíma
stjörnufræðingar tali um loft á
tunglinu, þá kemur það ekki í
bág við þetta, enda þótt svo sýn-
ist í fljótu bragði.
Hér er allt undir því komið
hvaða skilning maður leggur í
„loft“. Ef átt er við lífsloft, þá
er það ekki til á tunglinu. En sé
átt við loft í þeirri merkingu sem
vísindamenn leggja í það orð:
samsafn gaseinda á yfirborði ein-
hvers hnattar — þá er loft á
tunglinu.
Annars er þetta mjög merki-
legt loft. Menn halda að það sé
samsett af hinum svonefndu „fá-
gætu gastegundum“, sem hafa
þann eiginleika, að þær blandast
ekki saman, og blandast ekki
neinu.
Vegna þess, sem á eftir fer,
er nauðsynlegt að nefna þessar
gastegundir og geta um eðlis-
þyngd þeirra (atomþunga).
Helium (He) atomþungi 4.0
Neon (Ne) 20.2
Argon (A) 39.9
Krypton (Kr) ... 83.7
Xenon (Xe) 131.3
Radon (Rn)
Radon var upphaflega nefnt
Niton (skínandi), en nafninu var
síðar breytt til þess að sýna
skyldleika þess við radium.
Ástæðan til þess að getið er um
atomþungann, er þessi: Þegar
hiti vex, þá eykst útþensla og
hraði sameinda (eða atoma) gas-
efnanna, og þá einkum hinna
léttari. Og ef hitinn er nógu mik-
ill, þá geta gasefnin komist út
fyrir aflsvið tunglsins og horfið
út í geiminn, og þá auðvitað létt-
ustu efnin fyrst.
Nú er það kunnugt, að hitinn
á tunglinu getur orðið 135 stig á
Celsius. Og dr. Harold C. Urey
hefir reiknað, að við slíkan hita
geti tunglið ekki hamið gasteg-
undir sem eru undir atomþunga
60. —
Eftir því að dæma, helzt tungl-
inu ekki á þremur fyrst nefndu
gastegundunum. En svo er rad-
on sér í flokki. Það er geislavirkt
og geislar sér út að hálfu á 3.85
dögum, svo að það hverfur á
skömmum tíma af sjálfu sér. Þess
vegna getur varla verið um aðrar
gastegundir að ræða á tunglinu,
en krypton og xenon. Aðallega er
það xenon, því að af því fram-
leiðast á tunglinu um 5000 millj-
ón atom á sekúndu. Framleiðsla
kryptons er svo miklu minni, að
segja má að í „lofti“ tunglsins sé
xenon 95% en krypton ekki nema
5%. —
Geislavirkni framleiðir stöðugt
helium, en það er svo létt, að
tunglið getur alls ekki haldið í
það. Neon er líka of létt. En þótt
argon nái ekki því marki, sem
dr. Urey setur, þá hefir það þó
atomþunga um 40, og svo er hita-
stigið 135 reiknað heldur hátt.
Argon mun myndast við útgeisl-
un á geislavirkri pottösku, og dr.
Isaac Asimov hefir reiknað, að
3600 grömm af pottösku muni
eyðast á hverri sekúndu. En 11%
af því magni breytist í argon, og
þá ætti að myndast um 400 gr.
af argon á hverri sekúndu. Og
enda þótt mestur hluti þess muni
leita út í geiminn, þá er þó altaf
eitthvað eftir, svo að óhætt mun
að fullyrða að í „loftinu" á tungl-
inu sé argon, krypton og xenon.
Og enn mætti jafnvel bæta við
kolsýrlingi.
í fyrra þóttust Rússar verða
varir við eldgos á tunglinu. Ensk-
ir og bandarískir vísindamenn ef-
uðust ekki um að Rússar hefði
séð eitthvað er líktist eldgosi, en
heldu því hins vegar fram, að
þar mundi hafa verið um út-
streymi kolsýrlings að ræða og
það hefði verið svo aflmikið, að
það hefði þeytt mekki af ryki
upp í loftið, og þess vegna sýnst
efnismeira en það hafi í raun og
veru verið.
Atomþungi kolsýrlings er 44,
eða litlu meiri en argons. Þess
vegna gildir sama um kolsýrling-
inn, að hann rýkur ekki allur út
í geiminn á andartaki, heldur
mun altaf vera eitthvað af hon-
um í „lofti“ tunglsins. Kolsýrling-
urinn hlýtur að vera kominn úr
iðrum tunglsins og þess vegna er
sennilegt að hiti sé enn. inni í
tunglinu, en það er þó ekki nema
ágiskan.
Það má víst lengi þrátta um
hve þétt þetta „loft“ úr krypton
og zenin, og ef til vill argon og
kolsýrlingi, muni vera á tunglinu.
En sýnishorn af því næst ekki
með því að senda þangað gervi-
tungl, er fari mjög nærri t.ungl-
inu. Menn verða sjálfir að fara
þangað að sækja það.
(Úr „Galaxy")