Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1959, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
103
sagði: „Það er gleðilegt að nú get-
ur maður farið að ganga á burst-
uðum skóm!“ Þetta var vorgleðin
hans eftir umhleypingasaman vet-
ur.
Á. Ó.
Djúp borholo
DÝPSTU borholur hér á landi eru
um 750 metra, og nú er gert ráð
fyrir því að bora hálfu dýpra. En
hvað er það á móti þeirri borholu,
sem vísindaráð Bandaríkjanna er
nú að undirbúa.
Þessi borhola á að verða allt að
því 5 km. djúp og verður grafin
á sjávarbotni, en ekki enn ákveðið
hvar. Þó er talið líklegast að hún
verði grafin í Mexíkó-flóa, norð-
vestur af Kúbu, því að þar er veðr-
átta einna bezt.
Holan verður ekki boruð til þess
að ná í jarðhita, heldur til þess að
rannsaka yzta skurn jarðar og
komast niður úr basaltlaginu.
Þykjast menn með þessu móti geta
fengið margvíslegar og mjög áríð-
andi upplýsingar um það hvernig
jörðin myndaðist, hve þétt hún er
í eðli sínu, hvernig jarðlögunum er
háttað, hve gömul jörðin muni
vera og hve geislavirkt er hið innra
efni hennar. Þá þykjast menn og
munu geta fengið upplýsingar er
veiti betri skilning en áður á eðli
jarðskjálfta og jarðbylgjunum, sem
þá rísa.
Gert er ráð fyrir að hafskip verði
látið bora holuna, og verður til
þess beitt allri nýustu tækni.
Hafa hðlðstjörnur
VÍÐA eru stór svæði á jörðinni
þakin örsmáum glerungum, sem á
vísindamáli eru nefndir „tektites“.
Hafa verið mjög skiptar skoðanir
um hvernig á þessu standi og hefir
t. d. mikið verið um þetta ritað
í brezka vísindaritið „Nature“. Þar
hafa verið bornar fram ýmsar
kenningar um uppruna þessara
glerungsagna. Sumir hafa haldið
því fram, að glerungurinn hafi bor-
izt hingað frá tunglinu eftir að
stórir loftsteinar hafa fallið. á það.
Aðrir hafa mælt því í mót.
Nú hefir bandaríski Nóbelsverð-
launamaðurinn dr. Harold C. Urey
haldið því fram að líkindi sé til
þess að glerungurinn hafi myndazt
við það, að halastjörnur hafi rekizt
á jörðina. Kjarninn, eða hausinn
á halastjörnum er svo þéttur, að
við árekstur á jörðina mundi verða
Nýtt frumefni
FRUMEFNIN eru skrásett eftir eölis-
þyngd. Þannig er úran 93 og j)lútóm-
um 9If. Síöan kjarnorkurannsóknir
hófust, hefir geislarannsóknastöö há-
skólans í Kaliforníu fundiö ný frum-
efni, svo aö tala þeirra er komin upp
í 102. Aö vísu vantaöi þar tvö frum-
efni inn á milli, 98 og 99. Nú hefir
rannsóknastööin fundiö frumefni 98
og kallar þaö „californium“. Þetta er
þyngsta frumefniö sem tekizt hefir
aö framleiöa svo, aö þaö sé sýnilegt
berum augum og hœgt oð vega þaö.
Af hinum efnunum hefir fundizt svo
lítiö ,aö ekki hefir veriö hœgt aö mœla
þau, menn hafa aöeins oröiö þeirra
varir meö mœlitœkjum sínum.
Búist er viö því aö „californium“
muni hafa mjög mikla þýöingu þegar
aö þvt kemur aö menn fara aö beizla
vetnisorkuna, því aö þaö geti gefiö
rekizt á jörhina?
álíka sprenging og ef miljón
kjarnasprengjur, eða fleiri, væri
sprengdar í einu. Dr. Urey segir
að það sé alls ekki ósennilegt að
halastjörnur hafi rekizt á jörðina,
og við hitann af árekstrinum gæti
þá hæglega hafa myndazt glerung-
ur, líkt og á söndunum hjá Alamo-
gordo í Nýu Mexíkó, þegar fyrsta
kjarnasprengjan var sprengd þar.
Hann segir að við árekstur hala-
stjörnu geti myndast svo ofsaleg-
ur hiti að halastjarnan leysist upp
í gufu, en jafnframt mundi hitinn
bræða jarðlögin og þau tvístrast í
allar áttir undan ofurmagni
sprengingarinnar. Á þennan hátt sé
hægt að gera sér grein fyrir hvern-
ið stendur á glerungnum (tektites)
sem dreifzt hefir víðs vegar um
jörðina.
mikilsveröar upplýsingar um ýmis-
legt, sem enn er óskiljanlegt um sam-
runa atómanna.
Röddin kemur upp um manu
Dr. PAUL MOSES, prófessor við
Stanford háskóla sagði nýlega í ræðu
sem hann flutti á þingi sálfræðinga,
að læknar ætti að geta séð það á
göngulagi, svip og framkomu sjúklinga
sinna hvort þeir væri veilir á geðs-
munum. En þó væri öruggasta ráðið
að athilga vel málfar þeirra, í hvaða
tón þeir tala, hvernig þeir leggja
áherzlur á orðin og hvernig þeir anda
á meðan þeir tala. Með athugun á
þessu geti læknar komizt að því hvort
sjúklingur þjáist af kvíða, gremju eða
sektarmeðvitund — eða þá hvort hann
er laus við alit þetta.