Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1959, Blaðsíða 10
104
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ið af laufura vatnahnetujurtar-
innar, og Ahmed sagði að þar
mundi verða góð uppskera og bæta
bændum upp tjónið af vatnavöxt-
unum. Vatnshnetur eru taldar sæl-
gæti í Kashmír og seljast háu
verði.
Á þessum slóðum heitir Líkavík,
enda er sagt að lík allra manna,
sem drukkna í vatninu, berist
þangað. Ræðararnir sögðu mér, að
ef eg kafaði þarna, mundi mér ekki
skjóta upp framar.
Helgir menn,
Hvarvetna í Indlandi rekst mað-
ur á „sadhus", eða hina helgu
menn Hindúa, sem hafa helgað alla
ævi sína bænum og hugleiðslu. Á
vorin safnast fjöldi þeirra saman
í Srinagar til þess að taka þátt í
pílagrímsgöngunni til Amarnat-
hellisins, sem er þar uppi í fjöllum,
en þangað er um 140 km. leið. —
Ferðalagið er hnitmiðað þannig, að
pílagrímarnir komi til hellisins
snemma morguns þegar miðsum-
arstunglið er fullt.
Við komum þar sem pílagrím-
arnir voru að leggja á stað frá
musteri nokkru. Það var síðla dags
og í rigningu. Þarna sátu þeir allir
og hreyfðu sig ekki. Jörðin var
blaut, en þeir höfðu náð í spýtu-
kubba til að sitja á. Svo leið lang-
ur tími. Þá gullu sekkjapípur við
og „skozk“ hljómsveit lagði á stað.
Næst henni fóru opinberir eftirlits-
menn með rauða túrbana. Þar
næst komu prestar Bawan muster-
isiiis með helga dóma, og seinast
fóru svo hinir helgu menn, allir
með bagga á baki og betliskálar í
höndum.
Nokkrum dögum seinna fórum
við á eftir þeim í bíl og náðum
þeim upp hjá Shishavatni, sem er
í 12000 feta hæð. Þar var nístings-
kalt. Flestir þeirra voru mjög lítt
klæddir.-----
Ólík þessu var minningarhátíð
Múhameðsmanna, sem haldin er á
árstíð Husains, sonar Ali, tengda-
sonar spámannsins. Skrúðgangan
lagði á stað frá musteri nokkru
í steikjandi hita og ryki. Áhorf-
endur voru svo margir, að fylking-
in átti örðugt að komast áfram.
Hvítur hestur var með í förinni,
skreyttur mjög, og bar hann eftir-
líkingu af hönd Husains og var hún
úr skíru gulli. Hinir sanntrúuðu
voru yfirleitt í svörtum kuflum og
sungu um Husain konung í Med-
ina, en hljóðfæraleikararnir börðu
sér stöðugt á brjóst. Eftir stutta
göngu staðnæmdist hópurinn og
myndaði hálfhring, söngurinn varð
ákafari og menn börðu sér tíðar
á brjóst. Þá kom annar hópur og
voru þeir menn berir niður að
mitti og alblóðugir eftir sár, sem
þeir höfðt| veitt sér sjálfir með
hnífum. Nú var haldið áfram og
farið hægt, þar til komið var á
áfangastað. Þá var hryllileg sjón
að sjá hina hálfberu menn. Eg
kannaðist við suma þeirra, það
voru kaupahéðnar af torginu. Nú
var augnaráð þeirra æðisgengið og
þeir skeyttu ekkert um sár né
blæðingar.
Áhorfandi hvíslaði að mér: „Þú
mátt hvorki brosa né hlæa að
þeim. Þetta er helgur dagur er
vér minumst píslarvættisdauða
Husains. Þetta er hryggðardagur".
Á svölum nokkrum stóð blá-
klædd kona. Um leið og hópurinn
fór fram hjá, lamdi hún höfðinu
við trjábol og fell veinandi niður.
Hún var tryllt af sama trúarof-
stækinu og hinir.--------
Þrátt fyrir þetta er margt fag-
urt að sjá í Kashmir. Hinir miklu
og fögru garðar keisaranna fornu,
eru nú almenningsgarðar, og þar
safnast Múhameðsmenn og Hindú-
ar saman eins og bræður. Eg varð
aldrei var við nokkra óvild á milli
þeirra.
Hindúi nokkur sagði mér, að
Múhameðsmenn hefði skotið
skjólshúsi yfir sig þegar vopnaðir
óaldarflokkar fóru þar yfir 1947,
falið sig og fætt sig þangað til
hættan var liðin hjá.
„Sagt er að slíkt mundi ekki geta
gerzt í öðrum löndum“, sagði hann.
„En í Kasmhir eru allir vinir“.
Yngingarefni
MENN hafa orðið þess varir, að í
sumum skordýrum er „hormón“,
sem veldur því að skordýrin vaxa
án þess að eldast, eða með öðrum
orðum, þessi „hormón“ heldur
þeim síungum. Nú hafa tveir vís-
indamenn ^ið Cornell-háskólann í
Bandaríkjunum, þeir Howard A.
Schneiderman og Lawrence I. Gil-
bert, tilkynnt að þeir hafi komizt
að því, að þessi „hormón“ muni
sennilega vera- til í öllum skepn-
um. Þeir hafa náð þessu efni úr
nýrnahettum nauta og reynt það
með góðum árangri á skordýrum.
Þetta efni hefir einnig fundizt i
marglyttum. Þess vegna er talið að
það muni vera til í öllum skepn-
um, frá þeim lægstu til hinna
æðstu. Efnið hefir þó ekk'i enn
verið reynt á spendýrum, svo að
menn vita ekki hvort það kann að
hafa þau áhrif þar að dýrin eldist
ekki.
Sjónvarp er eftirsótt
I AMERÍSKA blaðinu „Television
Factbook" stendur nýlega, að sjón-
varpstæki sé nú á 42.400.000 heimilum
í Bandaríkjunum, en það eru 84% af
öllum heimilum þar. Sums staðar eru
fleiri en eitt taeki á heimili.
Til samanburðar er þess getið, að
baðker sé til á 41.500.000 heimilum, og
39.000.000 heimili hafi síma.
Það eru ekki nema 12 ár síðan sjón-
varpið kom til sögunnar, en eftir þessu
að dæma þykir það nú nauðsynlegra
en baðker og sími.