Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1951, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1951, Blaðsíða 2
204 ^ LESBÓK MORGUNBLADSINS sfraumnum, sem fellur meftfram strönd Austur-Grænlands. Á þeim straumamótum bevgir Irmingerstraumurinn í suðvestur, kemst fyrir Hvarf á Grænlandi og inn á fiskimiðin við V-Grænland. Áður en straumur þessi skilur við ísland, klofnar kvísl úr honum, er lieldur norður fyrir Horn og austur raeð Norðurlandi. Á sumrin getur þessarar straum- kvíslar orðið vart alla leið austur að Langanesi. En hennar verður cinkum vart með þeim hætti að ' sjórirm. þar sem straumkvísl þessi nær, verður tiltölulega hlýr, og tiltölulega saltur. Áhrifa Irmingerstraumkvíslar- innar gætir þeim mun minna, eftir því sem austar dregur, vegna þess að straumkvíslin blandast strand- vatninu á sjávarborðinu. En kald- ara og ósaltara vatn liggur hið neðra í sjónum undir straumkvísl- ; inni. McgjjulUuti Golfstraumsins renn- ur áfram inn í Noregshaf norður *•■«•••• *"-@sjp . með Noregsströnd. Nokkur hluti hans kemst langt inn i Norðurhafið. En vegna grunnsævisins milli Sval- barða og Noregs beygir straumur- inn til vesturs er þangað kcmur og blandast straumnum, sem rennur suður mcð A-Grænlandi í áttina til íslands. A-Grænlandsstraumurinn flytur með sjer vatn af ýmsum uppruna norðan úr Norðurhafinu. Straum- ur þessi er kaldur, 0—2 gráður og lítið saltur. í honum eru 24.6— í>4.9 grömm af salti i hverju kg. sjávarvatns. Áður en straumur þessi kcmst suður fyrir ísland, verður grunn- sævishryggiuinn milli íslands og Grænlands á vegi hans. Hann skiptist þess vegna. Önnur kvísl hans beygir til suð-vesturs með- fram Grænlandsströnd. Hin kvíslin rennur til austui’s milli ísiands og Jíw Mayea, Þcssi síðastnefnda straumkvísl hefur fengið nafnið A-íslands- straumur. Fyrsti maður, sem benti á hann, var danski sjóliðsforinginn Irm- inger á miðri 19. öld, en Friðþjófur Nansen og Björn Helland Hansen gerðu mjög ítarlegar athuganir á þessum straumi sem og straumun- um í öllu Noregshafi um og eftir síðustu aldamót Nú eftir heimsstyrjöldina siðari hafa íslcnskir og norskir fiskifræð- ingar gert nánari mælingar á þcssu svæði. Þessum straumi hefur verið veitt svo mikil athygli á siðari ár- um vegna þeirra áhrifa er hann virðist hafa á síldargengdina fyrir Norðurlandi á sumrin. Austur-íslandsstraumurinn þekk- ist cins og áður er sagt á þvi, að i honum er tiltölulega lágt hitastig og lítið salt. Á uppdrættinum scm hjer fylgir sjest hvernig jafnhitalínurnar teygja sig til suð-austurs í áttina að Færeyum. Hjer er kalda vatnið norðan úr A-Grænlandsstraumn- um á ferðinnL Við sjáum að 35.00'co scltulínan er einnig tungulöguð á sama hátt og jafnhitalínurnar. — Þetta kalda og lítt salta vatn leit- ar niður á við og blandast hlýrra og saltara vatni Golfstraumsins er sunnar og austar dregur. Skilin eru þó oft mjög greinileg milli kalda og hlýa sjávarins. Hitinn getur oft lækkað um margar gráður á til- tölulega stuttri vcgalengd. Kalda vatnið flytur með sjcr ýmiskonar næringarsölt, fosföt, nitröt o. fl, scm nauðsynleg cru þörungagróðr- inum, norðan úr dimmu heim- skautahafsins suður i sólrikara haf. Á straumamótunum vcrður gróð- urinn mestur. Þar eru þvi jaínan best „beitilönd“ fyrir nytjafiska hafsins. Samskonar straumamót og þau, cr uú liafa verið ncfnd, eru cinnig iyrir uurðau og ve&tim islaud. — Straumtungan austur af íslandi er fyrirbrigði, sem alltaf er til staðar. En hún breytir um lögun eftir árs- tíðum og nær misjafnlega langt suður eftir frá ári til árs. Það yrði of langt mál að gera nánar grcin fyrir þessu hjer, eða hvað menn álíta að muni vera orsakir til þess- ara breytinga. Aðeins má nefna, að menn líta svo á, að breytingar á vindstöðu og loftþyngd eigi sinn þátt i þessu. TÐLGATUR UM ÁHRIF KALDA SJÁVARINS Á SÍLDARGÖNGURNAR SÍLDARLEIT rannsóknarskipsins norska G. O. Sars hefur fært mönn- um heim sanninn um að síldin heldur sig í köldum sjó á veturna. (Sjá Lesbók Mbl. 18. febr. s.l.). Hjer skal nú lcitast við að gcra grein fjnir nýustu tilgátum um göngur hafsíldarinnar á sumrin, er ræður úrslitum um það, hvort mik- il cða lítil síld kemur á miðin fyrir Norðurlandi. En hjer er aðeins um tilgátur norskra sildarfræðinga að ræða, sem bygðar eru á reynslu og athugunum síðustu ára. Rannsókn- ir komandi ára munu skera úr um það, hvort tilgátur þessar reynast rjettar. Við verðum að hafa það hugfast að síldin er uppsjávarfiskur. Hún cr ekki bundin við strendur eða grunnmið á sumrin. Það er einkum tvent, sem ræður úrslitum um það, hvar hún heldur sig, sem sje ætið í sjónum og sjávarhitinn. Síldin leitar í hlýjan sjó á surnrin þcgar hún cr að fita sig. Með þvi móti vcrður öll lifsstarfsemi hennar hraðari. Samtimis er hún í leit að æti. Báöum þessum skilyrðum er fuUnægt á mótum kalda og hlýa sjávarins. Þar fer saman mikil áta og hlýr sjór. Þetta er nú alt gott, svo langt scm það nær. En sá hængur er á, að ^trauxuamoLu exu akaflega lciug

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.