Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1948, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1948, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21 ir. Juku þeir tekjurnar af jörðjnni ár frá ári. BÆRINN KAUPIR LAUGARNES Leið nú og beið íram til ársins 1872. Þá gekk í gildi (20. apríl) ný bæjarstjórnartilskipan og varð sú breyting á, að bæjarstjórn fekk miklu meira vald en áður yfir sínum eigin málum. Þá um haustið buðu eigendur Laugarness bænum jörðina fyrir 3000 rd., en því var ekki sinnt í bráð. Bæjarbúar voru nú orðnir um 2000 og fói; þeim ört f jölgandi. Og eftir því sem bærinn óx, því meiri nauðsyn var honum á því að færa út kvíarnar og eignast næstu jarðir. í öndverðum janúarmánuði 1885 fóru fram bæjarstjórnarkosningar og hlutu þessir kosningu: Björn Jónsson, ritstjóri, Guðmundur á Hól, Jón Ólafs- son, ristjóri, Páll Þorkelsson, gullsmið ur, Jón O. V. Jónsson, kaupmaður og síra Eiríkur Briem. Þessari bæjarstjórn tókst að ná kaupum á Laugarnesi og Kleppi og mátti þar um segja að lokið væri 30 ára stríði, því að kalla mátti að kaup • in hefði allt af verið á dagskrá síðan Helgi^biskup fluttist frá Laugarnesi 1856. Kaupverðið var 10.200 krónur og byrjaði bærinn á því þegar um sumarið að gera veg inn í þvottalaug- arnar og fekk hann nafnið Laugaveg- ur. V V ~Jleilrœ&i ölmnn iönct HJALTLAND A T L * A/ T / \ C SmnAiio’ « t**" m ' 'V W. GRAHAM í stórri verksmiðju í Bandaiíkjun- um er þetta skráð á spjald með stór- um stöfum: — Vinn þú trúlega og áhyggjulaust þínar 8 stundir á dag. Þá getur vel verið að þú verðir gerður að forstjóra og fáir að vinna 18 stundir á dag og hafa allar áhyggjurnar af verksmiðju- rekstrinum. Þ.AÐ var sú tíðin, að íslendingar voru ekki ókunnir á Hjaltlandi- Margir af Iandnámsmönnum höfðu dvalist þar. Eyjarnar voru bygðar norrænúm mönnum og samgöngur voru fyrstu aldirnar milli Hjaltlands og íslands. En — það er langt síðan þetta var og nú vita íslendingar lítið um lifnaðar- hætti þar á eyjunum, enda þótt þar búi frændur vorir og flest örnefni sje þar af norrænum uppruna. ★ Þegar seinni heimsstyrjöldin hófst, v.ar einn af hinum óvæntu atburðum sá, að Þjóðverjar gerðu loftárás á Hjaltland. Og þegar frjettin barst um það, ráku margir upp stór augu og spurðu: „Hjaltland — hvar er það?“ Og það var von að menn spyrðu, því að litlar sögur hafa af Hjaltlandi íarið, .og á flestum landabrjefum, sem ætluð eru almenningi, eru þær tákn- aðar aðeins með nokkrum svörtum punktum, norðaustur af Orkneyjum og Skotlandi. Eyjarnar eru margar, líklega um hundrað að tölu. Ein þeirra, Hjalt- land, er lang stærst. Hún er um sextíu enskar mílur frá norðri til suðurs. Sá, sem ætlar sjer að ferðast til Hjaltlands, fer annað hvort með skipi frá Aberdeen eða þá með flugvjel. Sje sjóleiðin farin, er það sextán stunda ferð. Flugvjelarnar fara ýmist frá Aberdeen eða Inverness og .þær eru tæpar tvær stundir á leiðinni. Skemti- legra þykir fyrir þá, sem ekki eru sjó- veikir, að fara með skipi, því að inn- siglingin á milli eyjanna er mjög til- breytingarík. Leirvik er stærsta þorpið á eyjunum og blandast þar einkennilega saman gamli og nýi tíminn. Allar götur í gamla hlutanum eru steinlagðar og svo þröngar víða að sá, sem stcndur á miðri götu ,og rjettir út hcndurnar, getur snert húsin báðum megin. Syðst við höfnina standa gömul hús á stólpum úti í sjónum, en að baki þeirra eru ýmsar byggingar, sem hafa f

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.