Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1944, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1944, Page 1
Mh 36. tölublað. JltogiiiiHftto im Sunnudagur 11. nóvember 1944 XIX. árganguc. Ii old*rpr»nt»ml4)* fe-A onann Gu jaaaar afóáon: SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ skáld í Reykjavík I. FORMÁLSORÐ. JÓN BORGFIRÐINGUR skrif- aði eins og kunnugt er mjög grein- argóða og nákvæma ævisögu Sig- urðar Breiðfjörðs. Viðaði hann efni víða að. Enda þótt þar sje margt tínt til, hef jeg við athugun á frum gögnum varðandi æviferil Sigurð- ar, rekist á ýmislegt, bæði til leið- rjettingar á ævisögu hans og til viðauka við það, sem áður hefir verið um hann skrifað. Gögn þau, sem jeg fer aðallega eftir eru brjefa bækur bæjarfógetans í Reykjavík, skjöl mála þeirra, sem höfðuð voru gegn Sigurði, brjef til og frá stift- amtmanni varðandi Sigurð, brjefa- söfn bæjarfógetans í Reykjavík og brjefabók landlæknis, sem jeg at- hugaði eftir ábendingu Vilmundar Jónssonar landlæknis. .Teg mun hjer á eftir rekja hið helsta af því, sem jeg hef fundið, og er margt smásmugulegt og ef til vill ekki til þess að auka hróður Sigurðar sem manns, en alt um það til fyllri kynningar á honum og hinni raunalegu ævi hans. Sigurður var sjálfur ærið reik- Sigurður Breiðfjörð ull í frásögn um æviatriði sín, og verður því á stundum að gæta var- ygðar við því, sem hann segir í því efni. Árni Þorsteinsson sýslu- maður í Snæfellsnessýslu kemst þannig að orði í vottorði dags. 3. maí 1843, sem hann gaf um Sigurð: ,,í Snæfellsnessýslu embættisskjöl- um og prótókollum er ekki að finna að beykir Sigurður Breiðfjörð hafi nokkurn tíma, fyrri eða síðar, á- kærður eða dæmdur verið um nokk- urt sem helst lagabrot utan ein- asta tvígifting...., og um lífshlaup sitt hefir hann undir frumprófi nefndrar sakar fyrir rjetti þann 12. október 1837 svoleiðis borið: að hann sje fæddur á Skógarströnd og uppalinn þar og í Ilelgafells- sveit til síns 14da aldurs árs, þá. hann siglt hafi til Kaupmannahafn- ar og þar verið í þrjú ár að læra beykishandverk. Svo hafi hann kom. ið til Isafjarðarkaupstaðar 1818 og þar dvalið í 5 ár við höndlunar- þjenustu. Þaðan farið til Stykkis- hólms og dvalið þar 3 ár, stund- um við höndlunarþjenustu í kaup- staðnum, og flust þaðan til Reykja- víkur og verið þar 4 ár og svo far- ið til Vestmannaeyja, og dvalið þar, að sig minni, þrjú og hálft ár, þaðan til Flateyjar á Breiða- firði og verið þar 2 ár, síðan 1 vetur í Kaupmannahöfn, og þar næst 4 ár í Grænlandi og síðan hjer um bil 2 ár í Snæfellsnes- sýslu“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.