Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1936, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
167
í Tröð
Bjart er yfir bænum gamla,
bygðin hvílir vært og rótt;
út við hleinar öldur svamla,
yrjar döggum vorsæl nótt.
#
Gísli’ í Tröð var glanni’ á sjónum,
gætti lítt þótt syði’ á keip,
oftast var hann einn á sjónum,
árum sparn í rastarsveip.
Snemma þótti Gísli geta
grunt og djúpt á miðin sótt.
Jafnan vildu fáir feta
ferðir hans, því langt var sótt.
Oft var talin óhrein leiðin
örla víða’ á boða’ og grunn,
samt í myrkri sigld var leiðin
svona var hún Gísla kunn.
Veðurspárnar vina sinna
virti Gísli einskis hót;
oftast fór hann ferða sinna
fast þ.ótt ýmsir rjeðu mót.
Rendi’ upp bökkum, rauk af báru,
runnu’ í vestri stormadrög,
stigu’ og hnigu’ í steytingsbáru
straumsins kröppu þungu lög.
Einn varð Gísli’ að ausa’ og stýra,
aka seglum til og frá;
fáir þóttu fimar stýra,
furða var hvað skjektan lá.
Þegar brast í röng og reiða,
rykti’ í böndum, stefni’ og kjöl,
skyldi þá við skutinn freyða,
skella’ og lyfta undir kjöl.
Skjektan var sem fugl á flugi,
fast í skautið Gísli dró;
altaf var hann ofurhugi,
enginn veit hvað fleytan dró.
Bridge.
S: D, 9,7.
H:Ás.
T: Ás, 10.
L: K, 6.
S: Ás, 6, 4. I
H: D, Q, 8. .
T: enginn.
L:7,5. ____fl_
S:G,8.
H: K, 10,7,4,3.
T: 7.
L: ekkert.
Grand. A slær út. A og B eiga
að fá 7 slagi.
—-—<-m>—-—
lieilcigur Patrekur.
Lesbókinni hefir borist eftirfar-
andi athugasemd út af grein um
heilagan Patrek, sem birtist í
Lesbók 12. apríl þ. á.
Hvaða helgi Patrekur það var,
sem Orlygur gamli var í fóstri hjá
í Suðureyjum, get jeg ekki fund-
ið. En ekki hefir það verið hinn
frægi St. Patrick, postuli og vernd-
ardýrlingur írlands. því að hann
var þá fyrir löngu dáinn. Hann
lifði að talið er á árunum 373—
463 og er talið að hann hafi átt:
mestan þátt í því að kristna Ir-
land. En Kolumba, sá er þeir Ör-
lygur frændur trúðu á, hefir ver-
ið St. Columba, sem var uppi frá
521—597. Hann var írskur að ætt
og ólst upp í Jriandi, en stofnaði
klaustur í Ióna í Suðureyjum og
starfaði þar lengi að kristniboði.
Þar var hann og grafinn, en bein
hans voru tekin upp eftir heila
öld. Árið 878 var skrín hans með
helgum dómum flutt frá Ióna til
írlands. Þessi flutningur á hinum
helgu dómum Columba, hefir þv.í
verið litlu áður en Örlygur lagði
af stað úr Suðureyjum í för sína
til fslands.
Sbr. Dictionary of National Bio-
graph, Salmonsens Leksikon o. fl
þar á meðal Pears Cyclopæd.a.
Helgi Guðmundsson.
S: 10.
H: 9, 6, 5,2.
T: 9,8.
L: 8.
Skaut er laust og skjekta naustuð,
skorðum grópað fast í jörð.
Gísli hlaut að leiðarlokum
lending heim við Breiðafjörð.
3675 skref og 9 þumlunga mega
Gyðingar ganga lengst á sabbats-
daginn, samkvæmt Talmúd. Rjett-
trúaðir Gyðingar gæta þessarar
reglu enn í dag.
L. K.