Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1932, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1932, Blaðsíða 4
LESBÓK M0R6UNBLAÐSINS 304 Miss Spooner. mönnum aÖ setja met í þolflugi. Þau atluðu að vera einn mánuð á flugi, að minsta kosti og fá bensín frá öðr- um flugvjelum í loftinu. En þau voru ekki nema nokkrar klukkustundir á flugi; þá bilaði einn hreyfillinn af þremur í flugvjelinni. Það var ekki hægt að gera við hann á fluginu og urðu þau því að hætta við fvrirtækið. Miss Salaman, ensk flugkona, fór í langferð 1931 og var mikið um þá ferð talað. Hún flaug frá Lympne til Kapstaðar, 7010 enskar mílur, á 64 klukkustundum og var það þá met. Síðan flaug hún heim aftur. Átti þetta að verða henni til ævarandi frægðar, t'v svo kom það upp úr kafinu að hún hafði í rauninni aðeins verið farþegi á | ies.su flugi, því að karlmaður, Mr. Stone að nafni ,hafði stýrt flugvjel- inni. Það brevtti málinu talsvert. Kvenfólkið á meginlandinu hefir ekki verið jafn gefið fyrir langferðir á fiugi eins og enska kvenfólkið, en þó eru þar nokkrar frægar flugkonur. Franska flugkonan Marvse Hilsz flaug í nóvember—‘desember 1930 frá París til Saigon. Á heimleiðinni braut hún Fugvjel sína í Stambul og komst ekki til París fvr en í febrúar 193L Madame Maryse Bastie hefir orðið fræg fvrir það að fljúga í einum á- fanga frá La Bourget til ITrino í Rússlandi á lítilli skemtiflugvjel (Klemm). Vegalengdin er 2976.9 km. og þetta flug er heimsmet fvrir flug- vjel, sem ekki vegur meira en 200— 350 kg. Madame Bastie hefir líka sett önnur met, í þolflugi, fyrst í 26 klst. 47 mín. og síðar í 37 klst. 55 mín. Madame Maryse Hilsz náði nýju meti fvrir konur í háflugi hinn 19. ágúst s.l. Hún komst 10.000 metra í loft upp. Lena Bernstein, sem er fædd í Rússlandi, en alin u]ip í Frakklandi, setti met fyrir konur í langflugi 1929. Hún flaug þá í einum áfanga frá L tres til Sidi Barani í Egyptalandi, i;g eru það 2268 km. Þar af lá leiðin 2000 km. vfir Miðjarðarhaf og var þetta ]>á jafnframt lengsta flug yfir haf, sem nokkur kona hafði farið. Hún náði líka meti í eins manns þol- fiugi á 35 klst. 46 mín. og fór þar 13 mínútur fram úr meti Martin Jensens Vestur-Danans. I vor var hún í Norður Afríku og bjó sig undir það að setja nýtt met í langflugi. En flugvjel hennar var ekki í góðu lagi og sjálf Ruth Nichols. var hún víst taugaveikluð. Nokkuð er það, að yfirvöldin bönnuðn henni að fljiiga. Hún tók sjer þetta ákaflega nærri og hvarf. Skömmu seinna fanst hún . liðið lík á afskektum stað á flugvellinum. Hún hafði tekið inn eitur. Af þýskum flugkonum eru kunn- astar þær Elli von Beinhorn og Marga von Etzdorf. Elli von Beinhorn hefir flogið til Suður-Afríku; ennfremur hefir hún flogið til Ástralíu og nokkr- ar flugferðir í Suður-Ameríku.. Marga von* Etzdorf f'laug 18.—29. ágúst 1931 frá Berlin til Tokio, en sú vegarlengd er 7000 enskar mílur. Þá má og nefna þýsku flugkonuna Thea Rasche eða „Die rasche Thea“, eins og hún er venjulega kölluð. Vera von Bissing og Liesl Bach eru báðar kunnar fyrir bstflug. Hrn síðarnefnda tók með heiðri þátt í kappfluginu hringinn í k'ring um Þýskaland. Vestanhafs eru margar flugkonur en fáar frægar. Sú fyrsta, sem varð nafnkunn, er Ruth Niehols. Hún tók flugpróf 1922. Árið 1928 náði hún þar meti fyrir konur í langflugi með því að fljúga í einum áfanga frá New York til Miami, um 2050 km. Þessa vegalengd flaug hún á 12 klst. Hún er talin ein af fræknustu flugkonum Bandaríkja. Árið 1931 átti hvin met í háflugi 8.761 m. I sumar ætlaði hún að fljúga vfir Atlantshaf, en varð ]>á fyrir flugslysi og varð að hætta við ferðina. Árið 1929 setti 17 ára stúlka. Miss Elinor Smith met í þolflugi, 13 klst. 16 mín. En það stóð ekki nema mánuð. ,,Bobbi“ Trout færði það upp í 17 klst. 5 mín. I apríl færði Miss Smitli ]>að svo enn upp í 26 klst. 21 mín. 32 sek. Síðan hefir hún tekið ]>átt í mörgum kappflugum og metatilraun- um. — Hinn 19. ágiist í sumar lentu þær Mrs. Frances Marsalis og Mrs. Louise Thaden á Curtiss Field eftir að hafa verið 196 klst. á flugi samfleytt, eða í rúma 8 sólarhringa. Með því höfðu þær slegið met þeirra „Bobbie“ Trouts og Miss E. Mavs, sem var 122 klst. 50 mín. Hraðflugsmet kvenna er ekki langt á eftir hraðflugsmeti karlmanna. Hinn •3. sept. setti major Doolittle í Cleve- land hraðamet 471.2 km. á klst. Dag- inn eftir setti Mrs. Haizlik nýtt met fyrir konur með 411.1 km. á klst. að meðaltali. Gamla metið átti Ruth Nic- Louise M. Thaden.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.