Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Blaðsíða 6
246 hætt sjer inn á siglingabannsvæð- ið. Hann kvaðst hafa verið á leið frá íslandi til Bergen. Hefði þá komið að sjer enskt beitiskip og skipað sjer að' halda rakleitt til Leirvíkur til skoðunar og varð það nú til þess að skipið var skotið í kaf. Aí þeim, sem í bátunum voru, tók jeg sjerstaklega eftir tveimur ungum stúlkum, í einkennilegum búningi. Það voru ísienskar stúlk- ur á peysufötum. Þær horfðu ótta slegnar á okkur, þessa óhreiuu og olíuklíndu þýsku „sjóræningja“, og var eins og þær ættu von á öllu illu af okkur. Nei, stúlkur góðar, við ætlum ekki að gera ykkur neitt! Við „þýsku sjóræningjarn- iv“ gerum aðeins skyldu okkar, hina ægilegu skyldu, sem á okkur liefir verið lögð af miskunnarlaus- um forlögum, og leggjum líf okk- ar í hættu á hverri einustu sek- ímdu til þess að ynna þá skyldu af hendi. Við mundum ekki hafa gert ykkur neitt til iniska ef breska herskipið hefði ekki neytt sltipið, sem þið voruð á, til þess að fara inn á siglingabannsvæðið. Við viljum ekki gera neinum fx-iðsöm- um manni mein, en þetta er stríð og við höfum ákveðið að skjóta nið- ur hvert það skip, sem kemur inn á siglingabannsvæðið, og þeir, sem þangað fara, vita vel, eða ætti að . vita, í hverja hættu þeir steypa sjer. Þakkið drottni fyrir að veður er gott og sjer til lands. Það eiga ekki allir skipsbrotsmenn slíku láni að fagna! Við máttum ekki leggja okkur í þá hættu að draga bátana til lands því að á hverri stundu gat þar borið að enska tundurspilla, flug- vjelar, loftför eða kafbáta. Enda voru bátarnir ekki í neinni hættu. Leyfðum við þeim að fara leiðar sinnar. Þegar „Flora“ sökk, sá jeg þá sjón, er jeg gleymi seint. Það voru tveir íslenskir hestar á sundi þarna úti á hafi. Höfðu þeir verið á þilfari skipsins. Annar þeirra var grár, ljómandi fallegur hest- ur. Hann strokaði sig frísandi upp úr sjónum og stefndi beint á okk- ur, eins og hann vænti þar hjálpar. Hve lengi mundu þeir geta haldið sjer á sundi 1 Ekki svo LESBÓK MORGUNBLABSÍNS lengi að þeir næði landi! Kraft- arnir hlutu smám saman að þverra og seinast mundu þeir verða að gefast upp — sprungnir á sundinu. Veslings skepnurnar! Daginn eftir að við söktuin „Flóru“ sáum við vopnaðan tog- ara langt fyrir norðan okkur. — Byrjuðum við að elta hann og sigldum oíansjávar. Var hvass norðanvindur og sjógangur mikill og gekk sjórinn yfír okkur hvað af hverju, þar sem við stóðum við fallbyssuna, og áttum við þar illa æfi. Togarinn sprengdi nú reyk- sprengju og hvarf sýnum í mökk- inn. Breyttum við þá stefnu og varð nú sjógangur enn verri en áður, svo að við áttum fult í fangi með að halda okkur. En rjett eft- ir að við höfðum beygt á bak- borða, kallar einhver: „Hart á stjórnborða!“ Báturinn beygir undir eins og í sama bili fara tvö tundurskeyti rjett fram hjá okkur og strukust svo nærri bátshliðinni að ekki munaði meiru en svo sem 6 metrum. Hefðum við haldið áfram þeirri stefnu, sem við höfðum, eð'a beygt augnabliki seinna, þá gæti jeg ekki sagt sögu kafbátsins okk- ar. Rjett á eftir komu tvö önnur tundurskeyti í sporðrák hinna, en þau fóru alllangt frá okltur, vegna þess að þá hafði kafbáturinn beygt svo mikið. Var það enskur kafbátur, sem sendi okkar þessar kveðjur. Við tókum þá allir’ ofan og veifuðum húfunum til hans en það þýddi sama sem: „Við erum ekki dauðir enn, lagsmaður!‘ * Og við hlógum og rjeðum okkur varla fyrir kæti. Meiri áhrif hafði það ekki á okkur að' við höfðum verið i dauðans kverkum rjett áður! Nú vaf haldið áfram til Leir- víkur og fór þá að verða líf í kringum okkur. Vopnaðir togarar ösluðu fram og aftur um sjóinn, tundurspillar þeystust í krákustíg- um alt umhverfis, en flugvjelar og loftför voru á sveimi yfir. Þá vissum við að við mundum komnir á þá leið er skipaflotarnir færi um. Allan daginn urðum við að fara í kafi. Seinni hluta dags sáum við mik- inn skipareyk. Þar komu kaupför í herskipafylgd. Fyrstur fór tund- urspillir, svo sem fjórum sjómílum á undan flotanum, og sigldi í ein- tómum krákustígum og var því ekki gott að átta sig á hvaða stefnu skipin höfðu. Þau voru 10 og sigldu í tveimur röðum, hvert í annars kjölfar. Fyrir þeim fór vopnuð snekkja, sem myndaði far- arbrodd, en til beggja hliða var röð af vopnuðum togurum og tveir vopnaðir togarar sigldu á milli skipalínanna og loks rak tundurspillir lestina. Það var því ekki hlaupið að því að komast að skipunum og hættulegt mjög. Ekki máttum við láta hafsauga okkar sjást og urðuin því að sigla blindandi í kafi, en við það áttum við á hættu að eitthvert skipið rækist á okkur. Eftir nokkra stund hægðum við ferðina og skut- um hafsauganu sem snöggvast upp úr. Svo drógum við það niður aft- ur og sigldum um stund með fullri ferð. Þá hægðum við á okkur og gægðumst upp og á þessu gekk þangað til við vorum komnir und- ir varnarskipin og inn á milli kaup skipanna. Allar tundurskeytabyss- ur voru hafðar tilbúnar, því óvíst var hverja þeirra við þyrftum að nota. " '. Ekkert af skipunum hafði orðið vart við okkur. Þá er fyrsta tund- urskeytinu hleypt af og rjett á eftir öðru á hitt borðið. Það misti marks, en hitt hæfði og varð af ógurleg sprenging, en sjórinn stóð í háaloft eins og við neðansjávar- gos. Nú komst alt á ringulreið í flotanum. Sum skipin staðnæmdust önnur beygðu til hægri, en önnur til vinstri og sum fóru afturábak. Togararnir viku til hliðar, en tundurspillarnir komu æðandi á vettvang. Var ekki um annað að gera fyrir okkur en fara í kaf. Þegar við vorum komnir í 25 metra dýpi heyrðum við yfir okkur skrúfuhvin í tundurspilli og — Bums! Báturinn skelfur og nötrar stafna á milli. Það er sæsprengja, sem Bretar hafa verið svo hugul- samir að senda okkur. Vissum við ekki gjörla hve nærri okkur hún lenti, en það hefir verið' mjög nærri. Svo heyrðum við aftur skrúfuhvin yfir okkur, en hann fjarlægðist brátt. Hægt og hljóð- lega komum við þá upp undir yfir-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.