Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 245 sinu, til að sækja þangað þrótt og gleði. — Annar dönsku skátanna Poul Hamnier mælti og nokkur orð. Bar hann kveðju frá hinum dönsku skátabræðrum, og sagði kynni sín af ísl. skátum vera hin ágætustu. — Mótstjórinn þakkaði ræðumönn unum fyrir orð þeirra, og kvaðst þess fullviss að skátunum myndi seint úr minni líða vera sín á þess- um slóðum og góð' viðkynning hjeraðsbúa. — Að lokum var end- að með hæn og söng, og skátamót- inu þar með lokið. — Skátarnir lögðust til svefns, og gestirnir hjeldu heim til sín. Um leið og einn eldri bændanna kvaddi, hvísl- að'i hann að mjer, að sjer þætti bara orðið vænt um „drengina af mölinni.“ XII. „Flóru“ sökt. Þegar „U 52“ liafði fengið fulla viðgerð í Wilhelmshaven, var aft- ur lagt á stað til Helgolands, og eftir venjulegar æfingar þar, vor- um við sendir á stað í hern- að að nýju. Atturn nú að reyna að komast í færi við kaupskipa- flota þá, er sigldu undir her- skipavernd milli Noregs og Eng- lands. Frjettir hermdu, að' leið þessara skipaflota væri aðallega milli Leirvíkur á Hjaltlandi og Björgvin. í Björgvin söfnuðust saman norsk, sænsk og dönsk gufu skip, sem aðallega voru hlaðin járnmálmi, timbri, (stokkum í skotgrafir) og matvælum, sem þau áttu að flytja til Englands. Þegar hæfilega mörg skip voru komin, var þeim safnað í flota innan landhelgi Noregs en þar fyrir ut- an biðu bresk leiðsöguskip eftir þeim og fylgdu þeim stytstu leið yfir siglingabannsvæðið. fcjíðan við fórum suður í Mið- Um hádegi á sunnudag lögðu skátarnir af stað til Reykjavíkur, hressir og kátir eftir útivistina. — Átta skátar urðu þó eftir. Fengu þeir hesta frá Biskupstungum og hjeldu sem leið liggur austur sveitir og upp að Hvítárvatni. Þar dvöldu þeir í tvo daga, og gengu meðal annars á Langjökul. Fylgdarmaður þeirra var Lárus Jónsson frá Bergstöðum í Bisk- upstungum, þaulkunnugur og fróð ur vel um óbygðirnar. Við skátarnir þökkum hjermeð öllum þeim er veittu okkur aðstoð við inót þetta, og þá einkum þeim bændunum Páli á Hjálmstöðum og Sveinbirni á Snorrastöðum, sem gcrðu okkur margan greiðann. J. O. J. jarðarhaf höfðu Bretar eflt mjög varnir sínar gegn kafbátunum og fengum við fljótt að kenna á því, að nú var stórum erfiðara og hættulegra fyrir kafbáta að ferð- ast í grend við England heldur en áður, og verra að komast að kaupförum. Meðal annars höfðu Bretar endurbætt mikið sæsprengj- ur sínar, gert þær hættulegri og voru ósparari á þær en áður. Þeir höfðu líka fundið upp áhald og sett í flest varnarskip sín; var þetta nokkurskonar heyrnartól og með því að hlusta í það gátu þeir heyrt vjelaskröltið í kafbátunum langar leiðir, þótt þeir færi í kafi og miðað upp á hár hvar þeir voru. Og svo voru settar niður ótal sæsprengjur þar sem bátarnir fóru í kafi og sprungu þær á mis- munandi dýpi. Með þessu móti gátu Bretar grandað mörgum kaf- bátum. Einnig höfðu þeir sent kafbáta sína til að herja á okkur. Og svo var leiðsöguaðferðin, sem síðar segir frá og ótal margt ann- að, sem hafði margfaldað hætt- una fyrir kafbátana á þessum tíma. Við lögðum á stað hinn 1. júlí 1917 vestur frá Helgoland. Úti í sjó gaf þýskur kafbátur okkur til- kynningu um það á hvaða svæði við ættum að herja. A leiðinni hittum við gríðarstór tundurdufl, sem voru á reki og skutum þau í kaf með rifflum. Þegar við kom- um nokkuð inn á siglingabann- svæðið, hittum við fyrir norska skipið „Stalheim“ og söktum því. Nokkrum dögum seinna rjeðist á okkur flugvjel og 4 loftför og eltu okkur þangað til við fórum í kaf — og þá rigndi sæsprengjunum, en við sluppum heilir á húfi. Nokkuru seinna sáum við skips- reyk skamt frá Muekla Flugga og sigldum þangað. Var þarna norska V * «3i skipið „Flora“ eitt á ferð og óvopnað. Vissum við ekki fyrst í stað hvaða skip þetta var og vegna þeirrar reynslu, sem við höfðum fengið, urðum við að fara varlega. Komuin við nú úr kafi og tókum að skjóta á skipið ineð fallbyssu á 9000 metra færi. Bráðlega hæfði ein kúlan og fór þá fólkið í bát- ana. Kafbátsstjóri gaf þá skipun um það að fara í kaf og sigldum við í eitthvað 600 metra færi við skipið og sendum því þá tundur- skeyti. Komum við nú úr kafi og sigldum til bátanna, en yfirstýri- maður okkar tók meðfylgjandi mynd af „Flóru“, er hún var að sökkva. Við hittum nú skipstjóra á „Flóru“ að máli og spurðuin hann hvernig á því stæði að hann hefði —•—<m>—- Ettirprentun bönnuð. Kafbátahernaðnrinn. Endurminningar julius Schopka. (Skráð hefir Árni Óla).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.