Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Side 102
102
LANDSBÓKASAFNIÐ 1981
Samskrá um erlendan ritauka íslenzkra rannsóknarbókasafna var í
umsjá Áslaugar Ottesen, en 13 söfn og stofnanir leggja nú til efni í
hana. Unnið er stöðugt að endurskoðun og endurnýjun skrár um
erlend tímarit, m. a. vegna þátttöku okkar í NOSP (Norrænni samskrá
um erlend tímarit), og sér Þorleifur Jónsson um þann þátt af Lands-
bókasafns hálfu.
Hinn árlegi erlendi ritauki Landsbókasafns hefur því miður farið
heldur minnkandi, íjárveiting til bókakaupa ekki aukizt í samræmi við
hækkandi bókaverð erlendis og gengisfall eða gengissig íslenzku krón-
unnar. Þá hcfur og stundum orðið að halda að sér höndum við bóka-
kaupin, til þess að endar næðust saman á öðrum liðum.
Af lausráðnu fólki deildarinnar er það að segja, að Gunnar Skarp-
héðinsson B. A., vann sumarmánuðina júní-ágúst við afleysingar,
ennfremur Magnús Snædal skamman tíma. Skjöldur Eiríksson B.A., er
annazt hafði um bókageymslur safnsins og bókaflutninga, lét af störf-
um í september, en við tók Jeffrey Cosser B.A., og vann hann jafnframt
við salgæzlu.
AÐSÓKN Hér fer á eftir skýrsla um notkun bóka og
handrita, um lesendafjölda og tölu lán-
takenda.
Flokkur 1981
000 .................................... 12 247
100 ....................................... 273
200 ....................................... 393
300 ..................................... 2 449
400 ....................................... 681
500 ....................................... 891
600 ....................................... 627
700 ....................................... 227
800 ..................................... 2 311
900 ..................................... 3 665
Samtals 23 764
Handrit léð á lestrarsali 2 955
Lesendur (í lestrarsölum) 12 380
Utlán (bóka og handrita) 1 553
Lántakendur 296