Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1957, Page 16

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1957, Page 16
16 LANDSBÓKASAFNIÐ 1 95 5 — 1 956 sýnt þykir, að ekki verði bætt úr húsaþörf þess á Arnarhólstúni, er ekki annar kostur fyrir hendi en að nema nýtt land. Virðist í alla staði rökrétl og hagkvæmt, að tvö stærstu bókasöfn landsins, sem bæði stefna að svipuðu marki, vinni saman að þeim verkefnum, sem fram undan eru. Þegar þetta nýj a menntabúr rís af grunni verður að taka sérstakt tillit til þess verkefnis, sem of lengi hefir verið vanrækt. Enn í dag eru handrit okkar og skjalagögn, bæði hérlendis og erlendis, svo lauslega könnuð, að enginn hefir treyst sér að semja íslenzka bókmenntasögu nema í litlum ágripum. Við hörmum, að enn skuli talsverður hluti handrita okkar og skjalagagna vera í öðru landi og við krefjumst þess að fá þennan bókmenntaarf okkar heim. Vissulega munum við fá handritin heim fyrr eða síðar, ef við stöndum saman og hvikum ekki frá settu marki. En við megum ekki láta okkur nægja að hafa handritin sem sýningargripi til að auglýsa okkar fornu frægð. Við verðum að hefjast handa um könnun þeirra og útgáfu, svo að öllum megi ljóst verða, að þau séu komin í réttar hendur. Engum stendur það nær en háskólanum og þjóðbókasafninu að hafa forystu slíkrar starfseini. í menntabúrinu nýja verður að ætla þessari starfsemi nægilegt rúm og nægilegt fjármagn. Nú þegar ætti að hefjast handa og veita fé til þess að þjálfa unga fræðimenn til þeirra starfa, sem okkur hlýtur að vera ljúft og er skylt að inna af hendi á þessu sviði. Við verðum að sýna það í verki, sem öllum ætti raunar að vera ljóst, að hér og hvergi annarsstaðar hlýtur miðstöð norrænna fræða að verða í framtíðinni. ^ Vegna mikils útgáfukostnaðar hefir enn verið horfið að því ráði að gefa Árbókina út í einu lagi fyrir tvö ár. Eins og að undan- förnu eru ritskrárnar fyrirferðarmiklar og rúm því mjög takmarkað fyrir annað efni. Það þótti hæfa, að Árbókin minntist að nokkru þess rithöfundar, sem fyrstur ís- lenzkra manna hefir hlotið bókmenntaverðlaun Nóbels og mun nú eiga stærstan lesenda- hóp allra Islendinga. Dr. Peter Hallberg, sem ritað hefir meira og ýtarlegar um Halldór Laxness og bækur bans en nokkur annar, varð góðfúslega við þeim tilmælum Árbókar- innar að rita fyrir hana grein þá um íslandsklukkuna, sem hér birtist. Auk þess fróð- leiks, sem greinin flytur um vinnubrögð skáldsins, er hún skemmtilegur vitnisburður um íslenzkukunnáttu höfundarins, því að greinin er frumrituð á íslenzku. — Ritaskrá Laxness hefir Ásgeir Hjartarson bókavörður tekið saman. Bókmenntasöguprófessor háskólans, dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, hefir sýnt Ár- bókinni þá vinsemd að kynna dr. Hallberg með nokkrum orðum. Á eflir fer sá hluti af ritaskrá dr. Hallbergs, sem varðar Laxness og bækur hans. Ungur, íslenzkur bókfræðingur, Benedikt S. Benedikz, sonarsonur bókasafnarans Benedikts S. Þórarinssonar, skrifar stutta grein um ensk háskólabókasöfn og íslenzk fræði. En áhugi enskra háskólakennara fyrir íslenzkum bókmenntum, fornum og nýj- um, virðist í vexti, og eru þar nú þegar nokkrir menn að starfi, sem mikils má af vænta. 1. október 1957 FINNUR SIGMUNDSSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.