Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.12.1993, Blaðsíða 4

Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.12.1993, Blaðsíða 4
Þriggja ára átak um börn og óbeinar reykingar Krabbameinsfélögin á Norðurlöndum hafa sameinast um að standa að víðtækri fræðslu um börn og óbeinar reykingar árin 1993-1995. Áhersla verður lögð á rétt barna til að alast upp í reyklausu umhverfi. Ástæðan fyrir þessu frumkvæði er sú staðreynd að áhrif óbeinna reykinga bitna hvað harðast á börnum - og einnig sú að börn eru vissulega næm fyrir reykingafordæmi uppalenda sinna. Fyrsta árið er fjallað um umhverfi bama á leikskólum, annað árið um umh verfi þeirra hjá dagmæðrum og þriðja árið verða foreldrar og heimili í kastljósinu. Fyrsti þátturinn í átakinu var könnun meðal starfsfólks leikskóla á reykingum og afstöðu til óbeinna reykinga og vama gegn þeim. Einnig var leitað upplýsinga um hvaða reglur giltu um takmörkun reykinga í leikskólum. Krabbameinsfélag Reykjavíkur tók að sér að standa fyrir könnun þessari fyrir hönd Krabba- meinsfélags íslands. Gögn vom send um það bil 200 leikskólum um allt land og hafa svör borist frá miklum meirihluta þeirra. Verið er að vinna úr þessum gögnum. Víða urðum við vör við mikinn stuðning við þessa könnun og þakklæti fyrir forvarnarstarf á þessum vettvangi. Annar þáttur átaksins var ráðstefna norrænu krabbameinsfélaganna í Osló 11. og 12.októbersl. umréttbamatilreyklauss andrúmslofts. Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra ávarpaði ráðstefnuna ásamt fulltrúum hinna norrænu ríkjanna. Meðal þeirra sem fluttu fræðileg erindi var Sveinn Magnússon héraðslæknir. Hann talaði einkanlega um hvaða áhrif umhverfisþættir hafa á það hvort böm og unglingar byrja að reykja. Hann og Guðrún Agnarsdóttir forstjóri K.í. tóku þátt í pallborðsumræðum þar sem urðu m.a. orðaskipti við fullrúa tóbaks- framleiðenda. Börnin tóku þátt Mikla athygli vakti þátttaka bama í ráðstefnunni. Börn frá Danmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og S víþjóð lásu ávarp sitt til foreldra sinna og annarra uppalenda þar sem skorað er á þá að hlífa bömum við tóbaksreyk, reyna að leggja tóbakið alveg á hilluna og hjálpa til að gera allt umhverfi bama reyklaust. Ávarpið var lesið á hverju tungumáli fyrir sig og var það afar áhrifaríkt. ísland átti einn fulltrúa í þessum skeleggahópi, 11 árastúlku, sem heitir Sonja Björg Hlynsdóttir. Einnig flutti norskur barnaleikhópur söngleik um óbeinar reykingar. Var hann saminn sérstaklega fyrir ráðstefnuna, bráð- skemmtilegur og vel fluttur.

x

Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/277

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.