Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.12.1993, Blaðsíða 2

Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.12.1993, Blaðsíða 2
Nýtt fræðslurit Nýlegaerkominnútávegum félagsins fjögurra síðna fræðslubæklingur: „Vertuvakandi þóttþúsértungur“.Er hann einkum ætlaður ungum piltum og á að kenna þeim að þekkja nokkur fyrstu einkenni krabbameins í eistum. Texúnn er stuttur og honum fylgja teikningar. Bæklingnum verður dreift í framhaldsskólum og efsta bekk grunnskóla, auk þess sem hann liggur frammi á heilsugæslustöðvum og í mörgum apótek- um. Að þessum nýja bæklingi meðtöldum em á dreifingarlista félagsins 19 smárit í flokki Fræðslurita Krabbameinsfé- lagsins. Nýr heiðursfélagi |||, Dr. Gunnlaugur Snædal 111 prófessor var kjörinn heiðursfélagi K.R. á síðasta : aðalfundi. Gunnlaugur sat í f stjóm félagsins á árunum 1966 til 1979 og var formaður allan þann tíma. Félagið hefur frá upphafi kjörið tíu heiðursfélaga. Hinir em: Alfreð Gíslason læknir, Bjarni Bjamason læknir, Gísli Fr. Petersen dr. med., Gísli Sigurbjörnsson forstjóri, Halldóra Thoroddsen aðalgjaldkeri, Jón Oddgeir Jónsson ffamkvæmdastjóri, Ólafúr Bjamason læknir, Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunarkona og Sveinbjörn Jónsson hæstaréttarlögmaður. Tveir heiðursfélaganna, dr. Gísli og Jón Oddgeir, létust á tímanum milli aðalfunda 1992 og 1993. Varþeirra minnst á aðalfundinum. Til félagsmanna: Hefurðu greitt félagsgjaldið? Fyrir nokkru voru félögum (öðrum en ævifélögum) sendir gíróseðlar til greiðslu félagsgjalda fyrir árið 1993. Árgjaldið er kr. 600. Þegar hafa fjölmargir brugðist vel við og sent greiðslu. Hinir eru vinsamlegast beðnir um að borga við fyrstu hentugleika og sýna með því samstöðu um markmið félagsins og mikilvæga starfsemi. Stuðningur ykkar er okkar vopn! Til lesenda Blað þetta er ekki sent félagsmönnum einum heldur og mörgum öðrum á félagssvæðinu sem hafa verið traustir þátttakendur í happdrætti Krabbameinsfélagsins undanfarin ár. Vonum við að þeim falli vel að fá þessar fréttir af starfmu. Óski þeir að gerast félagsmenn nægir að tilkynna það í síma 621414.

x

Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/277

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.