Vísir - 20.01.1964, Side 8

Vísir - 20.01.1964, Side 8
8 Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axei Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði 1 lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur) Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Frelsi leynireikningarma f>að var að vonum að Tíminn varð ókvæða við þegar Vísir minnti á samskipti Framsóknarflokksins og frjálsrar verzlunar á föstudaginn.. Sú sambúð hefir nefnilega ekki verið ýkja farsæl. Tíminn hafði ætlað sér að sannfæra lesendur sína um það, að Sjálfstæðis- flokkurinn væri á móti frjálsri verzlun! Vísir benti stuttlega á sögu Framsóknarflokksins og hver væri sú eina frjálsa verzlun, sem sá flokkur óskaði eftir — frelsi til þess að eiga leynireikninga í fjarlægum heims- álfum, freisi til þess að svíkja og pretta í milliríkja- viðskiptum, frelsi til þess að stinga undan gjaldeyri í tugmilljóna mæli. Þessi áfellisorð voru ekki sögð að ástæðulausu, heldur eftir að Tíminn hafði gefið tilefni til að á þetta atriði væri minnzt. Nýgenginn er hæsta- réttardómur yfir mörgum forkólfum Framsóknar flokksins og S. í. S. Þar eru þeir dæmdir í gildar fjársektir fyrir að nota verzlunarfrelsið á sinn sérstæða hátt, á framsóknar- vísu. Og það skal undirstrikað, að hér eru engir aukvis- ar á ferð, engir ungir skólapiltar, heldur ýmsir for- ystumenn flokksins, þótt höfuðpaurinn hafi sloppið ódæmdur sökum fyrningarákvæða íslenzkra laga. f>etta dæmi var tekið um það hvernig Framsóknap- menn notfæra sér verzlunarfrelsið. Og það felst engin ósanngirni í því að benda á þá staðreynd. Aldrei hefir jafn stórfellt fjárglæframál komið fyrir íslenzka dóm- stóla sem þetta. En þótt verzlunarfrelsið hafi komið þessum hóp manna að svo miklum notum — þar til réttvísin komst á slóð þeirra, þá hefir Framsóknar- fJokkurinn við flest annað verið kenndur en frelsi í viðskiptum. Að vísu voru forkólfar samvinnustefn- unnar vammlausir menn sem ekkert vildu fremur en leysa verzlun landsmanna úr viðjum einokunar. En menn eins og Benedikt á Auðnum eru löngu horfnir og hans hugsjónir setja ekki lengur mark á Fram- sóknarflokkinn. f£vótakerfið alræmda var hugarfóstur Eysteins og S. í. S. Haftastefna eftirst'ríðsáranna var afkvæmi sömu eysteinskunnar í viðskiptamálum þjóðarinnar. t’að mark brenndi undan sér víðar og lengur en nokk- arn hefði grunað. Það var ekki fyrr en áhrif Sjálf- stæðisflokksins jukust, að frelsið í viðskiptum varð aunhæft hugtak. Nú er verzlun landsmanna frjáls að S0% hluta. Svarti markaður eysteinskunnar er horfinn, >g verzlanir aftur fullar af vörum. Þjóðin öll fagnar beirri breytingu. En Framsóknarflokkurinn harmar slíkt frelsi. Á slíkum tímum er svo ógnar erfitt að koma leynireikningunum við og skjóta keppinautun- um aftur fyrir sig með sérstökum gjaldeyrisfríðindum. Þess vegna er Tíminn svo ofboð viðskotaillur, þegar hið nýfengna verzlunarfrelsi ber á góma. Og hver getur líka láð honum það? X- VÍSIR . Mánudagur 20. janáar 19S4. ^Tokkrum blaöaskrifum hefur valdið afskiptasemi mín; of gráhegra, , hafður í af frelsisskerðingu sem handsamaður var, talið er, að almenningsálitið sé; andstætt þessum aðgerðum mínum, vildi ég biðja um rúm fyrir eftirfarandi I blaði yðar:í Un fnn r- : Ég bað lögregluna í Hafnar- firði, að hlutast til um að fugl-; inum yrði sleppt t. d. vestur í Straumi, þar sem gráhegri get-i ur fundið sér svæði til fæðu- öflunar og afdreps, enda finnst: gráhegri árlega á svipuðum svæðum hér við Suðurströnd- ina, í Vestmannaeyjum, á Suðv urnesjum og f Ölfusi. Ef ein- Gráhegrinn, sem deilt GRAHEGRINN OG DÝRAVERNDUN hver fyrirstaða væri á því að sleppa hegranum skyldi lög- reglan taka þessa beiðni mína, sem kæru vegna brota á lögum. Sá er tók hegrann heim með sér hefur gert það af mannúð. Fundizt fuglinn rytjulegur, blautur og svangur. í rökkri eða myrkri má komast nærri hegra í náttbóli. Hegrinn naut góðrar aðhlynningar og er hann var talinn hafa náð fullri heilsu, var efnt til sýningar á honum, í stað þess að sleppa honum. Var sú sýning gerð í góðri meiningu bæði til þess að svala forvitni fólks og afla merkum félagsskap tekna. En hér var um villtan fugl að ræða, sem samkvæmt lögum um fugla- veiðar og fuglafriðun nýtur al- í friðunar (Iög nr. 63/1954). Bannað er I lögum þessum að handsama eða drepa villta fugla, sem njóta alfriðunar (1. %|| gr. nefndra laga). Mönnum er óheimilt að hafa í vörzlum sínum alfriðaða ; > fugla. Meira að segja egg þeirra eða hreiður (sjá 30. gr. sömu laga). Þá má eigi taka hami af slíkum fuglum eða setja þá upp til þess að hafa í vörzlu sinni, 11 bjóða til sölu, selja, kaupa, gefa eða þiggja að gjöf (sjá 29. gr. og 31. gr. laganna). Af frá- sögnum um handsömun fugls- 5i:,, ins verður ekki séð, að sá, sem handsamaði hann hafi gert það vegna þess að fuglinn væri sjúk- ur, lemstraður eða bjargar- vana, heldur, að hann gengur fram á fuglinn og finnst hann að stærð og líkamsvexti undar- legur. Við það að hafa fuglinn milli handanna telur sá, er handsamaði fuglinn, hann þurf- andi umönnunar og fer méð t!l hann heim með sér. Samkvæmt 15. gr. laga um dýravernd (lög nr. 21 frá 1957) átti að gera ........löggæzlumönnum eða dýralækni viðvart án ástæðu- lausrar tafar“. Þetta er ekki gert og mun eigi stafa af öðru en þekking- arleysi á ströngum ísl.' lögum, sem tóku gildi fyrir tæpum 7 árum og veita dýrum víðtækari lagalega vernd og rétt sem líf- verur en áður þekktist og eru hliðstæð ákvæðum í sams kon- ar lögum hjá flestum öðrum menningarþjóðum. Högum hegrans varð þannig farið við hina ágætu hjúkrun og fóðrun, að hann hresstist og þar sem sá, sem handsamaði hann aflaði sér upplýsinga um fuglinn hjá Náttúrugripasafninu og fékk að vita að þessi fuglstegund er árviss vetrargestur hér og var bent á að sleppa honum er hann hresstist, bar finnanda að veita fuglinum frelsi án taf- ar. 1 stað þess er efnt til sýn- ingar á hegranum og með því eru enn, og af þekkingarleysi, brotin ákvæði laga um dýra- vernd (sjá 4. gr. laganna). Þvf miður er almenningi og jafnvel Iöggæzlumönnum eigi nógu vel kunn ákvæði þeirra tveggja laga, sem hér hafa ver- ið nefnd — lög um fuglaveiðar Bréf til VÍSIS um deilumál og fuglafriðun frá 1954 og lög um dýravernd frá 1957. Þau skrif blaðanna, um grá- hegrann, sem handsamaður var við Vífilsstaðavatn nú fyrir skemmstu, hjúkrað á hafnfirzku heimili, hafður í vörzlu og til sýnis — og þá krafizt samkv. ísl. lögum að yrði sleppt, verða vonandi til þess að skilningur eflist á því, að dýr og þar með fuglar njóti víðtækrar laga- verndar — og brot á þessum lögum geta bæði verið fólgin í jákvæðri athöfn sem og í at- hafnaleysi, eða fólgin í frelis- skerðingu. Margir halda t.d. að þeim sé frjálst að safna eggjum allra fuglategunda, taka af fuglum hami og setja upp fugla, og hafa hvort tveggja í verzlum sínum, gefa eða selja. Slíkt er miklum takmörkunum háð og væri ástæða til að skrifa um leiðbeiningar. Með þökk fyrir birtingu. Þorsteinn Einarsson. „Cetjið eigi ljós yðar undir mæliker, heldur á ljósastik- una, svo að það lýsi öllum, sem eru f húsinu“. Mér komu þessi spakmæli í hug, þegar ég í dag rakst á frétt f Vísi, frá 9. þ. m., með yfirskriftinni: Sýning skáta á villtu dýri kærð. Með fréttinni voru birtar tvær myndir. Undir annarri stóð: Hegrinn f Hafnar- firði, — hinni: Þorsteinn Ein- arsson. Það hefur vakið aðdáun mfna, í hvert sinn sem hjálparsveit skáta er kölluð út til leitar að týndu fólki, hvað þessi ung- menni vinna með gleði fórnfúst starf án launa f þágu samborg- aranna. Þrátt fyrir það höfum við ekki haft manndóm í okkur til þess að gera þessa ungu lífverði okkar svo úr garði að leitarstörf þeirra beri sem beztan árangur. Það kemur á daginn að hjálparsveitina vant ar leitarljós. Nú fyrir skemmstu, við leit að týndum manni, rekst skáti einn á sjaldséðan, hrakinn fugl, sem kúrir undir moldar- barði. í gleði sinni yfir að hafa tækifæri til að hlúa að fuglinum sér hann aðra og stærri gleði, — möguleikann til þess að geta keypt handa sveitinni sinni leit- arljós og Iáta þannig starf sitt til líknar nauðstöddum bera meiri árangur. í stuttu máli sagt, hegrinn var sýndur al- menningi í stuttan tíma gegn vægu gjaldi, til kaupa á leitar- ljósum fyrir hjálparsveitina. Fáir mundu þeir finnast, sem sæju eitthvað glæpsamlegt f þessari fjáröflunaraðferð skát- anna. Margur mun frekar hafa skammazt sí.n hið innra með sér fyrir að hafa ekki áður stuðlað að því að skátarnir þyrftu ekki í sérstaka fjáröfl- unarherferð til kaupa á svo sjálfsögðum hlutum sem leitar- Ijósum. Einn var þó, sem fann hvöt hjá sér til að láta sitt Ijós skína. Þorsteinn Einarsson íþróttafull- trúi og forstöðumaður dýra- verndunarfélaga m. m. tekur sig til og kærir skátana fyrir „glæpinn“. Eftir að hafa lesið Frh. á bls. 10.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.