Norðurland


Norðurland - 01.08.1903, Blaðsíða 1

Norðurland - 01.08.1903, Blaðsíða 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Einar Hjörleifsson. Akureyri, 1. ágúst 1903. J II. ár. 45. blað. Sndurskoðuð trúarjátning. ii. (Síðari kafli.) Röksemdir þær gegn Westminster- játning Kalvínstrúarinnar, eins og dr. Story bar fram og lítt eða ekkert var mótmælt á kirkjuþingi hinna skozku kennimanna, voru þessar hinar helztu: Sköþunarsagan, sem játningin er bygð á, er öldungis ófullnægjandi nú á dögum; að maðurinn hafi verið skapaður „Quði til dýrðar", lendir í ósamkvæmni og algjörri mótsögn. Játningin segir sjálf að guðs dýrð eflist alls eigi fyrir manninn, sem kóróna hans sköpunarverks, þar eð maðurinn hafi óðara orðið gjörspilt- ur. Og þó er í sömu andrá kent, að guð sé almáttugur og alvís. Hann hafi því hlotið að skapa manninn í þeim tilgangi, er eigi varð náð. Hvernig sem kenning þessi væri skoðuð, kæmi alt í mót- sögn, er enga skýring gæfi viðvíkj- andi hugsjón og markmiði drottins. Pví næst er kenningin um mann- eðlið og þess gjörspilling. Hún gengi næst því að sýna og sanna að sköp- un mannsins hefði mistekist. Öll bót og líkn kæmi og ekki innan frá eða væri samfara nokkuru góðu í eðli mannsins, heldur utan frá og eingöngu frá guðdómsins yfirnáttúr- lega krafti. Játningin geymir rangar skoðanir á forsjón guðs — æzta auglýsing hans afskifta er t. d. sögð að sé eingöngu hans eiginn vilji. Og sá vilji verður samkvæmt játningunni gjörræðisvilji, sem fer eigi eftir siðgæðishugsjón, heldur leitar sinnar dýrðar einungis —, vilji, sem bindur manninn undir dauðasekt sakir syndar hans, en ætlar að frelsa suma frá dóminum „til vegsemdar guðs dýrðlegu náð" (segir trúarjátn- ingin), undir eins og hinir fordæm- ast „til vegsemdar hans dýrðlega réttlætis", þótt torvelt sé að skilja, hvar það réttlæti komist að, úr því kent er, að þar sem sumir séu dæmdir til eilífra kvala, þá hafi náðinni verið afturhaldið og þeir með því ákvarðaðir til fullrar glöt- unar „til vegsemdar guðs dýrðlega réttlætis". Er þetta nokkuð svipað siðgæðishugsjón, eða hugsun bygðri á viti? Öll röksemdin í trúarjátn- ingu Kalvíns er togaröksemd en ekki mórölsk (siðgæðisleg). Öxullinn, sem alt snýst um, er útvalningin. Það er viljinn, sem öllu ræður, hver útvalinn sé eða útskúfaður. í sama tilgangi er öll sköpunin gerð sam- kvæmt játningunni — „til guðs dýrð- ar". í gjörvöllu kerfinu er guðs fað- erni, hans föðurást, hvergi nefnd á nafn. Guðs kærleikur er ekki til f trúarjátningarkerfi þessu. Alt er gjör- ræði. Sjálf dýrðlinganna helgun hefir engan styrk né varanleik nema fyrir þann órjúfanlega úrskurð guðs, að sumir skuli standast, en sumir falla frá. Er nokkur kenning hugsanleg, sem sé fremur villandi, fremur fallin til að framleiða sjálfstraust annars vegar ogsiðferðissljóleik hins vegar? Þá kemur friðþægingin. Sú hug- sjón þarf alt eins öðruvísi skýring. Yfirleitt var hugsunin sú, að full- næging þess, er kallað var guðs réttlæti, var eigi auglýsing guðs kærleika, er mannsins sáluhjálp væri undir komin, heldur fullnæging guðs réttlætis, fyrir djúpsett hjálpræði, er komi manninum undan sekt synd- anna, sekt, sem lögð væri á annan. I þeirri kenning fælist engin kær- leikur, sem lyfti manni til aldurs- hæðar hans helgunar, engin opin- berun sem leiddi hann inn í það elskunnar samlíf við skaparann, er yfirynni sorg og dauða. Hér væri opinberað lagakerfi, er sýndi hvern- ig réttlæti guðs yrði fullnægt, og sumir gæti komist hjá hegning fyrir syndir þeirra. Þessi friðþæging væri alls ekki fyrir alla, hvernig sem hún væri skoðuð. Hún væri fyrir fáa — takmörkuð friðþæging. Ræða rektorsins er hér stórum samandregin, en engu verulegu at- riði slept, né nokkuru óviðkomandi bætt við. Og enn tók hann fram, að engu síður bæri nauðsyn til, að lagfæra mörg önnur atriði hinnar fornu trúarfræði kirkjunnar, svo sem sabatslög Skotanna og hjúskaparmál o. fl., sem alt er mjög strangt þar í landi, og — eins og hann sagði — „gagnofið Gyðinglegum hugmynd- um«. Aftur nefndi hann hvergi biflíudýrkun Skotanna, sem ein gerir mjög torvelt að endurskoða og bæta kirkjulega fræði og kenningar þar í landi. Aftur tók hann og fleiri fram, hversu laga þyrfti hinn forna harðlynda hugsunarháttog hið grimma umburðarleysi, sem enn þá lægi í máli og röksemdum manna frá siða- bótartímanum. Loks fór kennimaður þessi mjög hörðum orðum um hina nefndu trúarjátning, að því er snertir kenn- ingu hennar um „hið síðasta á- stand". Bendir hann skorinort á það, hve torveld viðureignar sú kenning sé eftir trúarjátningu kirkj- unnar; þar er sagt að sálunum sé varpað í helvíti og bíði þar í myrkr- anna ofraun og eldi til dómsins. Þá sameinast sálin hennar fyrri líkama og bæði mæti fyrir dóminum. Og tilgangur hins hræðilega réttarhalds á dómsdegi sé að birta guðs dýrð, dýrð hans miskunar á þeim útvöldu en dýrð hans réttlætis á hinum út- skúfuðu. Alt er sakir guðs dýrðar, en ekki vegna barna hans, mann- anna; ekki til hjálpræðis þeim, held- ur var alheimurinn skapaður ein- göngu til dýrðar hins almáttuga. Á þessu endar og byrjar trúarjátningin. Var þá ekkert annað markmið í guðs alheimsstjórn? Var það, að skapa mennina, hina aumu og veiku, og glata ótölulegum miljónum þeirra í endalausum píslarstað, sem engin orð fá útmálað, — var petta alföð- urnum til dýrðar, honum, sem Jesús Kristur sagði um: „Sá sem hefir séð mig, hefir séð föðurinn!" Og þessu ættu þeir eigi einungis að trúa, heldur staðfesta sína trú á því eins og skilyrði þess, að kirkjan leyfði þeim að fara út til allra þjóða og kunngjöra það, sem þeir í bitru háði kölluðu „gleðiboðskap mikils fagnaðar"! ættu menn eigi að segja, að betra hefði þeim verið að vera heiðingjar, aldir á útslitinni kreddu, heldur en að beygja kné frammi fyrir jafn skelfilegri skrípamynd af guðdómi og almætti eins og þetta væri." — Síðan lýsti rektorinn ei- fifri útskúfun svo ógurlega, að eg vil ekki bjóða íslenzkum lesendum það, eða meir en komið er, því, sem betur fer, hefir sú voða kenning, aldrei náð föstum tökum á alþýðu vorri, þótt hún enn gangi nær viti margra, en vorir „lærðu" kunna frá að segja. — Að endingu skoraði hinn mikli kennimaður á kirkju- þingið, að athuga tákn tímanna, at- huga hið mikla fráfall, athuga prest- anna ógurlegu ábyrgð og byrja hik- laust á endurskoðun hinnar nefndu trúarjátningar. „Brott — kallaði hann — úr böndum 17. aldarinnar! Brott með þokur og sjónhverfingar, og horfið glaðvakandi augum á guðs stórmerki og áframhaldandi opin- beranir títnanna, sem vér lifum á! Guðs andi er með oss og innra í oss. Vér viljum hrinda af oss þeirri möru, sem neyðir og sligar svo margar sálir, og sjáum til að vér leggjum hana eigi á fleiri kynslóðir þjóðar vorrar!" En þótt kirkjuþingið tæki furðu vel og frjálslega í strenginn, og eng- inn andæfti nokkuru sérstöku að- finsluatriði þessa eða annara ræðu- manna, létu menn sér duga ofan nefnda ályktun, að biflían skyldi enn sem áður gilda, sem túlkur allra trúargreina og játninga — með heilags anda „yfirsýn".* Og þeir sem þekkja trúarlíf og kirkjusögu Skota til hlýtar, munu alls eigi furða sig á, að stærra spor var ekki stígið á þessu þingi. Prest- um í öllum löndum er vant, en ekki sízt á Skotlandi þar setn — eins og Buckle sagði — lærða stéttin er hin vitrasta í Evrópu en alþýðan ein- hver hin heimskasta og vanabundn- asta. Loks skal þess getið í sambandi við þetta mál, að samskonar játn- ingar-endurskoðanir eru annarstaðar í löndum á dagskrá, og með svip- uðum (o: litlum) árangri. Nokkurir Kalvínstrúarflokkar í Ameríku héldu slíkt þing í fyrra, og þótti sú tillaga merkust þeirra, er þar voru fram- bornar, að hætta skyldi að deila um eða endurskoða öll trúarrit 16. og * „Með beztu manna yfirsýn," stóð líka aftast í gamla sáttmála vor íslendinga. 17. aldar, heldur leggja þau sem helgigripi til hliðar — þau hefðu hæft þeirra tíma og skyldu halda heiðri sínum óbreytt. En í stað trúar- banda skyldi koma virkilegt trúar- frelsi, þannig að hver kennimaður hefði leyfi til að kenna út af lífinu og helgum ritum, eins og hann sjálfur vildi gjört hafa. Þegar slíkt verður leyft, mun margan undra, því það var ekki leyft löngu fyrri! M.f. % Skógrækt á Jslandi. Eg hefi verið á ferð í sumar um ísland til þess að rannsaka skilyrðin fyrir skógrækt í landinu bæði frá bún- aðarlegu og náttúruvísindalegu sjónar- miði. A þessu ferðalagi hefi eg haft tækifæri til þess að kynna mér ná- kvæmlega skógana við Egilsstaði, Hall- ormsstaði, Háls, Vaglir og Sörlastaði. Til Akureyrar kom eg 18. júlí, og var ferðin þá hálfnuð. Eins og kunnugt er, var það Carl Ryder, höfuðsmaður í herskipaflota Dana, sem kom það fyrst til hugar í fullri alvöru að eitthvað þyrfti að gera til þess að auka og bæta skóg á íslandi, og hann hefir eflaust litið rétt til, því að brýn þörf er á skóg- um hér á landi. Skógar að marki mundu ekki að eins bæta úr þeim vandræðum, sem nú eiga sér stað, að menn verða að hafa sauðatað til elds- neytis. Menn hafa líka fulla reynzlu fyrir því í öðrum löndum, að skóg- arnir gera hreyfingar vatnsins ofan eftir hlíðunum hægari, og svo mundi einninn fara á íslandi. Enn mundu auknir skógar víða varna því, að jarð- veginn blési upp. Þetta sýnir alt, að skógræktarmálið stendur í nánu sam- bandi við önnur jarðræktarmál, en á hinn bóginn hefir fjárræktin það í för með sér að girða verður um nýjar skógargræðslustöðvar. Auk þessa erfiðleika verður enn að taka tillit til erfiðleika þeirra, sem stafa af jarðvegi og loftslagi. Til þess að finna réttar aðferðir til þess að græða skóg þar, sem staðhættir eru ólíkir, verða menn að fika sig áfram með tilraunum ár eftir ár, og þetta hefir Flensborg skógfræðingur gert, eins og flestum mun vera kunnugt. Hann hefir gert vandaðar og nákvæm- ar tilraunir, og hefir þegar öðlast all- mikla reynzlu í öllu því, er lýtur að íslenzkri skógrækt. Hann hefir komist að þeirri niðurstöðu, að sama skógar- græðsluaðferðin eigi ekki allstaðar við, og er það hverju orði sannara. Alt bendir á, að skógar geti þrifist á ís- landi, bæði skógarleifar þær, sem eru til víða um landið og einkum skógar þeir, sem enn vaxa í einstaka stað, t. d. í Fnjóskadal, en einmitt þessir skógar sýna ljóslega, að það þarf al- veg sérstaka þekkingu til þess að fara með skóga, svo að vel fari. Margt getur orðið til þess að eyða þeim,

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.