Morgunblaðið - 28.12.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
TÓM.IST
111 jómdiskar
LILLÝ
KARLJÓNATNASSON
Karl Jónatansson og fleiri, Hljóm-
sveitin Neistar, Stórhljómsveit
Harmonikufólags Reykjavíkur og
Karlakór Akureyrar flytja lög
eftir Karl Jónatansson, Eirík
Bjarnason frá Bóli, Ása i Bæ og
útl. liöfunda. Hljóðritað í Stúdfói
FÍH (1997), sljórn upptöku og
hljóðblöndun Ari Danfelsson;
stúdíó RÚV (1965) og Stúdíó
Bimbó (1982). Stafræn hreinsun
eldri upptaka: Hreinn Valdimars-
son/RUV. Almenna umboðsskrif-
stofan. Dreifing: Skífan.
Jón Páll Bjarnason
Jón Páll
Bjarnason
í Sölvasal
JÓN PÁLL Bjarnason gítar-
leikari kemur fram á fímm
djasstónleikum í Sölvasal,
Sóloni íslandusi, um hátíð-
arnar. Verða tónleikarnir
29. desember, 30. desember,
2. janúar, 4. janúar og 5.
janúar en með honum leika
Tríó Ólafs Stephensen,
ásamt Tómasi R. Einarssyni
og Guðmundi R. Einarssyni.
Jón Páll stofnaði sína
fyrstu hljómsveit 17 ára
gamall og lék með hinum
ýmsu tónlistarmönnum hér
heima og í Sviþjóð áður en
hann settist að í Bandaríkj-
unum árið 1963. Þar hefur
hann Ieikið með hinum og
þessum, meðal annars stór-
sveit Buddy Rich. Þá hefur
hann komið fram með gítar-
leikurum á borð við Joe
Pass, Tal Farlow og Dave
Koonse.
Þess má geta að þeir Jón
Páll og Ólafur Stephensen
léku síðast saman í Evrópu-
för Hauks Morthens fyrir
um það bil 40 árum.
SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1997 41
LISTIR
Harmonikan einasta
yndið mitt er
HER er aldeilis sitthvað fyrii’
unnendur harmoníkunnar, en flest
lögin eru eftir stofnanda Harmon-
ikufélags Reykjavíkur, útsetjara og
stjórnanda stórsveitar félagsins,
Karl Jónatansson, sem leikur á
harmoníkuna sína listavel, einn eða
með fleirum. Einnig leikur hann með
Stórhljómsveit Harmonikufélags
Reykjavíkur (Bláberjaaugun),
hljómsveitinni Neistum (Pigalle), og
í lokanúmerinu (sem er best og heit-
ii’ Dans bjarnarins) með fínum blás-
urum, sem heita Ari Daníelsson,
Guðmundur Finnbjömsson, Sigur-
jón Árni Eyjólfsson og Rúnar Gunn-
arsson (leika allir á saxófóna), Þor-
leikur Jóhannesson, Kristján Kjart-
ansson og Sævar Vigfússon (leika á
trompeta), Brynjar Óskarsson og
Guðjón Einarsson (básúnur), Ómar
Axelsson (bassi), Trausti Thorberg
Óskarsson (gítar) og Ingi Karlsson
(trommur). Karlakór Akureyrar
ásamt „blönduðu" liði hljóðfæraleik-
ara koma fram í Bærinn okkar
Akureyri (við texta Einars frá Her-
mundarfelli), og í Vestanvindi leikur
Karl ásamt annarri harmoníku og
klarinetti (Garðar Olgeirsson), bassa
og gítar (Sigurður Alfonsson), gítar
(Sighvatur Sveinsson, víbrafón (Árni
Scheving) og trommum (Karl 0.
Karlsson). O.s.frv.
Yflrleitt hijóma lög og flutningur
vel, og stundum mjög vel. Ekta
„harmoníkufílingur“ og góður taktur
svífur hér yfir vötnum, þótt ekld
verði því neitað að lögin séu misgóð.
Að öllu samanlögðu höfum við hé«K
verkefnaskrá í fjölbreyttum búningi,
allt frá yndislegum einmana sjarma-
töktum í La vie en rose til um það bil
30 manna stórsveitar, að ógleymdum
öðnim hljóðfæraleikurum.
í fyrsta laginu, sem er fallegt og
indælt og heitir Lillý, koma fram,
ásamt Kai’li, Sveinn R. Björnsson,
Jóna Einarsdóttir og Unnur Þorkels-
dóttir.
Kona, sem ég veit ekki hvað heitir
en hef bara mynd af, syngur í lagi
Ása í Bæ, Ur verum, og önnur í Fall-
ing in Love again. Eru þær báðar
sætar og syngja í góðum stíl við efnið*T
Oddur Bjömsson
5. JANÚAR
VERÐUR DRAUMURINN
AÐ VERULEIKA
LÁTTU SJÁ ÞIG
t:)
AVENSIS frá TOYOTA
C('■'’ 'I OYCVl \
Tákn um gœði