Morgunblaðið - 28.12.1997, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1997
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
UM HVAÐ SNÝST
UNGLÆKNADEILAN?
EINS OG kunnugt er
hefur þorri unglækna á
sjúkrahúsum landsins
hætt störfum vegna óá-
nægju með launakjör
ísín, vinnuálag og
starfsaðstöðu. Hefur
þetta þegar leitt til
mikilla erfíðleika fyrir
starfsemi sjúkrahús-
anna, sem geta ekki
lengur sinnt öðrum
verkefnum en bráða-
þjónustu. Að vísu hafa
sérfræðingar gengið í
störf unglækna að
nokkru leyti en það hef-
ur í for með sér að þeir
geta ekki sinnt öðrum störfum sem
á þeim hvíla og mun það fljótt
koma niður á skjólstæðingum
þeirra. Því er ljóst að um geysilega
alvarlegt mál er að ræða og nauð-
'synlegt að á því verði fundin lausn
hið bráðasta.
En hvað veldur þessari óánægju
ungra lækna sem hefur knúið þá til
að taka jafn afdrifaríka ákvörðun
og að segja upp starfí sínu? Ekkert
eitt svar er til við þeirri spurningu.
Um fjölþætt mál er að ræða sem að
nokkru leyti markast af lélegum
kjörum íslenskrar
læknastéttar í saman-
burði við nágranna-
þjóðirnar.
Hverjir eru
unglæknar?
Unglæknar eru þeir
læknar sem lokið hafa
kandídatsprófi í lækn-
isfræði en hafa ekki
sérfræðimenntun. Al-
mennt eru þetta mjög
hæfileikaríkir og dug-
legir einstaklingar
sem staðist hafa mikl-
ar námskröfur í
læknadeild Háskóla
Islands. Að loknu kandídatsprófí
er svo krafíst eins árs starfsþjálf-
unar til að öðlast lækningaleyfí. Að
því búnu er algengt að unglæknar
starfi hérlendis í 1-2 ár til viðbót-
ar áður en haldið er utan til fram-
haldsnáms. Störf þau er unglækn-
ar gegna á sjúkrahúsunum eru
geysilega yfirgiipsmikil og þýðing-
armikill þáttur í allri starfsemi
þessara stofnana. Þeir sinna upp-
vinnslu og meðferð flestra sjúk-
linga sem til sjúkrahúsanna leita
undir handleiðslu sérfræðinga. Að
Þorri unglækna hefur
hætt störfum vegna óá-
nægju með kjör sín.
Runólfur Pálsson telur
að stjórnvöld verði að
grípa inn í málið, ella sé
hætt við að illa fari.
stórum hluta er um að ræða bráð-
veika sjúklinga og er óhjákvæmi-
legt að veita slíka þjónustu allan
sólarhringinn, allt árið um kring.
Vegna takmarkaðs fjölda ungra
lækna og til að tryggja viðunandi
samfellu í þjónustu við sjúklinga,
þurfa ungh læknar að standa mjög
langar vaktir sem oft vara 26-80
klukkustundir. Þannig vinna þessir
læknar um 170-200 yfirvinnutíma
á mánuði. Unglæknar taka einnig
virkan þátt í kennslu læknanema
og annarra heilbrigðisstétta.
Sérstaða íslenskra
unglækna
Aðstæður lækna á íslandi eru að
því leyti sérstakar að hér er ekki
Runólfur Pálsson
hægt að bjóða upp á fullt fram-
haldsnám í læknisfræði vegna
smæðar þjóðarinnar. íslenskir
læknar þurfa að sækja þetta nám
til annarra landa sem algengt er að
taki 5-10 ár. Sú sérstaða sem hér
ríkir hefur mikil áhrif á störf og
framhaldsþjálfun ungra lækna á
Islandi. A erlendum háskólasjúkra-
húsum starfar, auk sérfræðinga,
fjölmennur hópur unglækna við
framhaldsnám. Læknar í fram-
haldsnámi búa yfir stigvaxandi
þekkingu og reynslu sem þeir afla
sér á námstímanum. Eru þeir mik-
ilvægur hlekkur í læknisþjónustu
þessara sjúkrahúsa. Hérlendis
vantar þennan hóp lækna. Hefur
skapast hér sú hefð að unglæknar
starfa á sjúkrahúsunum í 1-2 ár
að loknu kandídatsnámi og mæta
þannig að hluta þeirri þörf sem
skapast vegna vöntunar á læknum
í framhaldsnámi. Mæðir því mun
meira á unglæknum hér en víðast
annars staðar. Litið hefur verið á
þennan tíma við störf hér heima
sem vísi að framhaldsmenntun. Þá
hefur gefíst tækifæri til að
grynnka á námsskuldum áður en
haldið er utan.
Skyldur íslenskra lækna
A dögunum viðraði alþingismað-
ur þá skoðun sína að læknar stæðu
í skuld við íslenskt þjóðfélag vegna
menntunar sinnar og að þeim bæri
skylda að starfa hér á landi að
námi loknu. Þvi er til að svara að
hér eiga allir jafnan rétt til náms
°g fylg)a þrf engar skyldur hvað
varðar störf hérlendis að námi
loknu. Eins og áður hefur komið
fram hafa íslenskir unglæknar
starfað á sjúkrahúsum hérlendis í
2-3 ár að loknu kandídatsprófi til
að mæta þeirri þörf sem verið hef-
ur fyrh þeirra störf. Þá greiða
unglæknar sínar námsskuldir
hvort sem þeir starfa hér eða er-
lendis. Loks er þess að geta að
stuðningur íslenska ríkisins við
lækna í framhaldsnámi er enginn
og þurfa þessir læknar að greiða af
námslánum á meðan á námi stend-
ur, jafnvel þótt tekjur séu undir
framfærslumörkum. Þessi mennt-
un er íslenska ríkinu algerlega að
kostnaðarlausu en slíkt nám er
engu að síður kostnaðarsamt og að
því loknu eru margir læknar illa
staddir fjárhagslega.
Af hverju stafar óánægja
unglækna?
Ungir læknar á Islandi búa við
lág laun, óhóflega langan vinnu-
tíma, lélega starfsaðstöðu og ófull-
nægjandi framhaldsmenntun.
Launakjör þeirra og starfsaðstaða
standast engan veginn samanburð
við það sem gerist meðal annarra
vestrænna ríkja. Hafa þeir dregist
aftur úr mörgum öðrum hópum
hér á landi á undanförnum árum
og má segja að launakjör þeirra
markist af þeim lágu launum sem
starfsfólk í heilbrigðisþjónustu býr
við. I nýafstöðnum kjarasamning-
um uppskáru unglæknar skertan
hlut í samanburði við aðra lækna
og var þeirra sérstaða ekki virt. I
þessum samningum var tekin
ákvörðun um að hækka verulega
grunnlaun á kostnað greiðslu fyrir
yfirvinnu, sem kemur sér fremur
illa fyrir unglækna vegna hinnar
miklu yfírvinnu sem krafíst er af
þeim. Oánægja unglækna beinist
því fyrst og fremst að lækkun á
5UNDUe-
Þ/KVCÍA
LAÍMU
Mm
Loen&r
unaiN
EÐHB
TIU
EVÐ/\
HALLA-
MÆLUM
ÍKVfJ-
FGfi IN
P Rem
+
LS'fFI
líí-fííP
lesKíAM
1
NT-
OR-
M-
íR
5(t-
UNMR
. V „
Sík{
Fuul-
IfJN
HLlói)
CiEF'Uft
FRk ífcfi
MLTófi
NiANueuí
v
'/‘fVTNS
AR
Holkuk
LikAM
HluxAd
Etall
VÉIRA?'
FÆRI
5'u-lN
STlHL.
5KART-
'í ILÍA
F AT3>t>
MVNMlUU
•fAPT
ýn?ft«M
KA&T&
/AULAR.
HYTíA’
LAHOa
is-
fás\©u
ULLM2-
vUMMA
£KKI
SATTIR
SlC vn&
' i
/CAT
F«UM-
EFÞI +
*
VEINA^
v
MANNS-
NAFNI
Yotti
FVRII?
-
efn
ee&AN
AFHýíA
/ L L -
Falli
Rahd
oéra-
LÓCikJ
tí?nm
"f iMDl
ÍÁRARl
+ HLIÓH-
Soevt'
V PR-
FgeuR
MINNKAfi
FlFLIfi
HÁKAieu
I5NÍ.ULS
I(?
VletfAL
HUCSA
UM
^Óia-
VERSK
TAL A
'/AN'fAC.
RufitA
HAAMAb
Sloni
tf ie-
goRÐS'
P£K*C'
Ii+A
FI5KA
EINKÓIM
ISJTAfK?
ÍKOÍHiti
Pl?ElFA
tónn
l/ÆTiA(?
>Á^A-
5(Nril
3B It'A
AKuEfi-
|t+|vi
$0Rf>A
AVINN
H L.
VOWD
U
FNDlNA
MÁtT-
ÚRAní
)LMU(?
HANAg
+
VCyM
Á
allra
\ío«urj
PUA-
l etnR
NKFN5
£NDC(f;-
f£Klí>
H AT