Morgunblaðið - 28.12.1997, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C/D
295. TBL. 85. ÁRG.
SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLADSINS
Reuters
LÆKNAR og hjúkrunarfræðingur á neyðarmótttöku á sjúkrahúsi í
Hong Kong vörðu sig með andlitsgrímum í gær fyrir hugsanlegu
fuglaflensusmiti.
Hong Kong. Reuters.
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í
Hong Kong skýrðu frá því í gær að
fleiri tilfelli fuglaflensusýkingar
hefðu komið í ljós í landinu. Nýjar
rannsóknir sýndu að a.m.k. 30
manns hefðu sýkst en áður hafði
veikin verið staðfest í 11 mönnum
og fjórir þeirra eru látnir.
Grunur leikur á að kjúklinga-
flensan hafí borist til Hong Kong
frá suðurhluta Kína en þaðan hafa
verið fluttir inn 75.000 kjúklingar á
dag. Var innflutningurinn bannaður
í síðustu viku þar sem talið er að
veiran, sem gengur undir nafninu
H5N1, eigi rætur að rekja til fugla-
búa handan landamæranna. Marg-
aret Chan, landlæknir í Hong Kong,
sagði að sveit sérfræðingar frá Al-
þjóðaheilbrigðisstoftiuninni (WHO)
væri á leið til Kína til þess að reyna
að kanna útbreiðslu H5Nl-veirunn-
ar þar.
Enn virðist flest benda til þess að
veiran breiðist einkum út er menn
komast í snertingu við sýkta
kjúklinga. Hefur þó ekki verið úti-
lokað að hún berist einnig milli
manna, sem talið er að leitt gæti til
faraldurs. Sú smitleið virðist þó
vera mun óskilvirkari enn sem kom-
ið er, að sögn Chan.
Hún staðfesti í gær að hjúkrunar-
fræðingur hefði sýkst af fuglaflensu
eftir að hafa annast fyrsta sjúkling-
inn, ungan dreng sem lést í maí.
Læknar teldu þó að ástæðan væri
fremur snerting við útskilnaðarefni
úr drengnum en loftræn sýking
vegna hósta eða hnerra.
Flensa, sem kennd er við Hong
Kong, dró um 46.500 manns til
dauða árið 1968 og vilja yfírvöld í
landinu koma í veg fyrir annan far-
aldur af því tagi. Því beinast að-
gerðir þeirra að því að halda
veirunni í skefjum við upptök henn-
ar og koma í veg fyrir að hún berist
til landsins. Verður ekki slakað á
innflutningsbanni á kjúklingum frá
Kína fyrr en komið hefur verið á
öflugu eftirlitskerfi á landamærun-
um. Heilbrigðisvottorð verður að
fylgja öllum kjúklingum og verður
fýlgst með því með skyndiskoðun á
landamærunum að þeir séu lausir
við veiruna.
Fuglaflensutil-
fellum fjölgar
í Hong Kong
Mandela hvetur til að
Kaunda verði sleppt
Washington, Höföaborg. Reuters.
Reuters
Flokkur
lagður niður
ICHIRO Ozawa, leiðtogi Shinsinto,
stærsta sljórnarandstöðuflokks
Japans, skýrði frá því í gær að
flokkurinn hefði verið lagður nið-
ur vegna innbyrðis átaka. Var
myndin tekin við það tækifæri. Er
talið að klofningur Shinsinto muni
leiða til stofnunar allt að fimm
nýrra flokka. I síðustu kosningum
fékk flokkurinn 47 sæti af 252 í
efri deild þingsins og 126 þingsæti
af 500 í fulltrúadeild þingsins.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, sagðist í gær hafa þungar
áhyggjur af handtöku Kenneths
Kaundas, fyrrverandi forseta
Zambíu, og hvatti stjórnvöld í
Lúsaka til þess að birta honum
ákæru tafarlaust ellegar láta hann
strax lausan.
„Fangelsun pólitískra andstæð-
inga án réttarhalda brýtur í bága við
grundvallarreglur lýðræðisins,"
sagði Mandela og bætti við að suður-
afrísk stjórnvöld hefðu orðið iyrir
vonbrigðum með handtökuna. Ekld
er vitað hvar Kaunda er niðurkom-
inn en sagt var að hann hefði verið
hnepptur í fjögurra vikna varðhald
án þess að ástæður væru birtar.
Bandarísk stjómvöld fordæmdu
handtökuna og sögðust óttast að
hún hefði afar neikvæð áhrif á fyrir-
hugaðar sáttavið-
ræður allra
stjómmálaafla í
Zambíu sem ráð-
gerðar eru í
næstu viku.
Vopnaðir lög-
reglumenn birt-
ust á heimili
Kaunda í Lúsaka
á jóladag og
námu hann á brott. Kaunda, sem er
73 ára, leiddi Zambíu til sjálfstæðis
árið 1964. Hann tapaði fyrir
Frederick Chiluba, í forsetakosn-
ingum árið 1991. Hann hefur ekki
dregið sig í hlé í stjómmálum og er
leiðtogi stærsta stjórnarandstöðu-
flokksins, UNIP. Með stjórnar-
skrárbreytingum hefur Chiluba séð
til þess að Kaunda geti ekki boðið
sig aftur fram til forseta.
Kaunda sneri aftur til Zambíu
fyrir viku en hann hafði farið úr
landi í október, nokkm fyrir upp-
reisnartilraun liðsforingja í her
landsins sem taldir era honum hlið-
hollir. Hefur Kaunda neitað öllum
tengslum við þá en embættismenn
hafa sagt að lögreglan vilji yfír-
heyra hann vegna byltingartilraun-
arinnar og þvi hafí hann verið
hnepptur í varðhald.
Skotinn
í fangelsi
Belfast. Reuters.
EINN hættulegasti hryðjuverka-
maður norður-írskra sambands-
sinna, Billy Wright, var skotinn til
bana í Maze-fangelsinu í gær.
Óstaðfestar fregnir hermdu að
Wright hefði verið skotinn fímm
skotum af hryðjuverkamönnum úr
INLA, klofningshópi úr írska lýð-
veldishernum (IRA).
Hópur INLA-manna var sagður
hafa komist upp á þak fangelsisins
og farið eftir því yfir á álmu, sem
hýsir menn úr sjálfboðaher sam-
bandssinna (UVF). Höfðu þeir skot-
vopn meðferðis og skutu niður í álm-
una í gegnum þakglugga, að því er
fangar í Maze, sem ráða yfir farsím-
um, skýrðu frá í gærmorgun.
----------------
Hagnýt-
ar upp-
lýsingar?
London. The Daily Telegraph.
ÞAÐ verður sífellt algengara að
fyrirtæki skrái upplýsingar, sem
áður þóttu of sjálfsagðar til að taka
fram, á neytendaumbúðir. Mjólkur-
fyrirtæki eitt tekur til dæmis fram
á flöskum sínum að þær beri að
geyma uppréttar eftir opnun. Og á
poka með salthnetum frá breska
fyrirtækinu Sainsbury’s stendur:
„Inniheldur hnetur“.
Tímaritið New Scientist hefur
tekið saman lista yfir „neytenda-
upplýsingar" af þessu tagi og þar
er meðal annars að finna sænska
keðjusagaframleiðandann er ítrek-
ar að ekki sé mælt með að reynt sé
að stöðva sögina með handafli.
John Hoyland, dálkahöfundur á
ti'maritinu, segir ótta við málshöfð-
anir ástæðu þess að sífellt undar-
legri upplýsingar sé að finna á
vöruumbúðum. „Sumar aðvaranir
eru svo fáránlegar að halda mætti
að verið væri að gera gys að fólki. I
Bandaríkjunum er hins vegar al-
gengt að fólk fari í mál ef það gerir
eitthvað sem því hefur ekki verið
ráðlagt að gera ekki,“ segir
Hoyland.
Er það ástæða þess að fyrirtæki á
borð við Marks & Spencer merkir
búðinga með aðvöruninni „varan er
heit eftir upphitun" og rafmagns-
fyrirtækið Rowenta brýnir það fyr-
ir þeim er kaupa straujárn að ekki
sé æskilegt að strauja föt án þess
að fara úr þeim fyrst. Þá tekur
framleiðandi myndavélar, sem seld
er í Evrópu, fram að vélin sé „ein-
ungis nothæf með filmu“.
Hversu hratt
S
leysist Island upp?
LEIFI HEPPNA
LYFT Á STALL
Eitt sokkapar á sér-
hvern landsmann