Morgunblaðið - 20.03.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997 45
t
lag samræmist á engan hátt fram-
angreindum meginreglum í stjóm-
sýslu.
Er ástæða til að ætla að umhverf-
isráðherra sem stjórnvald líti hlut-
laust og faglega á umsókn og óskir
CAC þegar iðnaðarráðherra gengur
harðast fram í flokki við að gæta
hagsmuna CAC hér á landi? Er það
trúverðugt með tilliti til tengsla iðn-
aðar- og umhverfisráðherra að at-
hugasemdir vísindalegra um-
sagnaraðila um umhverfismat og
starfsleyfi CAC fái hlutlæga og
faglega skoðun hjá umhverfisráð-
herra? Er líklegt að einstaklingar
og samtök sem málið varðar njóti
sannmælis við meðferð á athuga-
semdum sínum? Að sjálfsögðu ekki,
enda liggur fyrir úrskurður um-
hverfisráðherra og hann talar sínu
máli.
Stjórnarráð íslands er ein heild.
Þannig verða ekki dregin skil á
milli iðnaðarráðuneytis annarsveg-
ar og umhverfisráðuneytis hinsveg-
ar utan þeirrar verkaskiptingar sem
helgast af ákvörðun forsætisráðu-
neytisins. Þar sem stjórnarráðið er
báðum megin við borðið í þessu
máli hefur það gerst dómari í eigin
sök og það er ósamrýmanlegt öllum
viðurkenndum sjónarmiðum um
rétta og löglega stjórnsýslumeð-
ferð.
Gera verður þá kröfu til stjórnar-
ráðs íslands að það standi vörð um
grundvallarreglur íslenskrar stjórn-
sýslu. Eins og þetta mál hefur þró-
ast liggur beinast við að forsætis-
ráðherra skipi óháða og hlutlausa
rannsóknarnefnd sem hafi það hlut-
verk að fara yfir allt þetta mál,
meta vísindalegar forsendur fyrir
álveri í Hvalfirði og hvort CAC
geti uppfyllt skilyrði í samræmi við
slíkar forsendur. Forsætisráðherra
yrði meiri maður á eftir.
Það virðist því miður vera svo
að á lægri sem æðri stjórnvaldsstig-
um hafi menn farið offari í ákafan-
um fyrir þeim aurum sem fylgja
álveri. Afleiðingin er sú að meðferð-
in á máli CAC er ekkert annað en
stjórnsýslugrín og það á kostnað
Islendinga allra. Hversu dýrkeypt
það verður kemur í ljós síðar.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
[llir sjá að það er auðveldara fyrir hjólreiða-
manninn á neðri myndinni að komast áfram.
Þannig er það einnig með þjóðarbú-
skapinn. Það væri auðveldara fyrir
okkur öll ef leiðin væri greið.
Ef sveiflurnar eru jafnaðar njótum
við stöðugri tekna og þægilegra lífs,
hagvöxtur eykst og lífskjör batna.
Samkeppnisstaða gagnvart öðrum þjóðum batnar til
muna.
Hagstæð samkeppnisstaða hefur skilað sér í
aukinni sókn á flestum sviðum atvinnulífsins og á
sinn þátt í að tekist hefur að auka útflutning og
fjárfestingu í atvinnulífinu.
A Ð G E R Ð I R
Stjórnvöld og atvinnultf
mótifrekari aðgerðir til
sveiflujöfnunar ogfylgi
þeim eftir.
Því er afar þýðingarmikið að samkeppnisstaða
íslensks atvinnulífs verði sem best og gerðar verði
sérstakar ráðstafanir til að koma í veg
fyrir þær stórfelldu sveiflur sem hafa
einkennt þróun hennar í áranna rás.
Það er allra hagur að fylgja
skynsamlegri hagvaxtarstefnu og
hafna þröngri atvinnugreinastefnu.
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
Daía-Brie er hreint fráhœr ostur, Ijúffengur einn sér eða með ávöxtum,
grænmeti og kexi.
Veisla, teiti, saumaklúbbur eða róleg stund, kvert sem tilejnið er þá
getur jjú alltaf treyst á Dala-Brie. Og svo getur Dala-Brie verið tilefni
út af fyrir sig...
ISLENSKIR ^