Morgunblaðið - 20.03.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997 23
Stórslys í
sprengingu
UM 40 manns fórust og 150
slösuðust þegar vopnabúr í
borginni Jalalabad í Afganistan
sprakk í loft upp í fyrradag.
Var um að ræða vopnabirgðir,
sem stjórn Taleban-hreyfingar-
innar í Kabúl hafði tekið af
ýmsum skæruliðahópum og
hafði þeim verið safnað saman
á lögreglustöð. Eru sjúkrahúsin
í borginni yfirfull og skorað var
á óbreytta borgara að koma til
hjálpar.
Dagsverkfall
í Rússlandi
MÍKHAÍL Shmakov, formaður
Samtaka óháðra verkalýðsfé-
laga í Rússlandi, sagði í
Moskvu í gær, að um sjö millj-
ónir manna ætluðu að leggja
niður störf í einn dag í næstu
viku til að mótmæla því, að
margir hafa ekki fengið laun
sín greidd mánuðum saman.
Stjórnarandstaða kommúnista
vonar, að mótmælin verði upp-
haf nýrrar atlögu gegn stjórn
Borís Jeltsíns en samt hefur
stemmningin minnkað mikið
vegna þeirra breytinga, sem
gerðar hafa verið á rússnesku
stjórninni.
Fólki smygl-
að til Japans
SMYGL á ólöglegum innflytj-
endum til Japans hefur stór-
aukist og til að bregðast við
því hafa stjórnvöld í landinu
ákveðið að þyngja refsingar við
því úr 18 mánaða fangelsi í 10
ár. Sektir verða einnig stór-
hækkaðar. Á fyrstu tveimur
mánuðum þessa árs handtók
lögreglan 581 Kínveija, sem
smyglað hafði verið landsins,
en allt síðasta ár náðist til 545.
Jóhanna af
••
Ork fjarlægð
CATHERINE Trautmann,
borgarstjóri í Strassborg í
Frakklandi, hefur látið íjar-
lægja um
stundarsakir
styttu af Jó-
hönnu af Örk.
Er ástæðan
sú, að Þjóð-
fylking Jean-
Marie Le
Pens ætlar að
halda flokks-
þing í borginni en hún hefur
gert Jóhönnu að sameiningar-
tákni sínu. Kvaðst Trautmann
óttast, að unnar yrðu skemmd-
ir á styttunni en andstæðingar
Þjóðfylkingarinnar hafa boðað
til mótmæla.
Hvatt til
rannsóknar
DICK Spring, utanríkisráð-
herra írlands, sagði í fyrradag,
að ný rannsókn á atburðum
Blóðuga sunnudagsins í Lond-
onderry fyrir 25 árum yrði að
vera eitt af fyrstu verkum nýrr-
ar stjórnar í Bretlandi. Fyrir
nokkrum dögum sagði breskur
hermaður, sem var í Londond-
erry 1972, að þeim hefði verið
skipað að skjóta til að drepa
og annar sagði, að allt hefði
farið úr böndunum hjá breska
herliðinu í 15 mínútur. írska
stjórnin er að ljúka mikilli sam-
antekt á atburðunum í Lon-
donderry en þar voru 14
óbreyttir borgarar skotnir.
Útgöngubann
í Mandalay
Rangoon. Reuter.
HERSTJÓRNIN í Burma hefur
sett á útgöngubann í Mandalay,
annarri stærstu borg landsins, eft-
ir að þar kom til átaka milli búdda-
munka og múslima. Hefur vegar-
tálmunum verið komið upp víða í
borginni og aðalmarkaðnum lokað.
Talsmaður herstjórnarinnar
sagði, að búddamunkar hefðu unn-
ið skemmdir á nokkrum húsum og
moskum eftir að ungur múslimi
misþyrmdi stúlku, sem er búdda-
trúar. Sagði talsmaðurinn, að
óeirðirnar væru runnar undan rifj-
um manna, sem vildu valda ókyrrð
og koma í veg fyrir inngöngu
Burma í ASEAN, Samtök Suðaust-
ur-Asíuríkja. Burmastjóm vonast
til að fá aðild að þeim á þessu ári.
Þúsundir námsmanna tóku þátt
í mótmælum gegn herstjórninni í
Burma í desember sl. og síðan
hafa allir háskólar í landinu verið
lokaðir. í Mandalay býr stór hluti
búddamunka í landinu og 90% íbú-
anna þar eru búddatrúar. Munkar
voru framarlega í baráttunni fyrir
lýðræði í landinu á árunum 1988
til ’90 en síðan hefur lítið farið
fyrir þeim. Hefur þeim verið haldið
niðri með hótunum og einnig með
því gera sérstaklega vel við æðstu
menn í þeirra hópi.
Búddamunkar njóta mikillar
virðingar í Burma og talið er, að
án liðsinnis þeirra verði barátta
lýðræðissinna gegn herstjóminni
erfiðari en ella.
lai®
ALLAR G0TUR SIÐAN1925
Skeifunni 11 , sími 588-9890
C-4KLGIH
GARY FISHER
n>
suimnno
G
CMPSHIFT—
&
CATEYE®
LEMOND'
hjálmar .
fyrstir og fremstir
gírar»bremsur«SPD skör
girskiptar
og annar gírbúna&ur
Ijósabunaður »hraðamælar
sporthjól
í sérflokki
Helstu útsölustaðir: Örninn Reykjavík, Hjólið v/Eiðistorg Seltjarnarnesi, Músik og Sport Hafnarfirði, Pípul.þjónustan Akranesi,
Olíufél. útvegsmanna ísafirði, Hegri Sauðárkróki, K.S. Sauðárkróki, Sportver Akureyri, K.Þ. Húsavík, Skeljungsbúðin Vestmannaeyjum,
Hjólabær Selfossi, Birgir Oddsteinsson Hveragerði, Stapafell Keflavík.