Morgunblaðið - 16.07.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16.JÚLÍ 1995 B 5
J-1
* - L 4
s* Bti*
BRYNDÍS Snjófsdóttir stendur næst borðinu við verðlaunagri-
pina, ásamt eiginmanni sínum Helga Arngrímssyni og starfs-
fólki Alfasteins: Björgu Aðalsteinsdóttur, Sigurlínu Kristjáns-
dóttur og Elsu Jónsdóttur.
Kjarkurinn til
að gera nýtt
Pálmi Guðmundsson
Altaristafla Kjarvals í
Bakkagerðiskirkju
1897 var Þorsteinn Jónsson eini
kaupmaðurinn á Borgarfirði, bæði
með verslun og útgerð.
Þorsteinn Jónsson var áræðinn
athafnamaður sem fór í mörgu geist
og sumarið 1905 reyndist honum
örlagaríkt. Hann veðsetti allar eign-
ir sínar og réði til sín yfir 100 Norð-
menn, gerði út 23 báta frá Seyðis-
firði og 45 frá Borgarfirði. Alls hafði
hann 76 Norðmenn á Borgarfirði
þetta sumar.
Flestir Norðmennirnir bjuggu í
sjóskúrum sem Þorsteinn „borgari"
átti, aðrir fengu leigð herbergi í
þorpinu. Um sumarið bárust fregnir
af stríði milli Norðmanna og Svía.
Hófu þá Norðmennirnir á Borgar-
firði heræfingar til að undirbúa
heimkomuna til Noregs. Séra Vigfús
Ingvar Sigurðsson sóknarprestur
skrifaði þá: „Þótti Borgfirðingum af
því hin mesta tilbreytni og nýlunda
að horfa á æfingar þeirra.“
Því miður fyrir Þorstein „borgara"
fiskaðist lítið þetta sumar og fengu
Norðmennirnir ekki mikið fyrir sinn
snúð. í heimildum sem notaðar eru
í Sögu Borgarijarðar eystra stendur:
„Þorsteinn hafði eftir samningi
átt að kosta ferðir þeirra upp og
frakt á bátunum og einnig ferðir
þeirra út. Við uppgjör tók Þorsteinn
bátana upp í skuld á virðingarverði.
En ekki var allt búið með því. Nú
hafði hann ekki peninga í fargjöld
handa þeim. Sá varð endir á því
máli að hann bauðst til að fara með
þeim til Eskifjarðar, því þar vonaðist
hann eftir að fá peninga í bankaúti-
búinu. En þessi von brást og Þor-
steinn fékk þar enga peninga. Norð-
menn urðu þá æfir og heimtuðu að
Þorsteinn færi með þeim út og gerði
þar skil. Þeir héldu honum svo um
borð í bátunum og hótuðu að höfuð-
ið skyldi af ef hann ræki það upp
úr lúkarnum. Axel Tulinius var þá
sýslumaður og sat á Eskifirði, en
var ekki heima. Maður að nafni Jón
Runólfsson var sýsluskrifari hjá hon-
um. Það var nú að ráði að hann fór
um borð í einkennisbúningi og fékk
náð Þorsteini."
Þorsteinn „borgari" tapaði Norð-
mannasumarið mikla og í raun varð
það upphafið að endalokum verslun-
ar hans á Borgarfirði. En nú eru
hundrað ár liðin og hátíðarhöld dag-
anna 21-23 júlí og óvíst hvort marg-
ir norskir sjómenn sæki á þau mið.
Bryndís Snjólfsdóttir er frá
Djúpavogi en hefur búið á
Borgarfirði eystra í 14 ár og
unnið í steiniðjunni Álfasteini
í 10 ár. Hún á fjögur börn með
manni sínum Helga Arngríms-
syni, framkvæmdasljóra Álfa-
steins.
Bryndís tók nýlega þátt í
hönnunarsamkeppni á vegum
Drekans á Egilsstöðum, sem er
sýning á starfsemi fyrirtækja á
Austurlandi, og hlaut fyrstu
verðlaun. Verk hennar er unnið
úr íslenskum granófýr steini.
Hún kallar það borðsett; osta-
bakki, sex glasamottur, sérví-
ettuhringir, sérvíettustatíf,
stoð með kerti til að halda tek-
alti heitum og kertasljakar.
Bryndís segist kunna vel við
sig í fámenninu enda vön því
frá æsku. Vandinn hinsvegar
með fámenna staði eins og
Borgarfjörð eystra er að börn-
in sem fara að mennta sig koma
ekki aftur nema í undatekning-
artilfellum. Það væri mikils
virði ef unga fólkið skilaði sér
aftur heim en atvinnutækifær-
in eru ekki augljós. Unga
menntafólkið reynir að fá
vinnu á æskuslóðunum á sumr-
in og sýnir það vel löngunina
til að geta átt þar heima.
Ráðið til að halda Borgar-
firði í byggð er að fólkið hrindi
hugmyndum sínum sjálft í
framkvæmd en treysti ekki um
of á aðra. Það þarf kjark til
að byrja á einhverju nýju.
Dæmi um það er nýtt fyrirtæki
Helga Hlyns Ásgrímssonar,
Borgfiskur, en hann festi kaup
á reykofni og kald- og heitreyk-
ir fisk. Unga fólkið sem vill búa
hérna verður að gera líkt og
hann; leita að möguleikum og
gera þá að veruleika.
Borgarfjörður heillar marga
sem þangað koma. Ferðaþjón-
usta er eitt af því sem Borgfirð-
ingar hafa augastað á, en
hvernig gengur að laða þá að?
Ferðamenn eru aðeins færri
núna en á sama tíma í fyrra.
Það voraði seint í ár en tíðin
er orðin góð. Vegirnir spila líka
inn í þetta, til dæmis milli Borg-
arfjarðar og Egilsstaða. Það
mætti malbika meira. Á góðu
sumri koma margir gestir og
njóta fegurðarinnar. Á síðasta
ári komu yfir tíuþúsund manns
Það vegur þungt fyrir þjónustu
fyrirtækin að ferðamenn hafi
áhuga á að koma í heimsókn.
Bryndís segist ekki vera
svartsýn því hún sér möguleik-
ana allt í kring. Framtíðin fyrir
fámenna staði eins og Borgar-
fjörð eystra felst í framtakssen
íbúanna, að ýta hlutunum úr
vör. Hún er til dæmis sannfærð
um að sumarhúsabyggð væri
góður kostur á Borgarfirði. Þa
er eftirspurn en ekkert frambo
af þeim. Það væri góð hugmym
að byggja nokkra bústaði, og
myndi renna styrkari stoðum
undir ferðaþjónustuna.
Gestir sem heimsækja Borg-
arfjörð spyija íbúanna stundum
„Hvernig getið þið búið hérna,
aflokuð af fjöllunum, farið yfir
fjallvegi og skriður, og hvort
þetta sé ekki ákaflega einangr-
að? “ Bryndís upplifir það ekki.
Á vetrum eru vegir ruddir tvisv-
ar í viku og Flugfélag Austur-
lands flýgur til Borgarfjarðar
fimm sinnum í viku ef veður
leyfir.
Þau 10 ár sem Bryndís hefur
unnið l\já Álfasteini hefur henn-
ar aðalstarf verið að skera út
myndir í steina. Hjá Álfasteini
er nú kynnt ný vörulína og hef-
ur Bryndís unnið talsvert við
hana, auk þess sem hún hefur
yfirumsjón með pöntunum og
verslun Álfasteins.
Bryndís og Helgi maðurinn
hennar búa í húsi sem heitir
Réttarholt og er það umlukið
fallegum garði. Störfin í garðin-
um eru hluti af tómstundunum.
Bryndís er annars mikil félags-
málamanneskja og beitir sér í
ungmennafélaginu, æskulýðs-
starfi kirkjunnar og leikfélag-
inu. Hún hefur hannað og málað
leikmyndir hjá Leikfélaginu
Vöku, meðal annars í leikritinu
Álfaborginni sem sýnt var í vor
og byggðist á álfasögum og
þjóðtrú úr Borgarfirði.
Bryndís er mikið náttúrubarn
og væri meira á fjöllum ef hún
gæti. Hjónin ætla í sumar að
eyða tveimur dögum suður í
Víkum og tína fjörugrjót fyrir
Álfastein og fá svo bát til að
sækja það.
Rosenthal _ pegar pá «lur a°f
• Brúðkaupsgjafir
• Tímamótagjafir
Hönnun oggæði í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244.
Dimmalimm
Skólavörðustíg 10,
s. 551 1222
oitily FIDRII.DID oitily
Lokað mánudag
Útsalan hefst þriðjudag
Opnum kl. 10
l=IORII.DID
Borgarkringlunni, sími 568 9525.
MYNDÞERAPIA
Verklegt námskeið, þar sem myndin er notuð til tjáningar og samskipta.
Aðallega ætlað kennurum, fóstrum, þroskaþjálfum, sálfræðingum,
hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í uppeldis-, félags-, og heilbrigðis-
þjónustu. Þátttakendur þurfa ekki að hafa hæfni í teiknun eða málun.
Á námskeiðinu æfa þátttakendur sig í ýmsum þáttum myndþeraþíunnar s.s.:
• Sjálfstjáningu í gegnum: eigið myndferli,
myndskoðun og gagnkvæm samskipti í
hópumræðum
• Sjálfsprottinni myndsköpun
• Hugmyndaflugi og skapandi hugsun
• Innsæi
• Hópefli
• Sjálfsstyrkingu \
KennarierSIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, löggiltur félagi
í „The Brithish Association of Art Therapists" (BAAT).
Innritun og nánari upplýsingar [ síma 17114 i kvöld
eftir kl. 20.30 og einnig flest næstu kvöld.