Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 35 „Ég sá það á öllu, að sumarið er á förum Ég sé það á fótataki og andHtum mannanna. Það er eins og öllum sá kalt og allir sáu að fíýja eitthvað, sem alltafer komið á undan þeim. Og þeir hraða sár heim, heim, gegnum myrkrið, og segja við sjálfa sig þegar inn kemun Það varþógott, aðégkomstundan! Já, haustið hans Tómasar er komið í Borginni. Menn famir að hraða sér heim gegn um vaxandi myrkrið með degi hveijum. Haustið er komið með leiksýningum, listaviðburðum og nýjum bókum að lesa í nota- legum raflýstum stofunum meðan myrkur grúfir á glugga. Hafnir aliir fastir liðir eins og venjulega á haustdögum. Þar með fj árlagagerð ríkis og sveit- arfélaga með löngum ræðum og hefðbundnum viðbrögðum í sal og utan sala: Við viljum að fallið verði frá sköttum á matvæli, bifreiðir og allt það sem fólk þarf að nota eða hefur gaman af að nota. Við viljum auka framlög til aldraðra, öryrkja, íþróttamanna og alls þess sem gott er og gaman. Við viljum engan niðurskurð. Við viljum hallalaus fjárlög. Við viljum tekjuafgang í ríkissjóð. Við viljum engin köld efna- hagsleg rök ... Ur útvarpinu skella setning- amar á dottandi hlustandanum. Augnalokin síga. Sagan hans James Thurber af föðumum og dóttur hans lifnar: „Litla stúlkan fékk svo marg- ar myndabækur á sjö ára afmælinu sínu að pabba henn- ar, sem hefði átt að vera að stjóma á skrifstofunni sinni og láta móðurinni eftir að stjóma heimilinu, fannst að dóttir hans ætti að gefa eina eða tvær þeirra stráknum í næsta húsi, honum Róbert, sem fremur af ásetningi en tilviljun hafði litið inn hjá þeim. Að ná bók, eða hverju sem er, af lítilli stúlku er raunar eins og að taka vopn af Araba eða sælgætismola af bami, en faðir- inn kom sínu fram og Róbert fékk tvær af bókunum hennar. „Þú átt samt sem áður eftir níu“, sagði pabbinn, sem fannst hann heilmikill heimspekingur og bamasálfræðingur, og sjálfsánægjan kom í veg fyrir að hann gæti haldið sér saman. Nokkmm vikum síðar gekk pabbinn að bókahillunum sínum til að fletta upp orðinu „faðir“ í Oxfordensku-orðabókinni sinni, ætlaði að njóta lofsam- legra ummæla um föðurhlut- verkið frá upphafí vega, en hann gat þá ekki fundið bindi F-G. Svo uppdagaði hann að líka vantaði þijú önnur bindi, A-B, L-M og V-Z. Upphófst mikil leit í dymm og dyngjum og brátt kom í ljós hvað orðið hefði um orðabækumar sem vantaði. „Það kom maður og hringdi dyrabjöllunni í morgun“, sagði litla dóttir hans. „Hann rataði ekki héðan niður á Tryggva- götu, eða frá Tiyggvagötunni upp á Vatnsstíg. Þetta var svo góður maður, miklu betri en Róbert, svo ég gaf honum fjór- ar af bókunum þínum. Bindin af Oxfordorðabókinni þinni em 13, svo þú átt samt eftir níu.“ MÓRALLINN í sögunni: Þann sannleika má þekkja allt frá Menander, að það sem gott þykir fyrir gæsaungann er ekki gott fyrir gæsastegginn." „Fjármagnið er bara bandótt og leikur lausum hala...92% hækkanir hjá ríkinu og 7% eiga að duga hjá okkur hinum,“ tek- ur aftur að ná meðvitundinni. Þetta berst þó óvéfengjanlega frá útvarpstækinu. Já, satt er það, góðgæti fyrir gæsapabba er ekki endilega góðgæti handa gæsabaminu. Tortrygginn á að treysta megi alfarið setningum sem berast á vængjum ljósvak- ans í hita bardagans úr virðu- legum þingsölum, tekur hlustandi að kíkja í fjárlaga- frumvarpið. Mikið rétt, hús- bændur á þjóðarheimilinu ætla ekki að spara jafnt og hinir á næsta ári. Hækkanir mestar á toppnum, hjá forsetaembætti og ráðuneytum. Meðan hækkun skrifstofukostnaðar almennt er reiknuð innan við 40% annars staðar, fer hann jafnvel upp fyrir 100% í ráðuneytunum. Gildir víst ekki fyrir gæsastegg- inn það sem honum fínnst hollt og gott fyrir ungana Viðeigandi ljóð í pistil dags- ins er því „Samkvæmisspil vorra daga“ eftir Piet Hein, sem af óræðum ástæðum skýtur hér upp í hugann í íslenskum bún- ingi Helga Hálfdánarsonar: Það skiljum við allir hver öðrum betur að ábyrgð erþessháttar Svarti-Pátur sem allir hafa lag á að lendi að loknu spili á annars hendi. Ps: Situr eftir setning með kvenrödd um það leyti sem út- varpsumræður svifu á vit drauma. Sú nefndi sem dæmi um að einhveijir meini ekkert með hjali um byggðastefnu, að höfuðborgarbúar vilji ekki greiða niður orkukostnað fyrir hina. Vont dæmi þessa dagana, er í afmæligreinum um Ljósa- fossvirkjun kemur fram að árlega dælir þessi skuldlausa virkjun inn í orkuframleiðsluna fyrir landið allt 84 milljónum króna að meðaltali og hinar virkjanimar, sem Reykjavíkur- borg lagði í púkk Landsvirlgun- ar, Irafossvirkjun 194 milljón- um og Steingrímsstöð 100 milljónum króna. Vinsamleg ábending, meðan beðið er eftir að þetta gleymist aftur, má vísast fínna betra dæmi til að splundra vorri þjóð. Eða þannig! KAFFIHÚSIÐ í KRINGLUNNI KaffiMaðbori ídag milU kl. 13 qé 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.