Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 REWIAvflCUR Leikritasamkeppni í tilefni af opnun Borgarieikhúss efnir Leikfélag Reykjavíkur til leikritasamkeppni. Frestur til að skila inn leikritum er til 31. október 1988 og mun dómnefnd skila úrskurði sínum 15. janúar 1989. Dómnefndina skipa: Hallmar Sigurðsson, leik- hússtjóri, Hafliði Arngrímsson, tilnefndur af Rithöfundasambandi íslands, og Sigríður Hagalín, leikari. Samkeppnin er tvíþætt, þar sem annars vegar verða veitt verðiaun fyrir barnaleikrit og hins veg- ar leikrit, sem ekki er bundið því skilyrði. Verðlaunaupphæð nemur samtals kr. 1.000.000, og er upphæðin bundin lánskjaravísitölu nóvem- bermánaðar 1987, 1841 stig. Veitt verða ein fyrstu verðlaun í hvorum flokki, ekki lægri en kr. 300.000 hver, en að öðru leyti hefur dómnefnd frjálsar hendur um skiptingu verðlauna. Verðlaun eru óháð höfundarlaunum ef verkin verða valin til flutnings hjá félaginu og áskilur Leikfélag Reykjavíkur sér forgang að flutningsrétti á öllum innsendum verkum í samkeppnina. Leikritum skal skila með dulnefni eða kenni og skal fylgja lokað umslag merkt sama dulnefni eða kenni með réttu nafni höfundar. Kristinn Árna- son, skipsijóri Kristinn Árnason, stýrimaður og skipherra hjá Landhelgisgæslunni, er látinn. Hann fæddist í Ólafsfirði 31. janúar 1933, sonur hjónanna Áma Bergssonar, kaupmanns og símstöðvarstjóra, og konu jians, Jóhönnu Magnúsdóttur. Á Ólafs- firði hóf Kristinn ungur það starf, sjómennskuna, sem varð síðan ævi- starf hans. Kristinn varð bráð- kvaddur um borð í skipi sínu varðskipinu Tý þann 7. október síðastliðinn. Kristinn lauk far- mannaprófi frá Stýrimannaskólan- um í Reykjavík 1961, og stuttu síðar skipstjóraprófi á varðskip ríkisins frá sama skóla. Hann hóf þá þegar störf hjá Landhelgisgæsl- unni, sem stýrimaður og starfaði þar eins og áður sagði til dauða- dags. Leiðir okkar Kristins lágu saman þegar hapn varð stýrimaður á varð- skipinu Óðni að loknu stýrimanns- námi hans. Með okkur tókst vinátta, sem hélst æ síðan. Mér verða lengi minnisstæðar ferðir okkar tii að skera úr skrúfum síldarbáta þegar við vorum samskipa á aðstoðarskipi síldveiðiflotans í norðurhöfum, en þá fylgdu varðskipin eftir flotanum, sem aðstoðar- og hjálparskip. Mikið Innilegar þakkir sencti ég öllum þeim, sem glöddu mig á 60 ára afmœlisdaginn minn. GuÖ blessi ykkur öll og bœnheyri. HalldórS. Gröndal. - Miðsvæðis á rólegum stað í borginni. -100 glæsileg herbergi með stórum þægilegum rúmum. - Hentug samliggjandi herbergi fyrir fjqlskyldur. - JJtasjónvarp, minibar og hárþu/rka á hverju herbergi. - Verið velkomin. * f ' * Sigtúni 38, 105 Reykjavík Simi (91) 689000 s I / - Opið öll kvöld. - Stórglæsilegir oggómsætir réttir við ikertaljós og hátíðlegan blæ. ■*- Metnaður í matargerðarlist og þjónujstu. - Ver(ð velkomin. * '■ \ Sigtihn%38, 105 Rcykjavík Sími (91) 689000 var að gera við að hreinsa net og annað úr skrúfum skipa og oft margar kafanir á dag, bæði við íslensk skip og erlend. Við þær aðstæður, sem þama voru, varð mér fljótt ljós sá óhemju dugnaður og ósérhlífni sem einkenndi Kristin Ámason, og það varð mér dýrmæt reynsla að fá að vinna með slíkum manni. Hann var hvorutveggja góð- ur sjómaður og verklaginn við flest störf. Árið 1971 byijaði Kristinn Árnason að leysa af sem skipherra á varðskipunum og fyrsta ferð hans var að sinna ákveðnu verkefni við Svalbarða en skip hans var þá leigt bandarískum háskóla, sem vann að ákveðnum rannsóknum í íshafinu. Verkefni þessu sinnti hann af kost- gæfni eins og þeim er/honum vom síðar falin. Á seinni þorskastríðsárunum og síðar var Kristinn oft skipherra á hinum ýmsu varðskipum um lengri eða skemmri tíma. Er mér sérstak- lega minnisstæð ferð á varðskipinu Albert til Austfjarða, en þar var hann skipherra. Varðskipið Albert var ekki stórt skip og síst smíðað til mikilla átaka við togara eða dráttarbáta. Áhöfnina skorti ekki kjark til að takast á við verkefni er þeim vom ætluð þó við ofurefli væri að etja. Mikil ásókn breskra togara var á miðunum við Hvalbak og var ákveðið að reyna að klippa togvírana af einum þeirra. I fyrstu tilraun tókst að koma klippunum á togvírana, en ekki rejmdist unnt vegna lítillar vélarorku Alberts að klippa togvírana í sundur og hékk hann nú fastur við togarann með vírinn strengdan milli skipanna og breskan verndardráttarbát stutt frá. Sá stefndi á fullri ferð að Al- bert vafalaust með ásiglingu í huga. Þá sýndi Kristinn skipherra þá festu og rósemi er honum var einkar lag- ið á slíkum stundum. Vírinn tókst að höggva frá varðskipinu á síðustu stundu og árekstri varð forðað. Ekki mátti miklu muna og ég er viss um að í þetta skiptið bjargaði rósemi Kristins því sem bjargað varð en ekki mátti miklu muna í það skiptið. Kristinn Árnason var góður fé- lagsmálamaður og áttu málefni starfsmanna Landhelgisgæslunnar mikinn hug hans. Sérstaklega voru orlofshús starfsmannanna honum hugleikin og á engan hallað þó sagt sé að honum megi þakka það helst, að land undir orlofshús var fengið á hinum fallega stað í Grónesi í Gufudalssveit og framkvæmdir hafnar við byggingu orlofshúsa. Árið 1960 gekk Kristinn að eiga Sigríði Auðunsdóttur frá Dverga- steini í Álftafirði, ágæta konu, sem bjó manni sínum fallegt heimili. Þau tóku tvö kjörsyni, Árna fæddan 8. desember 1965, og Auðunn fæddan 18. mars 1972. Þau hjón slitu sam- vistir eftir langan hjúskap, en með þeim var vinátta og sonum sínum var Kristinn góður faðir. Síðastliðið ár bjó Kristinn með Freyju Jóns- dóttur. Ástvinum hans er nú sár söknuður búinn. Megi góður guð blessa minningu Kristins Árnason- ar. Hálfdan Henrýsson ■4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.