Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 mátt eyða meiri tíma í að heimsækja það á meðan það var á lffi. Ég ráð- legg einnig ættingjum að skipuleggja heimsóknimar á sjúkrahúsin, koma ekki allir í einu heldur dreifa heim- sóknunum. Ef fólk er tímabundið þá ætti það alls ekki að koma i bytjun heimsóknartímans og fara í miðjum tíma, heldur koma frekar seinna og fara um leið og fólkið er að fara frá öðmm sjúklingum. Þetta er sálrænt atriði sem getur haft mikið að segja. Ég hef líka aðeins umgengist van- gefið fólk á Vistheimilinu Sólborg á Akureyri. Ég byijaði á því að heim- sækja mann héðan sem þar er vistmaður og hef síðan eignast fjölda kunningja þar og núna fer ég alltaf á Sólborg þegar ég kem til Akur- eyrar. Það er ekki til þakklátara fólk fyrir það litla sem maður gerir fyrir það.“ Fréttaritari Morgnn- blaðsins í hálfa öld Silli hefur verið fréttaritari Morg- unblaðsins á Húsavík í 50 ár. Hann og Bjöm Jónsson á Höfðaströnd, Bjöm í Bæ, em þeir fréttaritarar blaðsins sem lengst hafa starfað. Silli segir að Valtýr Stefánsson rit- stjóri hafi ráðið sig þegar hann, innan við tvítugt, kom suður í Verslunar- skólann og segir að þeir starfsmenn sem þá vom við blaðið séu allir hætt- ir, flestir fyrir löngu. Silli nefnir tvö eftirminnileg atvik úr fréttaritarastarfinu. Minnisstæð- asti atburðurinn er þegar Súðin varð fyrir árás Þjóðveija djúpt út af Skjálfanda 16. júni 1943. Segist hann hafa látið Morgunblaðið vita og síðan hafi hann verið beðinn að taka myndir af skipinu þegar það kom að landi. Höfðu Morgunblaðs- menn fengið til þess leyfi hjá setulið- inu. „Ég fór um borð, en var stöðvaður af vopnuðum yörðum, sem mættir vom með alvæpni. Tjáði ég þeim að ég hefði leyfí, en þeir tóku af mér myndavélina og ætluðu að kanna máíið. Niðurstaðan varð sú að ég fékk vélina aftur og leyfi til að mynda á mínu gömlu og lélegu vél og ég held að það séu einu mynd- imar sem til em af þessum atburði." Hann nefnir einnig aprílgabbið frá 1960. Þá sendi hann suður tilbúna frétt um risalax (88 punda!) sem átti að hafa veiðst við Grímsey, með þeim skilaboðum að fréttin mætti ekki birtast í blaðinu fyrr en 1. apríl. Stækkaði hann upp mynd af laxi þannig að það leit út fyrir að sjómaðurinn héldi á risalaxi. Þetta aprílgabb heppnaðist svo vel að það var birt í „Öldinni okkar“ og myndin með, athugasemdalaust eins og heil- agur sannleikur. Fýrstu árin annaðist Silli líka dreifingu Morgunblaðsins á Húsavík. Þá komu þangað 10 eintök og vom áskrifendumir ekki svo margir. Hann fór óvenjulegar leiðir í sölunni. Setti upp Morgunblaðssjálfsala í forstofu sparisjóðsins og segir að það hafi bara gengið vel. Silli segir að sér hafi líkað frétta- ritarastarfið vel. Hann hafi bara haft of lítinn tíma til að sinna því, en nú þegar rýmra yrði með tíma ætlaði hann að reyna að senda meira af fréttum frá Húsavík. Hann segir að sér hafi alltaf leiðst að senda hörmungafréttimar og verði að við- urkenna að hann sé lélegur í þeim. En hann hafi litla gagnrýni fengið á fréttir sínar frá Húsavík enda hafi hann reynt að vera vandur að heim- ildum. Annað áhugamál Silla, sem raunar tengist fréttaritarastarfínu, er ljós- myndun. Hann hefur tekið mikið af myndum af fólki, byggingum og at- burðum á Húsavfk og nágrenni og hefur útbúið hluta þeirra til sýning- ar. Hann segist hafa mest gaman af að taka heimildarmyndir, en á ámnum eftir 1950 var enginn ljós- myndari starfandi á Húsavík og hafi hann þá oft verið beðinn að mynda fólk. „Þá gekk ég í hús og ljósmyn- daði eingöngu böm sem engar myndir vom til af. Þetta vildi ég gera ef bömin myndu deyja. Það hefur komið fyrir að ég hef átt einu myndimar af bömum sem hafa dáið og getað látið ættingjana hafa þær.“ Annáll Húsavíkur sendur til brottf luttra Silli hefur í mörg ár sent brott- fluttum Húsvíkingum og öðmm kunningjum sínum óvenjulega jóla- 29 Silli sá um dreifingu Morgunblaðsins á Húsavík fyrir mörgum árum. Þá tók hann upp þá nýbreytni að setja upp Morgunblaðssjálfsala í forstofu sparisjóðsins. Hann tók þessa mynd af Ragnheiði Guðmunds- dóttur hjúkrunarfræðingi að kaupa sér blað. kveðju. „Mér fannst svo þurrt að senda þessi venjulegu jólakort og reyndi því að finna eitthvað nýtt. Ég fór svo að taka saman „ágrip af Húsavíkur-annál" og senda kunn- ingjum. Þetta hefur verið vinsælt og ég veit til þess að annállinn hefur verið lesinn upp í saumaklúbbum og gengið á milli heimila. Þetta em nú orðin 200 eintök. Það er töluvert mikil vinna að útbúa annálinn. Ég skrifa hjá mér allt árið á lausa miða það sem ég tel að f annálinn þurfi að koma og síðan .þarf ég að skrifa þetta nokkmm sinnum upp til að fá það f rétt form. Mikið af fólki hefur flutt frá Húsavík og er mikil eftirsjá af mörg- um stómm Qölskyldum sem hafa nærri því hoifið úr byggðarlaginu. Þessar fjölskyldur vora áberandi í bæjarlffinu á mfnum uppvaxtarárum, til dæmis Qölskyldur Havsteens, Bjama Ben., Guðjohnsens og Bened- ikts Bjömssonar. Húsavfk hefur breytst mikið. Það var svo mikill samgangur á milli flölskyldnanna f bænum. Farið var í heimsóknir á afmælisdögum og þá gjaman tekið í spil og sungið fram á nótt. í slíkum veislum var áfengi aldrei haft um hönd og má þakka það konunum." Nú þegar Silli lætur af starfi úti- bússtjóra flytur hann úr fbúðinni á efri hæð Landsbankans og f gamla læknishúsið við hliðina þar sem hann átti heima í 40 ár. Landsbankinn hefur eignast húsið og er að innrétta þar íbúð. „Landsbankinn ætlar að búa mjög vel að mér þar. Ég hef lítið hugsað hvað við tekur, nema hvað ég er ákveðinn f að flytja ekki frá Húsavík að svo stöddu. Ég tel að hér hafí ég frekar verkefni til að sinna en annars staðar. Þó ég hafi svo til alla mfna starfsæfi verið yfirmaður á vinnustað hef ég haft mína yfirstjóm og notið trausts minna yfirboðara sem ég met mikils og þakka," segir Silli f lok samtalsins. „Svo vil ég þakka öðmm sem ég hef haft samskipti við fyrir traust og virðingu, en það hefur ver- ið mér mikils virði.“ Viðtal: Helgi Bjamason Ljóemyndir. Guðmundur Svansson -o- Starfsfólk Morgunblaðsins sendir Silla þjartanlegustu árn- aðaróskir á afmælinu og þakkar áratuga samstarf og góð kynni. Arm TIL HJALPAR ÁHEITASÍMINN 62-35-50 GÍRÓNÚMER: 621005 KRÍSUVÍKURSAMTÖKIN ÞVERHOLTI 20. TRYGVE BRUDEVOLD-GRUPPEN er hópur norskra fyrirtœkja sem lýtur sameiginlegri stjórn. Þau hafa sérhæft sig í byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis auk þess sem þau hafa staðið fyrir smíði hótela og fleira. Fyrirtækin starfa einnig á öðrum sviöum og annast til að mynda rekstur skipa og flugvéla. Þau eiga íbúöar- og atvinnuhúsnæði í Noregi og taka þátt í byggingarverkefnum á Bretlandi, Spáni og í Vestur-Þýskalandi. Á næstu árum áætla þau að verja um 1,5 milljörðum norskra króna til ýmissa framkvæmda. ATVINNUHÚSNÆÐITIL LEIGU í SKANDINAVIEN-CENTER í HAMBORG Trygve Brudevold-hópurinn hefur reist „skandinaví- ska miðstöð" (Scandinavien-Center) í Hamborg í um tíu mínútna fjarlægð frá miðborginni. Þar hefur verið reist 15.000 fermetra nýtískulegt hús á 24.000 fermetra lóð. Ráðgert er að koma þar upp miðstöð verslunar og viðskipta fyrir norræn og vestur-þýsk fyrirtæki. Hugmyndin er sú að þar geti hin ýmsu fyrirtæki, jafnt iðn- og verslunarfyrirtæki, fengið inni. í gegnum tíðina hafa Norðurlandaþjóðirnar átt mik- il samskipti við Hamborgara. Höfnin hentar vel fyrir Norðurlandaþjóðirnar því auðvelt er að koma varn- ingi þangað sem fyrirhugað er að selja á Evrópu- markað. Að auki er Hamborg miðstöð verslunar og viðskipta á fjölmörgum sviðum. í „Skandinavísku miðstöðinni" býðst ýmiss konar húsnæði til leigu meðal annars skrifstofuhúsnæði, lagerpláss, sýningarhúsnæði og húsnæði sem hentartil iðnframleiðslu, viðhalds og viðgerða. Fyr- irtæki sem þurfa á ýmiss konar húsnæði að halda finna hér allt undir sama þaki. Leigan er lág eða 8 til 16 vestur-þýsk mörk á fermetra á mánuði. Við þetta bætast síðan sameiginleg útgjöld. Miðstöðin er í alfaraleið frá Kiel og Lubeck og samgöngur allar eru sérlega greiðar. Sendið úrklippuna hér að neðan eða hafið sam- band við: TRYGVE BRUDEVOLD-GRUPPEN Grevegárden 24, postboks 124,1320 STABEKK NORGE. Sími: 2-12 04 00 - Telefax 2-53 72 83 SKANDINAVIEN-CENTER HAMBURG Am Neumarkt 30 - D 2000 Hamburg 70 Sími (40) 656 7998 - Telefax (40) 656 7616 VINSAMLEGAST SENDIÐ MÉR ÍTARLEGAR UPPLÝSINGAR: Nafn............................................. Fyrirtæki......................................... Heimilisfang..................................... Póstnúmer............ Bær/Borg................... ..................... Land.......................
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.