Morgunblaðið - 16.05.1987, Síða 54

Morgunblaðið - 16.05.1987, Síða 54
ðr? 54 r'oor hw ar cttt^ *na a »^tt a t mnA TrnyTTT^QnM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987 Húrra hvað? ★ ★ ★ Ekki veit óg hvað margir þekkja Húrrahi, en vísí er að við þá voru bundnar nokkrar vonlr. . Nýjasta plata Hurrah!, Tell God l’m Here, uppfyllir ekki þær vonir nema að hluta. Lög eins og Miss This Kiss og Mr. Sorrowful eru afbragð en önnur lög á plötunni eru bara miðju- moð. Árni Matt A réttri leið ★ ★ ★ ★ Shriekback er ein af þess- um hijómsveitum sem fáir þekkja en ólík svo mörgum öðrum þá á sveitin það ekki skilið Á nýjustu plötu Shriekback, Big Night Music, er að finna marga perluna, í senn ágeng lög og innhverf. Kanski hefði platan fengið fimm stjörnur ef ekki væri tilgerðin í textunum. Árni Matt Ekki nóg ★ ★ ★ ★ Fast á hæla safnplötu The Smiths. The World Won’t list- en, kom tóiftomman Sheila Take a Bow. Enn sem fyrr eru Smiths- áhugamenn í nokkrum vanda. Lagið er gott, en er það nógu gott fyrir The Smiths? Ég held varla. Vonandi bíða þeir aðeins áður en næsta plata kemur út. Árni Matt Allt fram til þess að John Peel heyrði í Little Richard var hann ósköp venjulegur plötukaupandi sem keypti plötur svona annars hugar, eftir því sem almannaróm- ur sagði til. Little Richard breytti hinsvegar öllu og upp frá því varð John Peel einn helsti plötusafnari Bretlands (plötusafnið hans er mælt í tonn- um) og hjá breska útvarpinu BBC hefur hann stýrt tónlistarþætti á Radio One í mörg ár. Þar hefur hann leitast við að kynna það sem hæst ber hverju sinni tónlistarlega óháð tískubyljum eða sölu- mennsku. Þær eru margar hljómsveitirnar sem John Peel hefur fengið til sín í útvarpið til að spila og spjalla. Upptökurnar hafa hrannast upp, en fyrirtækið Stange Fruit Records var stofnað til að koma upptökun- um í hendur almennings á tólf- tommum. Listinn yfir þær plötur sem út eru komnar er til marks um það hvað John Peel var að gera merka hluti í útvarpsþáttum sínum, en þegar eru komnar plötur með New Order, The Damned, The Screaming Blue Messiahs, Stiff Little Fingers, Siouxie & The Banshees, The Undertones, Joy Division, The Birthday Party ofl. ofl. Á flestum af þessum plötum er að finna upptökur sem ekki hafa The Cult Til betri laga plötunnar má telja „Wild Flower", „Electric Ocean", „Bad Fun" og „King Contrary Man“. Það þarf ekki að hlusta mjög náið á plötuna til þess að hafa gaman af henni. Það er hins vegar ekki verra og er hægt að hafa þræl- gaman af — burtséð frá því hversu gaman menn hafa af tímaferðalög- um. Motörhead: „Philthy" kominn heim verið gefnar út annarsstaðar, og til gamans má geta þess að á New Order plötunni er reggaelag eftir rastamanninn Keith Hudson. Óskandi væri að íslenska út- varpið hefði haft yfir einhverjum álíka þætti að ræða þegar rokk- bylgjan reis hvað hæst hér á landi um 1980. Ekki síður er vanþörf á slíkum þætti nú þegar það virðist vera að birta til í rokktónlistarmál- um. Árni Matt Breska hljómsveitin The Cult er fimm ára gömul og hefur gengið f gegn um ótal breytingar og er ekkert eftir af upphaflega band- inu nema söngvarinn, lan Ast- bury. Aðal þessarar hljómsveitar er hrár kraftur — eimaður rokk- andi eins og hann gerist bestur. Þó verst maður ekki þeirri hugs- un að hljómsveitin só klár tfma- skekkja, því að tónlistin kemur í fullkomlega rökrænu framhaldi af sýrurokki sfðsjöunda áratugar- ins. Það er mjög erfitt að lýsa tónlist þeirra kumpána, hana verður eig- inlega að hlusta á. Þó skal hér rembst og reynt. Bandarísk áhrif eru í öndvegi og þá helst um að ræða þétt suðurríkjarokk. Ofan á það kemur býsna hrár gítarleikur (Angus Young í AC/DC greinilega í hávegum hafður) og allt kórónar söngur lan Astbury, sem minnir um margt á Jim heitinn Morrison og allan andskotann annan. Og það er nú eiginlega kjarni málsins. Tónlistin er öll mjög nost- algísk, án þess þó að hljómsveitin giati nokkru sinni sjálfsvirðingu sinni eða sándi. Og það skiptir nú reginmáli á þessum tímum tölvu- BREYTINGAR hafa orðið á hljómsveitinni Motörhead og er nú gamli trumbuleikarinn „Philthy Animal" Taylor kom- inn á sinn stað á ný. Trommarinn sem fyrir var, Pete Gill, var orðinn þreyttur á bandinu og hafði sagt að hann myndi hætta um leið og tón- leikaferðalagi sveitarinnar um Evrópu lyki. Höfuðpaur hljóm- sveitarinnar, Lemmy Kilminst- er, ákvað hins vegar að engin ræna væri í því að bíða — ekki síst þegar að langt og strangt ferðalag um Bandaríkin var Motörhead nú. framundan, en talið er að framtíð hljómsveitarinnar velti nokkuð á því. Síðasta plata hljómsveitar- innar, „Orgasmatron", hefur selst vel vestra og talið að hljómsveitin eigi nokkra mögu- leika í Vesturheimi. Síðan Taylor hætti í Motör- head hefur hann reynt margt fyrir sér, en fátt gengið. Tók hann því boði Lemmys fagn- andi og lemur nú húðir sem óður væri í umræddri Banda- ríkjaferð. væddrar lánastarfsemi í tónlist. Til þess að menn þurfi þó ekki að fara í grafgötur með í hvaða smiðju er sótt þá taka piltarnir lagið „Born to Be Wild” og ferst það býsna vel úr hendi. Þá eru piltarnir einnig vel lesnir í hippafræðunum, eins og heyra má af textum eins og „Peace Dog". Enn og aftur Smithereens Eins og alþjóð er kunnugt hóldu Smithereens hértvenna tónleika í febrúar síðastliðn- um sælla minninga. Þeir tvífylltu þá óperuna og hefðu sjálfsagt farið langt í þriðja fullið ef tími hefið gefist fyrir þrenna tónleika. í viðtali lýsti höfuðpaur sveit- arinnar, Pat DiNizio, yfir áhuga sínum á að koma til íslands aftur. Nú hefur spurst út að til standi að Smithereens komi aftur hingað til lands í sumar og haldi a.m.k. eina tónleika. Fjórða júlí stendur til að opna rokkstaðinn Hard Rock Café á íslandi og er áætluð koma Smithereens í tengslum við þá opnun sem verður víst hin veg- legasta. Ekki verður annað sagt en að vel sé til fundið að fá hingað þá Pat DiNizio og fé- laga; fáir halda betur á loft rokkandanum frá sjöunda ára- tugnum. rokksíðan UMSJÓN ANDRÉS MAGNÚSSON Plötudömar Af John Peel RAFMAGNAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.