Morgunblaðið - 25.09.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980
47
Knattspyrnulið Hvidovre sem mætir Fram á sunnudatí. aftari röð frá vinstri. Holdleder Finn Cyril.
Michael Christensen. Gtinther Lindahl. Curlei Nielsen, Finn Johansen, Lars Vang, Benny Krogh o«
þjálfarinn John Sinding.
Fremri röð frá v. Michael Manniche, Steen Hansen. Poul Arne Andersen. Jorgen Kirk. Jens Kurt Petersen
og Henrik Jensen.
Allir leikmenn Hvidovre
eru hálfatvinnumenn
Hvidovre Idræts Forening. eða
HIF eins og liðið er jafnan kallað
af stuðningsmönnum þess. var
stofnað 15. október 1925. Það var
samt ekki fyrr en árið 1934 að
liðið tók fyrst þátt í Danmerk-
urkeppni í knattspyrnu. 1949
tókst liðinu fyrst að komast upp í
3. deild, en féll aftur 1953. Árið
1960 komst liðið svo aftur upp i 3.
deild og hefur verið með í deildar-
keppninni síðan. Það var svo árið
1966 sem liðið varð Danmerk-
urmeistari og aftur árið 1973. Þá
var markhæsti maður liðsins
Hans Aabech með 28 mörk. Hann
var síðan seldur til Hollands í
atvinnumennsku og við það
komst los á lið Hvidovre og féll
liðið í 2. deild 1974, eða strax árið
eftir að liðið varð Danmerkur-
meistari. 1978 vann Hvidovre svo
2. deildina og varð danskur
bikarmeistari í fyrsta skipti sl.
vor.
Þetta er í 4. skipti, sem Hvid-
ovre, tekur þátt í Evrópukeppni í
knattspyrnu. Þeir hafa m.a. keppt
á móti sömu liðum og FRAM
hefur leikið á móti, Real Madrid
og Basel frá Sviss. Á leikinn á
móti Real Madrid á Idrætsparken
í Kaupmannahöfn komu 42.000
áhorfendur.
Allir leikmenn Hvidovre liðsins
eru hálfatvinnumennn, nema
svertinginn Leroy Ambrose, sem
er í láni frá enska atvinnumanna-
liðinu Charlton, hann hefur
knattspyrnu sem atvinnu.
Hvidovre er nú aðeins þremur
stigum á eftir efsta liðinu í dönsku
1. deildinni, þegar 7 umerðir eru
eftir.
Leikmenn Hvidovre liðsins eru:
Curlei Nielsen. 32 ára markvorður. Ný-
keyptur frá IlerfólKe. en fyrir þá lék hann
75 leiki. Hefur leikið med unKlinKalandsliA-
um Danmerkur. 25 leikir med Hvidovre.
Finn Johansen, 19 ára varnarleikmaóur.
Hefur ávallt leikið með Hvidovre. Hefur
leikið 20 unKlinKalandsleiki íyrir Danmörk.
66 leikir meö Hvidovre.
Steen Hansen. 19 ára varnarleikmaður.
Hefur ávallt leikið með Hvidovre. 2 unKl-
inKalandsleikir.
Michael Christensen. 23 ára varnarleik-
maður. fyrirliði liðsins. Hefur alltaf leikið
með Hvidovre. 5 unKlinKalandsleikir ok 164
leikir með Hvidovre.
Ctlnter Lindahl. 27 ára varnarleikmaður.
Kom til Hvidovre 1978 frá Næstved. en með
þeim lék hann 30 leiki. Hefur leikið 80 leiki
fyrir Hvidovre.
Jesjjer Petersen, 19 ára miðvallarleikmað-
ur. Avallt með Hvidovre. 12 leikir með
aðalliði Hvidovre.
Jens Kurt Petersen. 21 árs miðvallarleik-
maður. Nýkeyptur frá Vanlöse. þar sem
hann lék 80 leiki. Hefur leikið með unKl-
inKalandsliðum Danmerkur. 19 leikir með
Hvidovre.
JörKen Kirk. 25 ára miðvallarleikmaður.
Nýkeyptur frá Glostrup IC þar sem hann lék
150 leiki. Lék með Ilvidovre árið 1974. 1
unKlinKalandsleikur. 35 leikir fyrir Ilvid-
ovre.
BirKcr Pedersen. 30 ára varnarleikmaður.
Hefur ávallt leiki með Hvidovre nema árin
1975 — 1978 þe^ar hann var atvinnumaður
hjá RacinK Mechelen i BelKiu. 14 landsleikir
ok 185 leikir með Hvidovre.
Tad Gapinski. 31 árs sóknarleikmaður.
Kom til Hvidovre 1979 frá pólska liðinu
Widzew Lodz, þar sem hann lék i 13 ár ok
spilaði yfir 250 leiki. Spilaði með pólska
unKlinKalandsliðinu 1968. 29 leikir fyrir
Hvidovre.
Leroy Ambrose. 20 ára sóknarleikmaður.
Nýkeyptur frá Charlton Athletic í London.
en með þeim lék hann 30 leiki. Hefur leikið
10 leiki með Hvidovre. Ambrose þessi heíur
fenKÍð viðurnefnið MSvarta perlan“ i Dan-
mörku. Hann þykir með afhrÍKðum fljótur
ok leikinn leikmaður ok eftir að hann kom
til Hvidovre hefur liðið aðeins tapað einum
leik.
Henrik Jensen. 20 ára sóknarleikmaður.
Nýkeyptur frá Vanlöse. en með þeim lék
hann 110 leiki. Hefur leikið fjölda unKlinKa-
landsleikja íyrir Danmörku. 24 leikir með
Hvidovre. I>ykir mjöK fljótur ok leikinn ok
Danir kalla hann „drihhlekonKen“.
Michael Manniche. 20 ára sóknarleikmað-
ur. Nýkeyptur frá Brönshöj. en með þeim lék
hann 50 leiki. Hefur leikiö 23 leiki með
Hvidovre ok í þeim heíur hann skorað 13
mörk. Er mjöK Kóður skallamaður ok
hættuleKur upp við mark andstæðinKanna.
Jens Petersen, 24 ára miðvallarleikmaður.
Hefur ávallt leikið með Hvidovre, ef frá eru
skilin 2 ár. sem hann lék með Avedöre. 16
leikir með aðalliði Hvidovre.
JörKen Jackobsen, 22 ára varnarleikmað-
ur. Hefur ávallt leikið með Hvidovre. 47
leikir með liðinu.
Carsten Rasmussen. 23 ára varnarleik-
maður. Hefur ávallt leikið með Hvidovre. 10
unKlinKalandsleikir ok 33 leikir með Hvid
ovre.
Þjálfari liðsins er John SindinK. 40 ára
Kamall. verkfræðinKur að mennt.
Norðmenn nældu í stig
NORÐMENN og Rúmenar skildu
jafnir í fjórða riöli undankeppni
IIM í gærkvöldi. Lokatölur urðu
1 —1 og var það einnig staðan í
hálfleik. Iordanescue skoraði
fyrst fyrir Rúmena á 10. mínútu,
en Hereide jafnaði 10 minútum
síðar. Norðmenn höfðu lengst aí
mikla yfirburði og fóru illa með
mýmörg góð tækifæri.
I fyrsta riðli undankeppni HM
léku Finnar og Austurríkismenn
og fór leikurinn fram í Helsinki.
Austurríkismenn unnu nokkuð ör-
uggan sigur, 2—0, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 1—0. Kurt
Jara og Kurt Welzl skoruðu mörk-
in.
Úrslit í enska
ÚRSLIT leikja í 3. umferð ensku
deildarbikarkeppninnar I
knattspyrnu í gærkvöldi urðu
þCSSj;
Everton — WBA 1-0
Tottenham — Cr. Palace 0—0
Aðeins þrjú töp í 8 leikjum
íslenska knattspyrnulandsliðið
hefur í sumar leikið átta lands-
leiki undir stjórn hins nýja
landsliðsþjálfara, Guðna Kjart-
anssonar. Er óhætt að segja. að
þrátt fyrir að illa hafi horft í
fyrstu leikjum. hafi vel tekist
til.
íslenska liðið hefur unnið þrjá
sigra og var sá síðasti glæsi-
legastur, 3—1 gegn Tyrkjum á
útivelli. Hinir sigrarnir voru
ekkert til að hrópa húrra fyrir,
2—1 og 4—1 gegn Færeyjum og
Grænlandi. En það eru þó sigrar
engu að síður. Tvö jafntefli hafa
náðst, gegn Finnum heima, 1—1,
og gegn Svíum úti, 1—1. Báðar
þjóðirnar hafa verið taldar ís-
landi fremri í knattspyrnu og
árangurinn því góður.
ísland tapaði heima fyrir Sov-
étmönnum 1—2 og stóð liðið sig
meistaralega vel í leiknum og
gat allt eins náð jafntefli. Þá átti
landinn betra skilið í 1—3 tapinu
gegn Noregi, en fékk það sem
hann átti skilið heima gegn
Wales, 0—4. Allt í allt hefur
íslenska landsliðið átt eitt sitt
besta tímabil og vonandi er
þetta aðeins byrjunin. Það, sem
er mjög athyglisvert við frammi-
stöðuna í sumar, er sú staðreynd
að ísland var sjaldnast með sitt
sterkasta lið og stundum langt
frá því. Bendir það til þess að
ísland hafi aldrei áður getað
teflt fram jafn sterku landsliði.
Það skýtur svolítið skökku við,
að í eina skiptið sem ísland
tefldi fram sínu sterkasta, var
skellurinn stærstur, en það var
fyrsti leikur landsliðsins undir
stjórn Guðna og byrjunarerfið-
leikar á ferðinni, það hefur sýnt
sig heldur betur.
Einn hlutur hefur og stórbatn-
að hjá landsliðinu og er það
markaskorunin. í sumar hefur
ísland skorað 13 mörk í 8
leikjum og fengið á sig 14. Er af
sem var meðan Youri stjórnaði
liðinu. Þá er athyglisvert, að 12
leikmenn hafa skorað mörk ís-
lands í sumar, Marteinn Geirs-
son tvð og eitt hver þeir Árni
Sveinsson, Guðmundur Þor-
björnsson, Sigurlás Þorleifsson,
Pétur Pétursson, Lárus Guð-
mundsson, Guðmundur Steins-
son, Páll ólafsson, Magnús
Bergs, Janus Guðlaugsson, Al-
bert Guðmundsson og Teitur
Þórðarson.
c
c
FLANNEL
BUXUR
Satín fóöraöar
100% ullarflannel frá
nORMEUij
Litir: dökkblátt — milliblátt — grátt
steingrátt,— camel — brúnt.
Hönnun: Colin Porter.
a fSmm. Fæs*
W&KARNABÆ
■ymJ* og einkasöluaöilum hans um
land allt.