Morgunblaðið - 25.09.1980, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980
Skólastjóra-
staða í Garðabæ
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi:
Vegna blaðaskrifa um veitingu
stöðu skólastjóra við Hofsstaða-
skóla í Garðabæ teljum við kenn-
arafulltrúar í skólanefnd bæjarins
nauðsynlegt að koma á framfæri
nokkrum staðreyndum um málið,
þar sem yfirlýsingar og blaðaskrif
um þetta mál hafa verið að mörgu
leyti villandi eða jafnvel röng.
Meðferð meirihluta skólanefndar
á málinu hefur vakið mikla undr-
un og vanþóknun hjá langflestum
kennurum.
Kennarar og annað starfsfólk
skólanna í Garðabæ gerðu grein
fyrir skoðunum sínum á þessu
máli á síðasta fundi skólanefndar
Garðabæjar þann 15. sept. sl.
Allir starfsmenn Hofsstaða-
skóla undirrituðu yfirlýsingu þess
efnis að þeir fögnuðu þeirri ráð-
stöfun menntamálaráðherra Ingv-
ars Gíslasonar að setja Hilmar
Ingólfsson skólastjóra við Hofs-
staðaskóla.
Langflestir kennarar og starfs-
menn hinna skólanna í Garðabæ,
Flataskóla og Garðaskóla, undir-
rituðu svipaða yfirlýsingu.
Meirihluti skólanefndar Garða-
bæjar hefur bent á að engin
meðmæli hafi fylgt umsókn Hilm-
SÁÁ og Hazelden-hópurinn boöar til fundar um
ÁFENGISMÁL
í Víkingasal Hótel Loftleiöa fimmtudaginn 25. september kl. 20.30.
Frummælandi veröur Karl Rolvaag fyrrv. sendiherra og nefnist erindi hans
Áfengismálastefna Bandaríkjanna
Þaö er von frummælanda og fundarboöenda aö stjórnmálamenn og allir
þeir er áhuga hafa á málefni þessu sjái sér fært aö mæta.
SÁÁ — Hazelden-hópurinn
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrarl
Ný 4ra vikna námskeid hefjast 29. sept. Leikfimi fyrir konur á
öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt jóga og megrandi
æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af
vöðvabólgum.
Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi.
\
, Júdódeild Armanns
v Ármúla 32.
Innritun og upplýsingar alla
virka daga frá kl. 13—22
í síma 83295.
,‘^m
Verksmiójusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Geriö góð kaup í úrvalsvöru.
Opið virka daga kl. 9 —-18. Laugardaga kl. 9—12.
BOT HF.
Skipholti 7.
Simi 28720.
ars B. Ingólfssonar. Telja verður
það einkennilegt ef skólanefndar-
mönnum, sem hafa setið sumir
hverjir um langt árabil í skóla-
nefnd, er ekki kunnugt um störf
kennara í skólum bæjarins. Vegna
þessara ummæla meirihluta-
manna voru lögð fram á skóla-
nefndarfundinum þann 15. sept.
sl. afrit af gögnum þeim er
grunnskóladeild menntamála-
ráðuneytisins og menntamálaráð-
herra, Ingvar Gíslason, byggði
m.a. úrskurð sinn á í þessu máli.
Meðmælabréf þessi og upplýs-
ingar eru undirrituð af Gunnlaugi
Sigurðssyni og Ingva Þorkelssyni,
Garðaskóla; Rögnvaldi Finnboga-
syni, bæjarritara; Valgeiri Gests-
syni, formanni Kennarasambands
íslands; Guðmundi Árnasyni,
varaformanni kennarasambands
íslands og Júlíus Hafsteinssyni,
formanni Félags framhaldsskóla-
kennara í Reykjaneskjördæmi.
Menntamálaráðherra bar að úr-
skurða í málinu þar sem árgrein-
ingur var um það í skólanefnd.
Það er skoðun okkar að eðlilegt
hafi verið hjá ráðherra að meta
þessar umsagnir ásamt öðrum
upplýsingum meir en afgreiðslu
meirihluta skólanefndar.
Garðabæ, 23. sept. 1980.
Gísli Ragnarsson.
Borghildur Jósúadóttir.
Stefania Magnúsdóttir.
Rafnhildur R. Jóhannesd.
Þá hefur blaðinu borist eftirfar-
andi bókun þriggja bæjarfulltrúa í
Garðabæ vegna samþykktar, sem
gerð var á bæjarstjórnarfundi 11.
sept. sl.:
„Við undirrituð mótmælum
harðlega þessari ályktun sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn
Garðabæjar.
Við teljum það einstaka ósvífni,
að þeir skuli leyfa sér að tala fyrir
munn Garðbæinga almennt, þegar
þeir kjósa að beita pólitísku
ofstæki í skólanefnd Garðabæjar,
með því að hafna Hilmari B.
Ingólfssyni í stöðu skólastjóra við
Hofsstaðaskóli. Flestum Garðbæ-
ingum er kunnugt um að Hofs-
staðaskóli, sem sjálfstæður skóli
hefur göngu sína við mjög frum-
stæðar aðstæður. Þess vegna er
mikilvægt að við starfi skólastjóra
taki maður sem veit að hverju
hann gengur. Með tilliti til þess að
Hilmar er gjörkunnugur skóla-
málum í Garðabæ og hefur góðan
feril að baki sem kennari, þá
vekur furðu okkar ábyrgðarleysi
meirihluta skólanefndar og ekki
síður afstaða meirihluta sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn. Með
þessari embættisveitingu hefur
Menntamálaráðherra einungis
gert skyldu sína og haft að engu
pólitískt ofstæki sjálfstæðis-
manna í skólanefnd Garðabæjar.
Einar Geir Þorsteinsson (sign.)
Albina Thordarson (sign.)
örn Eiðsson (sign.)“
22% aukning í
flutningum Herj-
ólfs í sumar
VERULEG aukning hefur orðið i
flutningum Herjólfs i sumar og
nemur hún að meðaltali 22% i
júni, júli og ágúst miðað við sömu
mánuði i fyrra. Er bæði um
aukningu i flutningum fólks og
bifreiða að ræða á þessu timabili
og að sögn Ólafs Runólfssonar
hjá útgerð Herjólfs hefur ferða-
mannatíminn staðið lengur i ár
heldur en t.d. i fyrra.
Ef litið er á hvern mánuð fyrir
sig kemur í ljós, að í júní í ár flutti
Herjólfur 4500 farþega, en 3600
sama mánuð 1979, í júlí flutti
skipið 7600 manns á móti 6200 árið
áður, en í ágústmánuði var hins
vegar jafnvægi, en þá flutti skipið
8300 farþega hvort ár. Frá 100 og
upp í 300 fleiri bifreiðar voru
fluttar með skipinu hvern fyrr-
nefndra mánaða í ár miðað við
sumarið 1979 og t.d. flutti Herjólf-
ur 1780 bifreiðar í ágústmánuði í
ár.
Að sögn Ólafs Runólfssonar er
útgerð skipsins nú að láta byggja
nýja vöruafgreiðslu og skrifstofu-
húsnæði í Vestmannaeyjum og er
áætlaður kostnaður við það verk
um 100 milljónir króna. Það er
Trésmiðja Valgeirs Jónassonar í
Vestmannaeyjum, sem sér um
þessar framkvæmdir og er áætlað,
að hægt verði að flytja í nýja
húsið um miðjan desember.
Háskólafyrirlestur:
Rætt um latínu-
*
menntun Islend-
inga á miðöldum
PRÓFESSOR Ernst Walter frá
Ernst-Moritz-Arndt Universitát
í Greifswald flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands föstu-
daginn 26. september 1980 kl.
17:15 í stofu 201 í Árnagarði.
Prófessor Walter dvelst hér á
landi um þessar mundir við
rannsóknastörf. Hann er aðal-
kennari háskólans í Greifswald í
íslensku máli og bókmenntum
og hefur ritað margt um íslensk
efni.
Fyrirlesturinn nefnist „Lat-
ínumenntun íslendinga á mið-
öldum og nokkur vandamál
sagnaritunar" og verður fluttur
á íslensku. Öllum er heimill
aðgangur.
(Frétt frá Iláskóla íslands).
Eyjólfur Guðmundsson skrifar frá Noregi:
Fjallaskálar í
Austur-Noregi
Sem ferðamannaland nýtur
Noregur nú vaxandi vinsælda og
árlega koma þangað fleiri ferða-
menn en íbúar landsins eru.
Flestir koma Bandaríkjamenn,
Englendingar, Hollendingar og
Þjóðverjar. Danir og Svíar koma
einnig mikið.
Ferðamönnum, sem koma til
landsins, má skipta í þrjá megin-
hópa:
1. Ferðamenn sem velja sér dýr
hótel, og eru í flestum tilvik-
um vel efnað fólk, og oft á
fullorðinsaldri.
2. Ferðamenn, sem koma akandi
í eigin bifreið, og stundum
með hjólhýsi í eftirdragi. Þeir
velja sér áningarstaði (camp-
ingplass). Þarna er yfirleitt
millistéttarfólk, sem oft kem-
ur á sömu staðina árlega, og'"
kynnist sínum gestgjöfum
meira eða minna.
3. Ferðamenn sem koma fót-
gangandi, með bakpoka á
herðum. Þetta er oft ungt,
efnalítið fólk, sem veifar bíl-
um og fær að fljóta með,