Morgunblaðið - 26.07.1961, Qupperneq 18
18
MORGVNBLAÐ1Ð
Mviðvikudagur 26. júlí 196
í dásamlegu skíðafæri
a fjollum i juiilok
Kerlingafjöll eru ákjósanlegur
sfaöur fyrir alla
— VIÐ eigum ekki orð til að
lýsa hrifningu okkar. í Kerl-
ingafjöllum fundum við stað-
inn sem þúsundir erlendra
ferðamanna, jafnt sem inn-
lendra, myndu vilja eiga
fyrir sumarleyfisstað sinn.
Að vera á skíðum í heitri
júlísól á Kerlingafjöllum.
Það er paradís á jörð. Þarna
er upplagður staður til að
reisa alþjóðlegt sumar-
dvalahótel þeirra er fjöllum
og skíðaíþróttum unna. Þús-
undir Evrópubúa flykkjast
til S-Ameríku á sumrum til
skíðaiðkana. Þeir geta stytt
ferð sína margfallt. í Kerl-
ingafjöllum er staðurinn.
Brekkur við allra hæfi, ynd-
isleg veðrátta, nægur snjór
og gott færi.
Yndisleg dvöl.
Á þessa leið sögðu ferðalang
ar í Kerlingafjöllum sögu sína
við Mbl. í gær. Valdimar örn-
ólfsson skíðakappi hafði haft for
ystu um að fara þangað með hóp
si'ið&fólks til kennslu og skíða-
ikunar. Alls voru 31 í hópnum,
gistu í 9kála Ferðafélagsins en
stunduðu skíðaiðkun á daginn —
eða sund í heitum hverum á
Hveravöllum. Dvölin var „yndis
leg“, eins og þeir segja.
Valdimar sagði að fyrir 2 ár-
um hefði hann farið þangað „inn
IJrtökumóf;
LOKA ÚRTÖKUMÓT fyrir sund-
meistaramót Norðurlanda, verður
haldið í sundhöll Reykjavíkur
í kvöld kl. 19.15.
Keppt verður í 100 m skriðs.
karla og kvenna og 200 m
bringusundi karla og kvenna.
eftir" og séð hversu ákjósanlegt
landið var til skíðaikana og dval
ar. Hann fékk svo Eirík Haralds
son í lið með sér til að stofna til
námskeiðs og fyrsta tilraunanám
skeiðið var nú. Það tókst betur
en björtustu vonir stóðu til.
Fólkið hafði með sér aðalfaeðu
en innifalið í 800 krónu farseðli
fram og til baka var morgun-
kaffi, te eða kaffi um daginn og
bíll á staðnum til að aka mönnum
frá skálanum upp að snjórönd-
inni og til baka síðdegis. Má því
segja að verðið sé næsta lágt,
enda dró Valdimar ekki dul á
þakklæti sitt til Ferðafélagsins
fyrir lán á skála félagsins.
0
ic Við allra hæfi.
Þetta fyrsta námskeið stóð frá
15.—23. júlí. Stunduðu námskeiðs
gestir skíði á hverjum degi utan
einn, er farið var til laugar á
Hveravöllum. Með í förinni var
ísl.meistari í alpagreinum Krist-
inn Benediktsson og tók hann að
sér að leggja brautir og vera með
bezta skíðafólkinu í hópnum. Hin
ir nutu kennslu Valdimars og
Eiríks, sem báðir eru íþróttakenn
arar. .1 Kerlingafjöllum er færi
við allra hæfi. Brekkur aflangar
fyrir byrjendur og brattar og
langar fyrir lengra komna svo
að ekki gefur Alpafjöllum eftir.
Snjór er sem kornóttur vorsnjór
en færi þyngist nokkuð er á dag
inn líður ef mikil sólbráð er.
Drógu þeir félagar ekki dul á
að þama væri kærkomið tæki-
færi fyrir byrjendux að læra á
skíðum og njóta einmuna veður-
blíðu. Þarna er og staður fyrir
gott skíðafólk og ekki efi á að
það eykur þjálfun sína — því
þarna er skíðaland fjölbreyttara
og betra en skíðafólk á nokkru
sinni völ á.
★ Góð æfing.
Þeir félagar sögðu frá því að
Kristinn Benediktsson hefði unn
ið frábær afrek á staðnum. Hann
virtist í betri þjálfun en þeir hafa
áður vitað til að ísl. skíðamað-
ur væri í. Hann gekk á Snækoll
sem er 1477 m hæð frá svokall-
aðri „Stöð“ sem er í um 600 m
hæð á 40 mín. Leiðin mun um 5
km. og því afrek hans hið bezta.
Er hópurinn allur kleif Snækoll
fyxsta sinn átti Kristinn tvær
fyrstu ferðirnar niður svo fljótur
var hann að klífa. Um kvöldið —
eftir 5 ferðir — virtist hann ó-
þreyttur og sagði „Maður er ekki
þreyttur þegar maður tekur það
svona rólega á daginn“.
Þeir félagar telja auðvelt verk
að koma þarna upp góðu sumar-
hóteli og færa Ferðafélaginu
beztu þakkir fyrir skálalánið.
Þeir vita ekki hvort af öðru nám
skeiði getur orðið í sumar, en
Valdimar Örnólfsson mun gefa
upplýsingar þar um. .
Kristinn Benediktsson á stuttbuxum í góðu færi. Loðmundur
í baksýn. —
-
V
AUir hoppa — en Björgvin hefur hann af tilviljun. Fjarst
sjást leikmenn með hendur á bringu. Svona er 1. deild á
Islandi.!!! —
Fram bjargaði skinninu
með jafntefli við Val
Léletjum leik lauk með 1 ; I
ÞÖKK sé litlu drengjunum,
sem léku knattspyrnu uppi í
Laugarásnum á mánudags-
kvöldið. Þeir veittu áhorfend
um, a. m. k. stúkumegin,
nokkra skemmtun, enda þótt
þeir væru í talsverðri fjar-
Þetta er ekki Ieikur — en
skeði þarna í leik Vals og
Fram.
lægð, en það verður hinsveg-
ar ekki sagt um „beztu lið“
Fram og Vals, sem léku leik
sinn í íslandsmótinu þetta
kvöld. Leikur liðanna var
einn þessara leika, sem fær
menn til að ganga hnussandi
heim á leið, hcitandi því að
„það verði bið á því að fara
á Völlinn aftur“.
Breytingar Valsliðslns
sízt til bóta
Valsmenn stilltu nú upp all-1
breyttu liði, sem er skiljanlegt,
því eitthvað verður að gera til
að fjörga liðið. Gunnlaugur
Hjálmarsson, handknattleiks-
kappi, lék fyrri hálfleikinn sem
miðherji, en þann síðari sem
útherji og brást gjörsamlega,
virtist ekki í nógu góðri æfingu
og var þungur og seinn. Halldór
Halldórsson lék fyrri hálfleik-
inn í stöðu framvarðar og þann
síðari sem innherji og var mun
skárri í þeirri síðarnefndu. Til-
raunin með Ormar sem inn-
herja misheppnaðist og gjörsam
lega, Ormar er framvörður og
það góður framvörður á okkar
mælikvarða, en innherjastaðan
líklega ekki hans köllun. Árni
Njálsson fór út af er um 5
mínútur voru til hálfleiksloka
og skilaði hinn ungi Guðmund-
Ur Ögmundsson stöðu hans
þokkalega.
Einkennilegt er með Fram-
liðið, sem nú hefur leikið sam-
an, að mestu með sömu mönn-
um í mörg ár, að enn er liðið
eins losaralegt og lið getur ver-
ið. Virðist ekki vanþörf á að
skipta um blóð, ef liðið á að
komast í skjól fyrir yfirvofandi
fallhættu í I. deild. Framlína
Fram er einkennilega duglítil
og ógjörn á að berjast — a. m.
k. ékki lengra en upp að víta-
teig. Baldur Scheving sýnir þó
oftast hörku og ósérhlífni, en
það nægir þó ekki til, enda eru
skot Baldurs heldur lir. og auð-
verjanleg, hitti þau milli stang-
anna. Framvarðalína Fram stóð
sig eins og oft áður mun betur
en framlínan. Hinrik er fastur
fyrir og „stoppar“ vel, Ragnar
er uppbyggjandi og Halldór
Lúðvíksson ágætur miðvörður.
Sigurður og Birgir áttu sæmi-
lega leiki sem bakverðir, enda
var lítið um mótspyrnu af
hálfu útherja- Vals í þessum
leik. Geir stóð sig allvel í mark
inu. —
Fátt markvert skeði
Það var ekki margt að finna
á minnisblaðinu frá leiknum:
25. mín. — Björgvin bjargar
naumlega skoti Guðjóns af ör-
stuttu færi.
27. mín. — Furðulegur klaufa
skapur Dagbjarts, sem komst
einn upp að Valsmarkinu, plat-
aði markvörðinn, en náði ekki
að sneiða knöttinn inn í tómt
markið og brennir af. t
36. mín. — Vafasöm víta-
spyrna, er tveir Framarar
„pressa“ Matthías á milli sín
innan vítateigs og Guðbjörn
dómari dæmir vítaspyrnu, enda
þótt knötturinn sé ekki innan
leikfæris. Björgvin Dan. skorar
síðan með föstu skoti og mjög
góðu skoti úr spyrnunni.
43. mín. — Seinna markið
kemur álíka tilviljanakennt.
Sókniji hefur snúizt að Vals-
markihu og boltinn rekst í táná
á Magnúsi miðverði, skrúfar sig
af tánni í stóran boga framhjá
Björgvin markverði og örugg-
lega í hornið. ,
í síðari hálfleik var penninn
sjaldan á lofti og aðeins tvær
athugasemdir gerðar:
51. mín. — Framarar bjarga
stórhættu sem skapast við mark
þeirra.
75. mín. — Guðmunh... átti
hárfínt skot yfir þverslá, en
hann átti nokkuð mörg skot á
2., 3. og 4. hæð.
Fram bjargaði skinninu?
Með þessu eina stigi sem
Fram tókst að krækja í í leik
þessum má búast við að þeir
hafi tryggt sér áframhaldandi
veru meðal íslenzkra 1. deildar-
liða, þó raunar sé ekki útséð
um það, þar eð Hafnfirðingar
eiga nokkra leiki eftir og það
á hinum lélega heimavelli sín-
um. — |
Dómari var Guðbjörn Jóns-
son, KR, og dæmdi allvel. —
Áhorfendur voru furðu fáir með
tilliti til veðurs, en þeim sem
heima sátu má óska til ham-
ingju, þeir misstu ekki ai
neinu. — jbp —