Morgunblaðið - 26.07.1961, Page 13
Mviðvikudagur 26. júlí 1961
M ORCVTS *tL AÐIÐ
13
Ytri-Mongolía
í helmsfréttunum
í>AÐ er ekki oft, sem í heims-
fréttunum er minnzt á Mon-
gólska alþýðulýðveldið — öðru
nafni Ytri-Mongólíu, sem þó
heldur upp á fjörutíu ára af-
mæli sitt sem sjálfstætt ríki á
iþessu ári.
Þessi staðreynd er eðlileg,
þegar þess er gætt, að landið
liggur í einu fjærsta horni Asíu
— milli Kína og rússnesku Sí-
beríu. íbúar landsins eru að
eins um ein milljón talsins
og meginhluti þeirra er dreifð-
ur víðsvegar um landið, stundar
nautgriparækt eða ferðast um
sem hirðingjar.
í höfuðborg landsins Ulan Bat
or, eru íbúarnir 160 þúsund og
hið eina, sem þar hefur gerzt
markvert á síðustu árum, er að
Molotov, fyrrum utanríkisráð-
berra Sovétríkjanna, var sendur
þangað í útlegð, sem sendiherra
SOvétríkjanna, er hanri hafði fall
ið úr náðinni í Kreml.
Hins vegar er ekki óliklegt, að
eitthvað heyrist frá þessum
heimshluta innan skamms. Eitt
með því fyrsta, sem ríkisstjórn
Kennedys Bandaríkjaforseta tók
til umhugsunar eftir valdatök-
una var, að athuga möguleik-
ana á því að koma á stjórnmála-
sambandi við Mongólíu og skipt-
ast á sendiherrum við ríkið. Nú
hafa borizt fregnir frá Moskvu
— sem utanríkisráðuneytið hef-
koma á stjórnmálasambandi við
Washington og skipzt verði á
sendiherrum landanna í mlli,
áður en langt um líður.
Slíkt mundi hafa ýmsar af-
leiðingar — m. a. þær, að Ytri-
Mongólía fengi upptöku í Sam-
einuðu Þjóðirnar. Beiðni ríkisins
um upptöku, sem lögð var fram
árið 1946, hefur ávallt verið lát-
in liggja í láginni ásamt upp-
tökubeiðnum Norður- og Suður
Kóreu og Norður- og Suður
Vietnam. Bandaríkin, sem
hafa með neitunarvaldi getað
hindrað upptöku þessara ríkja
hafa til þessa neitað upptöku
Ytri Mongólíu á þeim forsend-
um, að landið væri ekki sjálf-
stætt leppríki Rússa.
Þessi stefnubreyting, sem lýsir
sér í afstöðu Bandaríkjamanna
á vart rót að rekja til þess,
að þeir telji nokkrar breyting-
ar hafa orðið í S'amskiptum So-
vétríkjanna og Ytri Mongólíu.
Fremur mun hún eiga rót að
rekja til margra augljósra kosta,
sem það virðist hafa að koma
á stjórnmálasambandi við land-
ið og geta komið upp sendi-
ráði í Ulan Bator. Bandaríkin
hafa ekki stjórnmálasamband
við Kína svo að þeir hafa þar
af leiðandi ekki sendiráð í stór-
um hluta Asíu. Ef sendiráð yrði
sett á laggirnar í Ulan Bator
væri þegar líklegra, að einhverj
ur þó ekki staðfest — um, að ar upplýsingar gætu fengizt um
Ytri Mongólía hafi samþykkt að samskipti Rússa og Kínverja svo
Meðfylgjandi mynd er frá flóttamannabúðunum í Mariannefeld í V-Þýzkalandi, en þangað
hafa Austur-Þjóðverjar flykkzt þúsundum saman síðustu dagana.
og um framkvæmdir Rússa
sjálfra í Síberíu sem er einn
næsti nágranni Norður Ameríku.
Rússar hafa á undanförnum ár
um reynt mjög að komast í
stjórnmálasamband við sem flest
ríki heims og jafnframt reyna
þeir að koma starfsmönnum
utanríkisþjónustunnar og tækni-
fræðingum sínum hvert þar á
land, sem við þeim er tekið, —
þó svo vitað sé, að þeir geti
ekki haft nokkur veruleg áhrif
til hagsbóta fyrir stefnu Sovét-
stjórnarinnar. Kennedy, forseti
Signal
Nýtt tannkrem meö munnskol-
unarefni í hverju rauöu striki
Signal er fremra öllu öðru tannkremi
því aðeins það gerir tennur yðar skínandi hvítar
og gefur yður hressandi munnbragð
Sérhvert gott tannkrem hreins
ar tennurnar, en hið nýja
SIGNAL gerir miklu meira!
Hvert og eitt hinna rauðu
strika S I G N A L S ínniheldur
Hexa-Chlorophene. Samtímis
þvt sem hreinsunarefni SIGN-
ALS gætir og verndar tennur
yðar, blandast þetta kröftuga
rotvarnarefni munnvatninu um
leið og það hreinsar munninn.
Burstið því tennur yðar reglu-
lega með SIGNAL og njólið
þar með bezta fáanlega tann-
kremsins, sem inniheldur hvort
tveggja i senn, ríkulegt magn
hreinsunar- og rotvarnarefna.
Látið alla fjölskyldu /ðar nota
þetta nýja undra-tannkrem,
með munnskolunarefni í hver.lu
rauðu striki. Byrjið að nota
S I G N A L strax í dag.
Þetta er ástæðan fyrir þvi, að
SIGNAL inniheldur munnskol-
nnarefnl i hverju rauðu striki.
x-sis ? 'ic-e
virðist ætla að taka Krúsjeff sér
til fyrirmyndar að þessu leyti.
Ef til vill gæti tekizt að láta
nokkra tæknisérfræðinga sigla í
kjölfar sendiráðs í Ulan Bator
og væri þá ef til vill mögulegt
að gefa íbúum Ytri Mongólíu
einhverja hugmynd um líf og
starf í Vesturveldunum — en
hafi þeir einhverjar hugmyndir
um það, eru þær ugglaust víðs
fjarri veruleikanum.
Þessi stefna Bandarikjastjórn-
ar hlýtur að velgja Rússum og
Kínverjum undir uggum — ekki
sízt hinum síðarnefndu. En þeir
geta trauðla staðið gegn því, að
stjóirnmálasambandi verði kom
ið á milli ríkjanna án þess að
viðurkenna opinberlega að Ytri
Mongólia sé raunverulega ekki
sjálfstætt ríki. Og það er ekki
aðeins í Moskvu og Peking
sem bryddir á óánægju heldur
einnig á Formósu. Chiang Kai-
shek fellur ekki þessi ætlun
Bandaríkjamanna. Henn heldur
því fram, að Ytri-Mongólía sé
enn hluti af Kína og telur
afstöðu Bandaríkjamanna í
þessu máli benda til þess, að
stefna þeirra varðandi Asíu yfir
leitt sé að breytast og veikj-
ast í þá átt, sem kunni að leiða
til þess, að þjóðernissinnastjórn
in verði um alla framtíð að láta
sér nægja Formósu eina.
En raunin er sú, að þegar
Chaing Kai-shek var enn við
völd í Kína viðurkenndi hann
formlega sjálfstæði Ytri-Mongó-
líu. Ytri Mongólía var hérað
í kínverska keisaraveldinu um
25 ára skeið, þar til árið 1911,
að það varð stjáfstjórnar
ríki undir vernd Rússa. Eftir
byltinguna í Rússlandi féll rík-
ið aftur undir stjórn Kínverja,
þar til 1921, að ,útlaga-alþýðu-
stjórn“ lýsti yfir sjálfstæði þess
undir rússneskri vernd. Mon-
gólska alþýðulýðveldið var form
lega stofnað þrem árum síðar.
Kínverjar viðurkenndu ekki
þessa breytingu fyrr en 1945,
að stjórn Chinag Kai-sheks við-
urkenndi sjálfstæði Mongólíu
með því skilyrði, að kosningar
yrðu látnar fara fram. Ef sam-
þykkt hafði verið í kosningun-
um að velja sjálstæði var við-
urkenningin formlega veitt.
Þegar kommúnistastjórnin
komst til valda í Kína var þessi
viðurkenning enn staðfest, en
stjórnin sú vsir í fyrstu afar
treg að taka upp stjórnmála-
samband við Ytri Mongólíu. Nú
hafa kínverjar bæði efnahags-
og menningarsamning við ríkið.
Samt sem áður fær Ytri Mongó-
lía mesta tæknilega og efna-
hagslega aðstoð frá Rússlandi.
Það er því augljóst, að skyldi
emhverntíma koma til alvar-
legs ágreinings milli Rússa og
Kínverja mun hans fljótt gæta
í Ytri Mongólíu.
(OBSERVER — öll réttindi
áskilin).
Arabískt lögreglulið
fari til Kuwait
Kario, 22.. júlí (NTB-AFP)
TILKYNNT var í Kario í dag, að
aðalritari Arabaráðsins, Abdel
Khalek Hassouna hefði hafið und
irbúning að þrí að koma
á fót arabisku lögregluiiði, sem
koma skuli í stað brezku her-
sveitanna í Kuwait og gæta landa
mæra Kuwait og Iraks.
Arabiska sambandslýðveldið
hefur boðizt til að annast flutn-
inga á legi og í lofti fyrir slíkt
lögreglulið, en hefur neitað að
senda eigin hermenn til Kuwait.
Sú ástæða er fyrir þeirri afstöðu
arabiska sambandslýðveldisins,
að lorráðamönnum þar þykir
ekki rétt að lönd, sem liggja
að ísrael, sendi hermenn til
Kuwait.
Marokko og Saudi-Arabia hafa
lýst sig fús til að senda hermenn
>til Kuwait. Súdan og Libýa hafa
| enn ekki gefið svar, en virðast
áforminu heldur andvíg.
Túnis getur ekki af hermönn-
um séð eins og *akir standa
vegna ástandsins í Bizerta.
Tengdamamma á
Sauðárkróki
SAUÐÁRKRÓKI, 21. júlí. _
Tengdamömmuflokkurinn sýndi
hér í gærkvöldi hinn bráðfyndna
brezka gamanleik, „Taugastríð
tengdamömmu" fyrir troðfullu
húsi og mjög góðar undirtektir
áhorfenda. Var flokksfólk tengda
mömmu hyllt ákaflega í leiks-
lok af fylgjendum allra flokka
hér á Sauðárkróki. Ríkti sönn
eining andans og bræðraþel hér
á Króknum þessa kvöldstund. —
—jón.