Morgunblaðið - 26.07.1961, Page 11
MviðviEudagur 26. Júlí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
11
Rannsóknarstofa fyrir
matvælarannsóknir
Einkum fengizt v/ð landbúnaðarafurðir
Rœtt viÖ dr, Geir V, Guðnason
t FEBRÚAR kom til landsins
Geir V. Guðnason, þá nýbakaður
doktor í matvælaefnafræði frá
Cornell háskóla í íþöku í Banda-
ríkjunum, en þar hafði hann ver-
ið við nám í 8 ár. Geir starfar nú
hjá iðnaðardeild Atvinnudeildar
Háskólans, og við höfum fregn-
að að hann mundi eiga að veita
forstöðu sérstakri rannsóknar-
etofu innan Iðnaðardeildarinnar
fyrir matvælarannsóknir hér, sér
etaklega á sviði landbúnaðar-
afurða.
Það kom f íjós er fréttamaður
blaðsins náði tali af honum, að
ihann er á förum utan í næsta
ínánuði, á styrk frá Raunvísinda-
deild Vísindasjóðs, til að stunda
rannsóknir í hagnýtri lífefna-
fræði við ýmsar vel þekktar vís-
dndastöfnanir á Norðurlöndum og
!til þess að kynna sér starfsemi
þessara stofnana og uppþyggingu,
áður en hann tekur til við mat-
Vselarannsóknirnar hér.
— Er þessi ferð þá farin á veg-
um Atvinnudeildarinnar?
— Nei, ekki beinlínis. Þ. e. a.
S. Jóhann Jakobsson, deildar-
Stjóri Iðnaðardeildar, átti frum-
kvæðið að því að ég fer þetta.
Rannsóknarráð ríkisins hefur og
Stutt þetta mál. En það
er Rannsóknarráð Norður-
landa, (Nordforsk) sem hefur
gert áætlanir og annast alla fyr-
írgreiðslu í þessu sambandi. Nord
forsk hefur t. d. í samráði
við Efnahagssamvinnustofnun
Evrópu lagt 3.500 dollara til
þeirra stöfnana, sem ég mun
tivelja hjá, til að standa straum
af kostnaðinum við dvöl mína,
sem mun standa yfir í ár.
En því miður rennur ekkert af
þeim peningum í minn vasa.
í , — Hvaða stofnanir eru þetta?
':r — Ég verð mest við gerlafræði-
deildina á Karolinska Institutet
í Stokkhólmi, síðan um’skeið við
matvælafræðideildir Könunglega
tækniháskólans í Stokkhólmi og
Jjandbúnaðarháskólans í Uppsöl-
wm. Næsta sumar verð ég svo
væntanlega eitthvað við norska
Tækniháskólann í Þrándheimi, og
Iheimsæki seinast vísindastofnan-
ir í Danmörku, auk þess sem gert
er ráð fyrir að ég sæki sem flest
vísindamót, sem haldin verða í
þessum löndum þennan tíma.
I Bæta vöruna — nýta hráefnl
u Tilgangurinn með ferðinni er
sem sagt sá að kynnast starf-
semi og uppbyggingu sem flestra
af helztu rannsóknarstöðvum
Norðurlanda, og eins að afla sam
banda við þá vísindamenn sem
þar vinna, svo að sem nánust
samvinna geti orðið milli okkar
og þessara stofnana.
Það er ætlunin að koma hér á
iót rannsóknarstofu innan Iðnað-
ardeildarinnar, sem verði til húsa
í Atvinnudeildarhúsinu og á hún
áð vera tilbúin þegar ég kem til
toaka. Sú rannsóknarstofa á að
itaka til meðferðar verkefni fyrir
matvælaiðnaðinn, sérstaklega
með tilliti til landbúnaðarafurða.
Hér á ég ekki við svokallaðar
hlmennar efnagreiningar, sem að
vísu eru bráðnauðsynlegar, en
verða samt ekki í verkahring
þessarar rannsóknarstofu. Frem-
ur er átt við stærri verkefni, sem
eiga að miða annaðhvort að end-
urbótum á framleiðsluvörunni
eða nýtingu á hráefnum, sem nú
fara forgörðum. Einnig á þessi
nýja rannsóknarstofa að geta tek
ið að sér verkefni á sviði gerla-
fræði eða grundvallarathuganir
Dr. Geir V. Guðnason
í lífefnafræði. Ferðin til Norður-
landanna á að verða að miklu
gagni til að skipuleggja þessa
nýju stofu.
öKyrsýruna má nýta
— Og hvaða verkefni mundu
sérstaklega koma til greina?
— Það er ekki annað að sjá
en að næg verkefni verði fyrir
slíka starfsemi. Það má t. d.
nefna skyrið, svo eitthvað sé
tekið. Engar rannsóknir virðast
hafa farið fram á skyrinu í fjölda
mörg ár. Það ligur þó í augum
uppi, að ástæðuna fyrir því hve
misjafnt það er að gæðum verð-
ur að finna. Sennilegt er að hana
sér að finna í gerlagróðri skyrs-
ins. Einnig hefur verið talað um
að skyrið sé almennt of súrt. Ef
svo er, þarf að leggja drög að því
að velja stofna skyrgerla, sem
gefa eðlilegt skyrbragð en litla
mjólkursýru. Ekki væri heldur
úr vegi að rannsaka hvort ekki
megi finna hentugri pökkun fyr-
ir skyrið. Það dylzt víst engum
að þar þarf úrbóta við.
Nú, annað rannsóknarefni er
nýting skyrsýrunnar, sem nú fer
forgörðum. Þarna fara ekki að-
eins verðmæti til spillis, heldur
er þar líka dálítið vandamál á
ferðinni, því sýran eyðileggur
smám saman gólfin í skyrgerðar-
húsunum, er hún rennur eftir
þeim dag eftir dag. Sýruna mætti
mjög sennilega nýta sem íblönd-
unarefni í súrhey. Þessi hugmynd
var að vísu könnuð fyrir all-
mörgum árum, en ekki til hlítar.
Mér hefur helzt dottið í hug, að
þétta mætti sýruna mikið, unz
hún inniheldur 40—50% þurr-
efni, og blanda hana síðan með
heymjöli eða einhverju þesshátt-
ar. Yrði blandan þannig nægi-
lega þurr til að hana mætti flytja
í pokum til notenda. Ef slík
blanda væri fengin er ekki vafi
á að hún yrði sérlega hentug til
íblöndunar í súrhey og kæmi þá
í stað innfluttrar sýru, eins og
maurasýru, en yrði miklu auð-
veldari í meðförum.
Þá msétti einnig framleiða
heilsusamlegan svaladrykk með
skyrsýruna sem aðalhráefni.
Sennilega mundi ekki öllum líka
sýran, eins og hún er á bragðið
óunnin, en með rannsókn væri
hægt að finna þá meðferð sem
bezt hentaði til að sem flestum
geðjaðist drykkurinn. í sumum
öðrum löndum er ostamysa not-
uð í þessum tilgangi, og ekki er
ólíklegt að skyrmysan sé ennþá
betra hráefni fyrir þannig fram-
leiðslu.
Fúkalyfjainnihald mjóikur
Svo við snúum okkur að öðru.
í kjötiðnaðinum'er nýting á bein
um og ýmis konar verðlitlu úr-
kasti eitt vandamálið. Hér fellur
til talsvert magn af slíkri vöru,
sem einhvern veginn þarf að
nýta. Sérstaklega þar sem það
er vandamál jafnvel að fleygja
MMMIV
þeim. Þar sem slíkt hráefni er
ágætt til framleiðslu á kjarngóðu
og steinefnaauðugu fóðri, liggur
beinast við að setja upp beina-
mjölsverksmiðju. Þetta hefur að
vísu verið mjög vel kannað og
ekki vantar að áhugi á þessu sé
fyrir hendi hjá viðkomandi fyr-
irtækjum, en framkvæmdir hafa
strandað á staðsetningu verk-
smiðjunnar, sem ekki má vegna
flutningskostnaðar vera langt frá
þeim stað sem hráefnið fellur til.
Halda sumir að of mikill óþrifn-
aður stafi af því, ef slík verk-
smiðja er nálægt íbúðarhverfum.
Reynslan erlendis sýnir hins veg
ar að enginn óþrifnaður eða lykt
þarf að fylgja slíkum iðnaði.
Væri vel ef viðkomandi yfirvöld
tækju þetta tH athugunar á ný.
Eitt af þeim málum, sem er ó-
rannsakað, er hvort og hve mik-
ið magn af pensillini eða öðrum
fúkalyfjum er í mjólk og mjólkur
vörum, eins Og fram hefur kom-
ið í blöðum nýlega. Þótt senni-
lega sé allt í góðu lagi hér á
þessu svæði, verða samt að vera
til fullnægjandi upplýsingar um
þetta. Viðkomandi aðilar hafa
hug á að afla upplýsinga um
þetta efni, og verður það ef til
vill eitt af verkefnum rannsókn-
arstofnunnar nýju.
— Er áhugi hjá iðnfyrirtækjum
fyrir slíkri rannsóknarstofu?
— Nokkur áhugi virðist vera
fyrir hendi, þó ekki sé hann
brennandi, þrátt fyrir það að
rannsóknirnar eiga að verða í
þeirra þágu. En góð samvinna
verður að vera milli rannsóknar-
stofunnar og iðnaðarins, því ann
ars er hætt við að niðurstóður
rannsókna verði ekki nýttar.
Helz þyrftu viðfangsefnin að
koma frá ráðamönnum viðkom-
andi fyrirtækja, eins ög á sér stað
alls staðar annars staðar. Sú að-
ferð mun ekki almennt tíðkast
hér, en vonir standa til að þetta
breytist áður en langt um líður.
fslendingar eru þegar langt
aftur úr öðrum þjóðum í
flestum rannsóknarmálum, jafn-
vel þó miðað sé við hinn marg-
umtalaða fólksfjölda. En íslend-
ingar hafa það fram yfir aðrar
þjóðir að hafa hér hræódýrt
vinnuafl á þessu sviði, þar sem
tæknimenntaðir menn og vís-
indamenn landsins eru. Það er
því trú mín að ástandið í þessum
málum hljóti að breytast áður
en langt um líður á sviði land-
búnaðarafurða, eins og þegar er
að gerast á sviði fiskiðnaðar.
— E. Pá.
Heyskapur i full*
um gangi í N-Is.
ÞÚFUM, 22. júlí. — Heyskapur
stendur nú sem hæst, búið að losa
mikið, en litlu búið að ná inn.
Þó er komið vel á veg með að
þurrka. Mikið góðviðri hefur ver-
ið undanfarið en heyþurrkur
fremur stopull.
Síðustu dagana hefur sprottið
ört, svo lítur út fyrir að það
bæti úr hinni lélegu sprettu, sem
víða var á túnum.
Jarðýta vegargerðarinnar á
Ögurvegi er nú að ryðja fyrir
vegi fyrir utan Látur. Standa
vonir til að vegagerðin komist
í Ögurhrepp, að minnsta kosti að
rutt verði fyrir vegi þar. Þar
sem unnið er nú mjög erfitt land
td vegagerðar á svonefndu Digra-
nesi. — P.P.
A5
hugsa
sér
AÐ hugsa sér að svona nokkuð
skuli geta komið fyrir? —
Svo sem kunnugt er hefur
undanfarið staðið yfir mikil
kvikmyndahátíð í Moskvu og
er þegar frægt orðið, hvað
Gina Lollabrigida varð reið,
er henni gafst ekki tími til
að skipta um föt fyrir setn-
ingu hátíðarinnar — en varð
Alveg eins!
Að slíkt skuli geta gerzt!
hins vegar að sitja yfir nær
klukkustundar „leiðinda-
vellu“ frú Jekaterínu Furts-
evu, menntamálaráðherra.
Einnig hafa vakið heimsat-
hygli hin elskulegu viðskipti
þeirra Ginu og Gagarins
geimfara, — er hann sló
henni svo glæsilega gull-
hamra og fékk að launum
rembingskoss.
En fleiri filmstjörnur eru í
Moskvu þessa dagana en
Gina Lollobrigida, þeirra
meðal er Elisabeth Taylor
ásamt manni sínum Eddie
Fisher. Og sá furðulegi at-
burður varð i einni veizlunni,
að þær Elisabeth og Gina
stóðu þar allt í einu hvor
andspænis annarri í nákvæm
lega eins kjólum, — auðvitað
báðum Jtándýrum frá Dior.
Á yfirborðinu virtust þær
taka þessu hið bezta — en af
meðfylgjandi mynd fær mað-
ur þann grun að bros þeirra
— a. m. k. Ginu — risti held-
ur grunnt,
í þessari veizlu spurði einn
fréttamaður Elizabeth hvort
hún vonaðist til að hitta
Krúsjeff forsætisráðherra
Sovétríkjanna. Leikkonan
hristi höfuðið hlæjandi og
sagði — Nei, til hvers?
«*W«i