Morgunblaðið - 26.07.1961, Qupperneq 9
if Mviðvikudagur 26. júlí 1961
MORGIJTSBLÁÐIÐ
9
Haraldur Asgeirsson framkvæmdastjóri heldur á steini
af hinni nýju gerð, sem á að hindra rakaflöktið.
þýzkan léttsteypuiðnað, en það
var einmitt vikuriðnaðurinn í
Vestur-í>ýzkalandi, sem átti mjög
rikan þátt í uppbyggingarstarfi
Þjóðverja eftir síðustu styrjöld.
í>á fullnægði hann um 40% af
toyggingarefnanotkun Vestur-
Þýzkalands.
Þessar og ýmsar aðrar erlend-
er upplýsingar hafa verið mér
mikil hvatning, og segja má, að
nýi steinninn okkar sé til kom-
inn vegna íhugana um þessi
etriði.
Snæfellsnessvikri og úr basalt-
sandi og muiningi.
Ég vona, að þessar umbætur
geti orðið til þess að ávinna
hleðsluveggnum meira traust en
hann nýtur nú.
— En hvað um verðið?
— Því er til að svara að
hlaðni veggurinn hefur víðast
reynzt ódýrastur, og svo mun
einnig vera hér. Að vísu hljóta
verðhækkanir að vera skammt
undan, en þær koma ekki síður
illa við þá, sem úr öðrum efnum
byggja. Annars er verðlagið hjá
okkur mjög háð því, hversu mik
ið magn við getum framleitt.
Vikurfélagið er búið mjög full-
komnum vélum og aðstæðum, og
það er raunverulega framleiðni
þessara véla, sem mestu hnikar
til verði framleiðslunnar. Sam-
dráttur og sveiflur í byggingar-
iðnaðinum hafa slæm áhrif á
framleiðsluna. Þetta hefur ekki
mætt verulega á okkur enn og
verðið á steininum er óbreytt
frá því, sem verið hefur.
— Hafið þið einhverjar aðrar
nýjungar á prjónunum?
— Já, við höfum hafið fram-
leiðslu á steinum til þess að þess
að nota við plötubyggingar, og
ég tel, að notkun þeirra sé hag-
kvæm, hvort heldur er til að
smíða hljóðeinangrandi plötur í
fjölbýlishúsum eða þök á smærri
byggingar. Þessa steina má líka
nota til hleðslu á 15 cm. þykk-
um veggjum, en slíkan stein hef-
ur vantað á markaðinn.
Loks mætti líka telja það til
nýjunga að Vikurfélagið er farið
að framleiða nýja gerð af gjall-
plötum, sem sérstaklega eru ætl-
aðar til hleðslu á berandi skil-
veggjum — burðarskilveggjum.
Ég vona og trúi því, að allar
þessar breytingar séu gagnlegar
fyrir byggjendur, og eins mun
það vera um annað, sem við
höfum ekki enn haft bolmagn til
að framleiða.
Þessi nýi steinn okkar er gerð-
ur mun sterkari en tíðkazt hefur
og kantar hans og fletir jafnari
en áður hefur gerzt. Sérstakar
ráðstafanir hafa verið gerðar til
að koma í veg fyrir rakaflökt
í veggjum, sem úr honum eru
hlaðnir, — hver steinn lokast
imeð þunnum botni og loks hafa
stærðir hans verið valdar
þannig, að þær samræmast við-
teknu mátkerfi, og á því ekki
að þurfa að höggva eða saga
tneinn stein, ef húsin eru teiknuð
eftir þessu kerfi.
Við munum aðallega fram-
leiða þennan stein úr Seyðishóla
gjalli í fyrstunni, en seinna mun
'hann einnig verða gerður úr
My nd •
íslendir.gar nota
'i sinrur meiri f*
liV ibuóabv ggsnga
a rr»ann er»
Ve s tur - Þjóöv* r iar
er. ó* g6Ja samt
t»Uo»u\ega faern
ibúci r
p- *000 íbúa
Fjárfesting c f0 a XI TJ C <° 1 z o Z
í íbúðabyggingunn I % 2.8 2. 9 4. 4 4 *
þjóðarframleiðslu 5,9 6, 0 6, 0 7 6
5 i
8 4
S. 7
II >
6. 1
7.*
FullgertSar íbúcir
Línurit þetta sýnir Ijóslega hve okkur fslendingum er brýn þörf á að lá.ta gera ýtarlegar
rannsóknir á byggingakostnaði og koma á fót leiðbeiningarstofnun, þar sem húsbyggj-
endur geta fengið hagnýtar ráðleggingar. Línurit þetta var birt í ritinu „Lækkun hús-
næðiskostnaðar“, sem samin var að undirlagi Robert L, Davisons.
Hvernig myndast vikurinn ?
VIKUR myndast í fremur
súrum bergtegundum við
sprengigos, hér á landi venju
lega út lípariti.
Vikur — eða pimpsteinn —
virðist hafa jafnt og slétt yfir
borð, en sé hann athugaður
í stækkunargleri má greina
hina sérstæðu gerð hans.
Hann er myndaður af ara-
grúa tiltölulegra jafnra og ör-
smárra bóla sem þunnir gler-
veggir skilja. Rúmmál gler-
veggjanna er ekki nema 20—
25% af kornarúmmáli vikurs
ins.
Elzti vikur á íslandi mun
vera um 10 þúsund ára gaml
all — frá lokum síðustu ís-
aldar — en sá yngsti rúmlega
tíu ára.
Vikur hefur ekki lengi ver
ið notaður sem fylliefni 1
steinsteypu. Hins vegar
kunnu Rómverjar til forna að
gera sér pozzolan-sement úr
blöndu vikurösku og kalks.
Vikuraska er enn víða notuð
til þess háttar framleiðslu.
Vikurinn og
þýzka endurreisnin
Á síðari árum hafa vikur-
efni verið notuð sem fylli-
efni í steypu, og hefur sú
notkun aukizt jafnt og þétt á
allra seinustu árum, þar sem
á vikri er völ. Stórstígastir
hafa Þjóðverjar verið í þess-
um efnum. Þar jókst vikur-
vöruframleiðslan úr hálfri
milljón lesta árið 1&48 í fimm
og hálfa milljón lesta árið
1955, eða ellefufaldaðist. Full
yrt hefur verið, að endur-
reisn þýzkra borga, þorpa og
atvinnufyrirtækja eftir síð-
ari heimsstyrjöldina — der
deutsche Aufbau — hefði
ekki tekizt jafn hratt og glæsi-
lega ef byggingarefni úr vik-
urframleiðslu hefðu ekki ver
ið fyrir hendi en þessi endur-
reisn hefur svo aftur verið
undirstaða „þýzka efnahags-
undursins“.
Þegar haft er í huga, að
hvergi og aldrei áður mun
hafa verið byggt jafn mikið
í heiminum og í Vestur-
Þýzkalandi eftir stríðið,
skilst, að þetta eru firna mikl
ar staðhæfingar, jafnvel svo
miklar, að tortryggnin vakn-
ar. Tölur hagskýrslna tala þó
ómótmælanlegu máli og má
til dæmis taka árið 1955. Þá
fullnægðu vikurvörur þriðj-
ungi byggingarefnaþarfar
Vestur-Þýzkalands. 43% bygg
ingarefnis íbúðahúsa voru
vikurvörur.
Sett hefur verið á stofn sér
stök tæknistofnun í Vestur-
Þýzkalandi í sambandi við
vikuriðnaðinn. Þar fara fram
efnisprófanir og rannsóknir
auk ráðgjafarstarfsemi. Þá
hafa vikurframleiðendur
stofnsett Gæðaverndarsam-
band vikuriðnaðarins.
Þó að vikurefnaaukning
hafi hvergi orðið eins ör og
í Vestur-Þýzkalandi, þá er
hún síður en svo einskorðuð
við það land eitt. f Banda-
ríkjunum eykst framleiðsla á
léttsteypusteinum úr vikur-
efnum mjög hratt. Á síðast-
liðnu ári var áætlað, að reisa
hefði mátt 800.000 —
1.000.000 einbýlishús úr vik-
ursteinaframleiðslu ársins, ef
hún hefði öll farið til smíði
slíkra húsa.
Kostir vikursins sem bygg-
ingarefnis eru: hann er létt-
ur, sterkur, binzt vel með se-
menti og einangrar ágætlega.
Alit þetta grjót —
og vikurinn líka
Sá, sem þetta skrifar, átti
einu sinni tal við sænska
stúlku, sem svaraði, þegar
hún var spurð, hvað henni
fyndist helzt einkenna ís-
land: ,Allt þetta grjót“.
Samt er það svo að íslend-
ingar lærðu seinna en aðrar
þjóðir að gera sér hús af
steini, svo að ekki sé minnzt
á vikurinn. Saga léttsteypu-
framleiðslu hér hófst ekki
fyrr en með stofnun Vikur-
félagsins, en það hóf fram-
leiðslu á vikurplötum árið
1938 og á holsteinum árið
1943. Á seinasta ári nam fram
leiðsla þess 280.000 einingum,
en þar af voru steinar aðeins
05.000.
Eins og kunnugt er, stofn-
aði Jón heitinn Loftsson Vik-
urfélagið h/f. Hann skipu-
lagði allan rekstur fyrirtækis
ins, og er óhætt að fullyrða,
að hann hafi verið mjög fram
sýnn um fyrirkomulag verk-
smiðjunnar — allt, vélaval og
hagkvæmni í rekstri. Hann
var og afar vandlátur um hrá
efnaval og kaus heldur að
vinna og láta flytja hráefni
langa leið, þótt auðvelt væri
að fá það í nágrenni bæjar-
ins. Má þar minna á gjallið,
sem unnið er í Seyðishólum
austur í Grímsnesi.
Aðalhráefni Vikurfélagsins
er unnið vestur á Snæfells-
nesi. Það hefur myndazt við
gos í Jöklinum fyrír 5—10 þús
und árum. Þá hefur vikur-
sáldrið hrúgazt yfir jökul-
breiðann, sem mun hafa verið
allmiklu umfangsmeiri en nú.
Mest af vikrinum hefur skol-
azt til sjárar með leysingar-
vatni, en geysimikið magn
hefur hlaðizt í öldur eða ása.
Vinnsla vikursins er ákaf-
lega einföld. Leysingarvatn,
sem rennur af jöklinum er
leitt í stokkum og slöngum að
rótum vikurásanna og látið
fleyta vikrinum eftir gilja-
dragi ofan í hvamm niðri á
láglendi. Þaðan er honum
fleytt gegnum valsa, sem
mala hann í rétta stærð, og
síðast er honum fleytt í þriðja
skipti um slöngur út í skipin,
er flytja hann til verksmiðj-
unnar. Þessi flutningsaðferð
er ódýr, og hefur auk þess þá
kosti, að um leið þvost öll
óhreinindi og lingerð korn í
burtu, og vikurinn fær hnött-
ótta lögun.
Ert þú að kaupa bíl?
Og þú ert bindindismaður/
Auðvitað tryggir þú hann hjá
Abyrgdi
þar færð þú langbezt kjör.
LOFTUR h».
LJOSMYNDASTOFAN
Pantið tíma í síma 1-47-72.
TRÚLOFUNAR
ULRICH FALKNER
AMTMANNSSTÍG 2
Við seljum bílana
Morris árg. 1959. Kr. 90 þús.
Útbongun.
Fíat 1100 árg. ’60
Fíat 1100 árg ’55. Kr. 65 þús.
Vauxhall árg. ’50. Kr sam-
komulag
Herjeppi árg. ’42 í góðu standi
Landbúnaðarjeppi árg. ’54 —
meö eða án aftaníkerru. Kr.
95 þús.
Rússajeppi með blæju. Kr. 50
þús. Útborgun.
Ford taxi árg. ’59
Chevrolet árg. ’52, góður bffll
Volkswagen árg. ’60
Volkswagen árg. ’54 og ’50
Bílamir eru til sýnis á staðn-
um.
Bifreiðasalan
Borgartúni 1.
Sími 18085 og 19615.
Volkswngen
sendiferðabill '5 5
nýkominn til landsins. —
Skipti hugsanleg.
Shepher ’55 nýkominn til
landsins.
Austin ’55, mjög góður bíll.
Skipti á Taiunus eða Opel
Station ’60 eða ’61.
Skoda Station ’56, mjög góður
bíll.
Willys ’54, með góðri kerru.
Kaisei ’52. Skipti á 4ra eða 5
manna bíl. Peninganiilligjöf
Chevrolet vörubíll ’55 í góðu
standi með stálpalli. Aðeins
kr. 90 þús.
G. M. C. vörubíll ’53, góður
bíll.
B:*-eiðar við allra hæfi á
á 21 sölunni
Skipholti 21.
Sími 12915.