Morgunblaðið - 26.07.1961, Qupperneq 8
8
MORCUNfíL 4 TtlÐ
Mviðvik'udagur 26. júlí 1961
Hagkvæmni í húsabyggingum er
öruggasta leiöin tii bættra lífskjara
Þýðing vikursins í
byggingaiðnaðinum
MORGUNBLAÐIÐ hitti nýlega
Harald Ásgeirsson, verkfræðing,
að máli og ræddi við hann um
byggingamál og nýjungar í fram
leiðslu Vikurfélagsins h/f, en
Haraldur er framkvæmdastjóri
þess.
— Öflugasta leiðin til bættra
lífskjara almenningi til handa,
sagði Haraldur, er að því er ég
bezt fæ séð fólgin í umbótum
Ritgerða-
sa mkeppni -
Ameríkudvöl
DAGBLAÐIÐ New York Herald
Tribune mun á næsta ári, eins
og áður, bjóða framhaldsskóla-
nemendum frá ýmsum löndum,
einum frá hverju landi, í þriggja
mánaða kynnisför til Bandaríkj-
anna, og greiðir blaðið fargjöld
og kostnað við dvölina vestra
(janúar—marz 1961).
Þátttakendur verða valdir með
hliðsjón af ritgerðasamkeppni, og
er ritgerðarefnið á fslandi að
þessu sinni: „Gildi alþjóðasam-
starfs“. Lengd ritgerðarinnar skal
vera 4—5 vélritaðar síður.
Þátttaka í samkeppninni er
heimil öllum framhaldsskólanem
endum, sem verða 16 ára fyrir
1. jan. 1962, en ekki 19 ára fyrir
30. júní það ár, eru íslenzkir
ríkisborgarar og hafa góða kunn-
áttu í ensku.
Ritgerðirnar, sem eiga að vera
á ensku, skulu hafa borizt
menntamálaráðuneytinu fyrir 15.
september n.k.
Geir Þorvaldsson verkstjóri
við vikurplótustafla.
á byggingarháttum okkar —
kjarabæturnar fást með hag-
kvæmari húsakynnum. Þetta
var raunar glögglega leitt í ljós
í skýrslu sem Iðnaðardeild At-
vinnudeildar Háskólans gaf út í
fyrra, „Lækkun húsnæðiskostn-
Elding
farin norður
AKRANESI, 21. júlí. — Hrað-
báturinn Elding (skipstjóri Haf-
steinn Jóhannsson, froskmaður)
leggur af stað norður kl. 12 í dag.
Útgerð bátsins hefur orðið fyr-
ir miklum töfum vegna verkfalls
ins, þess vegna hefur Elding ekki
komizt af stað fyrr til aðstoðar
síldveiðabátunum.
Afli dragnótabátanna var með
altregasta móti í gær. Alls veidd
ust þrjú tonn á fjóra báta. — O.
aðar". Höfundul hennar er
bandarískur sérfræðingur, Ro-
bert L. Davison.
Ýmsir urðu til þess í orði að
taka undir niðurstöður þær, sem
þessi merki fræðimaður gat birt
okkur eftir aðeins árs dvöl hér
á landi, en sáralítið fer fyrir
raunhæfum viðbrögðum.
Helztu niðurstöður athugana
Davisons, sem gerðar voru í sam
vinnu við ýmsa verkfræðinga,
arkitekta o. fl., eru þær, að við
byggjum um efni fram, að ekki
gæti nægrar fyrirhyggju í bygg-
ingariðnaði okkar, enda skorti
okkur algerlega rannsóknir á
þessu sviði. Miklu fé sé til einsk
is eytt, því að lítillar hag-
kvæmni gæti í gerð og smíði
húsa.
Hin algenga venja okkar að
byrja að byggja áður en við för-
um að hugsa um neitt það, er
að verkinu lýtur, hefur ekki ver-
ið og verður aldrei góð latína.
Hvað teldir þú brýnast í þess-
um málum nu' spyr fréttamað-
urinn.
Úr vélasal.
Þórariim Jónsson, sem ei
reyndar einn af eigendum
Vikurfélagsins sér um að
olíubera plöturnar.
Að vekja viðkomandi stjórnar
völd til vitunöar um nauðsyn
þess að þjálfa tæknimenntaða
menn í byggingariðnaðinum og
beita þeim síðan fyrir sig við
skipulagningu og rannsóknir.
Það er sannarlega ömurlegt til
þess að vita, að innan tveggja
mánaða verður svo komið, að
hið opinbera hefur engum verk-
íræðingi á að skipa í þessum
málum, og skortur á arkitektum
og iðnfræðingum er einnig geig-
væniegur..
Það yrði síðan hlutverk tæknl
fræðinganna að semja gæðamats
reglur, staðla og leiðbeiningar,
og halda uppi fræðslu um hag-
kvæm vinnubrögð, og hvernig
hægt er að koma í veg fyrir só-
unina í þessum iðnaði.
Ég tel, að einskis, einskis
megi nú láta ófreistað við að
hagnýta tækni og sérfræðilega
þekkingu á sviði byggingarmái-
anna.
— Ert þú sjálfur með ein-
hverjar nýjungar á prjónunum
— Helzta starf okkar við Vik-
urfélagið h/f í sumar hefur
beinzt að endurbótum á fram-
leiðslunni.
Mér þætti leitt til þess að vita,
ef Þjóðverjar högnuðust á úi-
flutningi gjalls og vikurs héðan,
án þess að við lærðum sjálfir að
nýta þessi efni. Ég hef því kynnt
mér nokkuð upplýsingar um
Til allra heimila í Reykjavík
„Bylting eða endurreisn“, myndskreytt tímarit Siðvæðingar-
innar sem kemur út í 2,6 milljónum-eintaka á 26 tungumálum,
verður í dag borið á 15000 heimili í Reykjavík. Myndablaðið er
gjöf til íslands frá hundruðum karla og kvenna á Norðurlönd-
um, sem eru sannfærð um að Norðurlöndin fimm hafi sameig-
inlegu hlutverki að gegna: að leggja heiminum til æðri hugsjón,-
sem næsta skrefið fram á við bæði fyrir hinn kommúnistiska cg
ekki — kommúnistiska heim.
Helsinki, Stokkhólmi, Ósló og Kaupmannahöfn,
22. júlí 1961.
Hans Bjerkholt framkvæmdastjóri verkalýðssamtaka, Östvold, Noregi.
Eilíf Skard, prófesso'r, Ósló.
L.ars Dorph-Jensen, máiari, Kaupmannahöfn.
Christian Harhoff, útgerðarmaður, Kaupmannahöfn.
Poul Brodersen, dómprófastur, Kaupmannahöfn.
Margit Borg-Sundman, þingmaður, formaður Kvenfélagasambands Finnlands, Helsinki.
Lennart Segerstrále, listmálari, Borgá, Finnlandi.
James Dickson, þingmaður, Stokkhólmi.
Bengt Jonzon, fyrrverandi hiskup, Luleá, Svíþjóð.
Sjáió „Hámark lífsins" í Sjörnubíói kl. 7.