Morgunblaðið - 26.07.1961, Blaðsíða 5
Mviðvikudagur 26. júlí 3961
MORGUNRLAÐIÐ
5
MENN 06
= MALEFNI=
L FJÖL.L.IN á fslandi eru lík
| fjöllum Grikklands, ég tók sér
staklega eftir þessu, þegar ég
var uppi á Akranesi og horfði
á fjöllin þaðan.
Eg fékk jafn snemma áhuga
á fornbókmenntum þessara
þjóða. Eg var átta ára, þegar
[, ég las fyrstu íslendingasög-
una, en það var Gunnlaugs
saga Ormstungu. Síðan hef ég
lesið þær nær allar og í skól-
anum hefi ég sagt nemendum
mínum frá Njáli og Bergþóru,
Gunnari á Hlíðarenda og mörg
L um öðrum persónum sagn-
anna, sem hafa töfrað mig.
Þetta sagði sænska skáld-
konan og kennarinn frú Je-
anna Oterdahl, er fréttamað-
ur blaðsins hitti hana að máli
fyrir skömmu. Þá hafði hún
dvalið hér á landi tæpan hálf-
an mánuð og var á förum
heim til Svíþjóðar.
Frú Jeanna Oterdahl er
þekkt á Norðurlöndum fyrir
j. 4 ritstörf sín, en hún hefur skrif
að mest fyrir börn, bæði sög-
ur, Ieikrit og Ijóð. Einnig hef-
L ur hún skrifað skáldsögur og
| smásögur. Síðasta bók hennar,
. sem gefin var út fyrir skömmu
f heitir Frán et Udsigtspunkt
j og fjallar um það hvernig er
að verða gamall.
Skáldkonan sagði, að marg-
lr litu til ellinnar með ótta
og sæu eftir hverju árinu, sem
liði. En ef fólk ætti góðar end
urminningar, eins og hún sjálf
færði ellin marga gleði.
Frú Jeanna Oterdahl er 82
i ára gömul, þótt erfitt sé að
j trúa því, þegar maður sér hana
f og ræðir við hana.
— Hvenær gáfuð þér út
í fyrstu bók yðar?
— Það eru nú 60 ár síðan.
Það var ljóðabók fyrir börn.
Ég var þá 22 ára.
— Þér hafið nú heimsótt
löndin, sem hrifu yður í æsku
með bókmenntum sínum?
— Já, ég fór til Grikklands
s.I. sumar og dvaldi þar um
tíma. Mér finnst fjöliin vera
■ -það eina, sem líkt er með ís-
landi og Grikklandi. Þjóðirn-
ar, sem þessi lönd byggja eru
gerólíkar. 1 Grikklandi berzt
fólkið við fátæktina og at-
vinnuieysið, sem er mjög mik
ið. En á íslandi er eins og all
ir hafi nóg að bíta og brenna,
þjóðin er framsækin og hefur
brotizt áfram gegnum erfið-
leika aldanna og komizt vel
á veg. Ég dáist að íslending-
um. Þcgar ég kem heim ætla
ég að spreyta mig á því að lesa
islenzku og hef orðið mér úti
um mjög góða sænsk-íslenzka
orðabók. Mér finnst Norður-
landaþjóðirnar, sem allar eru
af sama stofni eigi að skilja
mál hver annarrar. Ég hef
ferðazt ótal sinnum um Dan-
mörku, Noreg og Finnland, en
þetta er í fyrsta sinn, sem ég
kem til íslands. Ég er mjög
þakklát fyrir að mér skyldi
auðnast það.
— Hafið þér ferðast mikið
um yðar eigið land?
— Já, þvert og endilangt.
Mest í sambandi við stöðu
mína við Folkbildings for-
bundet, en hún er í því fólgin
að ferðast milli skóla landsins
og halda fyrirlestra um ýmis
efni t.d. bókmenntir, náttúru-
fræði sögu o.fl. Einnig hef ég
í sambandi við þetta starf flutt
fyrirlestra á Norðurlöndun-
um, nema íslandi og Færeyj-
uin.
— Hvar búið þér í Sviþjóð?
— Ég er uppalin í Gauta-
borg og hef búið þar síðan.
Það er mín fagra borg.
— Þér þekktuð Selmu Lag
erlöf?
— Já, það er varla hægt að
segja, að við höfum verið vin
konur til þess var aldursmun
urinn of mikill. En ég þekkti
hana vel og bjó hjá henni á
Marbakka um tíma vorið 1916,
lifði vor með Selmu Lagerlöf.
Þetta var erfiður tími fyrir
Selmu, styrjöld geisaði í
heiminum og allt það böl, ógn
ir og skelfing er henni fylgdi
gerði hana sorgmædda. Á þess
um tíma skrifaði hún mjög lít
ið, hún var þá 58 ára. En eftir
það tók hún til að skrifa á ný
af ftullum krafti eins og kunn
ugt er.
— Var fallegt á Marbakka?
— I samanburði við aðra
— Lærðuð þér eitthvað af
Selmu?
— Ekki sérstaklega, en hún
hefur haft mjög mikil áhrif á
alla Svía með skáldskap sín-
um. Selma Lagerlöf hefur Iært
mikið af íslendingasögunum
eins og Björnson og Sigrid
Undset.
— Þið Svíar misstuð fyrir
skömmu ástsælt skáld?
— Já, Hjalmar Gullberg,
hann og Per Lagerquist voru
mestir okkar núlifandi skálda.
Lagerquist hefur samið, eins
og kunnugt er bæði skáldsög-
ur, Ieikrit og Ijóð, en Gull-
berg orti aðeins Ijóð. Hann
var heitt elskaður og virtur í
Svíþjóð og veldur Iát bans
þjóðarsorg. Gullberg fór mjög
einförum, hann kvæntist
aldrei, var mjög hæglátur og
vildi sem minnst láta um sig
skrifa og tala. Hann hefur ver
ið lengi veikur.
— Hvað hefur hrifið yður
mest hér á landi?
— Vorhugur þjóðarinnar og
gestrisni hafa haft mikil á-
hrif á mig, en ég get vart tek
ið neitt eitt dæmi. Ég ferðaðist t
norður í land og þótti mér í
yndislegt að sjá stóð á beit á
iðgrænum velli við hraunjað
ar, og í baksýn tignarleg f jöll
in, sem gnæfa við himin.
H Kemur í staðinn Númi nýtur,
nær að skoðast þar um kring:,
en sérhvað, er augað lítur,
ákaft boðar hildarþing.
t
Málmar emja hátt við hamri,
hlífar lemjast steðjum á,
engin hemja er á því lgamri,
eldar semja járnin blá.
Smiðju hreykist gufan gráa,
glóðir kveiktar bröndum á,
skýjum feyktu af hveli háa
og himininn sleiktu nakinn þá.
Hermenn þreyttir hildi læra,
hlífum skreyttur sérhver er;
» hesta sveitta I eyrum æra
orrustuþeyttu lúðrarnir.
Núml undrast, Númi hræðist,
I Númi grundar, hvað til ber,
/ Númi skundar, Númi læðist,
Númi undan víkur sér.
tJr Númarímum Sigurðar Breiðfjörðs.
Loftleiðir h.f.: — Snorri Sturluson
®r væntanlegur frá N.Y. kl. 06:30. Fer
til Glasg. og Amsterdam kl. 08:00. Kem
tir til baka kl. 24:00. Heldur áfram til
N.Y. kl. 01:30. — Þorfinnur karlsefni
er væntanlegur frá N.Y. kl. 06:30. Fer
til Stafangurs og Ösló kl. 08:00.
Flugfélag íslands h.f.: — Gullfaxi
fer tii Glasg. og Kaupmh. kl. 08:00 í
dag. Væntanlegur aftur kl. 22:30 í
lcvöki. Fer til sömu staða kl. 08:00 1
fyrramálið. — Hrímfaxi fer tii Öslóar,
Kaupmh. og Hamb. kl. 08:30 í dag.
Væntanlegur aftur kl. 23:55 í kvöld.
Innanlandsflug í dag: Til Akureyrar
f2), Egilsstaða, Hellu, Hornaf j arðar,
' Húsavíkur, Isafjarðar og Vestmanna-
eyja (2). — A morgun: Til Akureyrar
• »(3), Egilsstaða, ísafjarðar, Kópaskers,
Vestmannaeyja (2) og Þórshafnar.
Eimskipaféiag íslaads hi.: — Brúar-
«oss er í N.Y. — Dettifoss er I Rvik. —
FjalLfoss fór frá Immingham í gær til
Rotterdam. — Goðafoss er á leið til
Hull. — Gullfoss er á leið til Kaupmh.
— Lagarfoss fór í gær frá Flateyri til
Patreksfjarðar. — Reykjafoss kemur
til Rvíkur á morgun. — Selfoss er á
leið til Dublin. — Tröilafoss er á leið
til Kotka. — Tungufoss fer frá Akur-
eyri í dag til Húsavíkur.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er vænt-
anl. til Rvíkur árd. í dag frá Norður
löndum. Esja fór frá Akureyri í gær
vestur um land til Rvíkur. Herjólfur
fer frá Rvík kl. 21:00 í kvöld til Vest
mannaeyja. Þyrill er á Austfjörðum.
Skjaldbreið er á Skagafirði á vestur
leið. Herðubreið er á Austfjörðum á
suðurleið.
Eimskipafélag R^ykjavíkUr h.f.: —
Katla er í Rúðuborg. — Askja fer frá
Riga í dag til íslands.
H.f. Jöklar: — Langjökull fer frá
Hafnarfirði í kvöld til Rússlands. —
Vatnajökull lestar á Vestfjarða- og
Norðurlandshöfnum.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er 1
Onega. — Arnarfell er í Arohangelsk.
— Jökulfell losar á Eyjafjarðarhöfn-
um. — Dísarfell mr á leið til Helsing-
fors. — Litlafell er í Rvík. — Helgafell
fer í dag frá Flekkefjord til Seyðisfj.
— Hamrafell er á leið til Aruba.
'ÁHEIT og CJAFIR
Stramlakirkja, afh. Mbl.: — OS og
SO kr. 500; SJ 60; gamalt áheit 100;
NN 50; GV 400; NN 10; Ása, garnalt áh.
20; Ása nýtt áh. 10; KS 120; SH 300;
HG 100; JH 500; JHF 500; MS 150;
EB 50; Hí> 200; frá ónefndum 130;
gamalt áh. 50; SG 300; DavíS 150; NN
500; ST 500; Sveini 50; SNJ 100; JM
25; AB 50; ÞO 800; Ingibjörg 100; AM
200; MG 200; MG 20; Hrefna Prefesh
Tekið á móti
tilkynningum
í Dagbók
trá kl. 10-12 t.h.
j
100; OS 100; Anna 10; NN 51 100; NN
100; MH 25; EE 100; HH 300; ES 200;
ES 25; RG 25; EÞ 50; SS 2000; SE 75;
Rósa 50; NN 200; NN 100; HG 100;
gamalt áh. 30; Pit 50; AMS 200; GO
50; frá ónefndum 30; LJ 5,598 20; NN
5; Sigríði 50; Liliu 100; NN 200; A 25;
JG 150; ónefndur 25; ÞSG 100; SO
100; ÖÞ 300; ES 100; HJ 100; KE 150;
AO 150 +35=185; TH 40; AF 20; MH
50; þakklát 25; AB 500; >G 50; VA
200; SG 100; GI 100; KE 10; AE 2 gömul
áheit 500; LJ 500; Kona á Selfossi
200; þakklát móðir 25; VG 100; IG 50;
SS 50; BÞ 100; NN 25; GJ 50; frá konu
100; V+B 200; PE 50; Kristjana 100;
Sigrún 50: frá gamalli konu 50; EES
125; gamalt áheit frá Vestmannaeyjum
50; IÞ 100; HS 200; Auður 100; X 300;
SÞ 50; SE 25; Sð 50; NS 100; NN 50;
GBH 50; ÁR 30; GS MM 500; gamalt
áh. 100; NS 200; NN 25; GÞ 50; GH
200; frá gamalli konu 25; JB 500; IB
85; AG 500; SÖ 200; Sunnu 100; SÖ
500; M. Júl. Höfn Hornaf. 50; þakklát
kona 245; GB 100; ÖU 200; MI 30;
SP 250; Ingu Björnsd. 70; ES 40; Gústa
50; SS 100; NN 10; Kona 200; HÞ 500;
LS 100; gamalt áh. GJ 100: GJ 100;
GJ 60; áheit 30; BW 100; Skaró 200.
Söföin
Bæjarbókasafn Reykjavíkur lokað
vegna sumarleyfa. Opnað aftur 8. ág.
Listasafn íslands er opið daglega frá
kl. 13,30—16.
Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Minjasafn Reykjavfkurbæjar, Skúla
túni 2, opið dag’.ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Þjóðminjasafnið er opið daglega frá
kl. 1:30—4 e.h.
Árbæjarsafn er opið daglega kl.
2—6 e.h. nema mánudaga.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
daglega kl. 1:30 til 3:30.
Tæknibókasafn IMSÍ (Iðnskólahús-
inu, Skólavörðutorgi, er opið mánu-
daga til föstudags kl. 1—7 eJh.
Ameríska bókasafnið, Laugavegi 13.
er opið kl. 9—12 ng 13—18, lokað laug-
ardaga og sunudaga.
Sængur.
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Eigum dí n og fiður
helt ver. Seljum æðardúns-
og gæsadúns-sængur.
Fiðurlireinsunin, Kirkju-
teigi 29. — Sími 33301
Rauðamöl
Seljum mjög góða rauða-
möl. Ennfremur vikurgjall,
gróft og fínt. Sími 50447
og 50519.
íbúð
Óska eftir 2ja—3ja herb.
íbúð til leigu fyrsta ágúst
eða síðar. Uppl. 1 síma
34775.
A T H U G I Ð
að borið saman '8 útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
[ Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
Radiofónn
Til sölu sem nýr Grundig-
Majestic stereophoníc rad-
iofónn. Uppl. í síma 37993.
Tún
til leigu. Uppl. í síma 18093
frá kl. 4—8 í dag.
Til sölu
Volkswagen nýkominn til
landsins. Til sýnis að Borg
arholtsbraut 20A eftir kL
5 á kvöldin.
Sófaborð
Fallegt ódýrt sófaborð tii
sölu og sýnis r ð Laufásvegi
74.
íbúð og söluturn
eru til sölu í Hafnarfirði. íbúðin er riýleg 3ja herb.
hæð í steinhúsi. Söluturninn er 3ja ára gamaU, um
20 ferm. og staðsettur rétt hjá íbúðinni.
Nánari upplýsingar gefur;
MÁLFLUTNIN GSSKRIFSTOFA
VAGNS E. JÓNSSONAR, hdL
Austurstræti 9. Símar; 14400 og 16766
12 tonna bátur
í ágætu standi til sölu. — Vél Perkins 68 ha. árgerð
1960. — Upplýsingar gefuri
HAUKUR DAVttlSSON — Sími 12
Neskaupstað
ÚTBOD
Tilboð óskast í að byggja kjaUara og undirstöður
undir íþróttahús Hafnarfjarðar. Uppdrátta og lýs-
inga má vitja á skrifstofu minni, gegn 500 kr. skila-
tryggingU.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði
Rör % tommu, svört, ósnittuð,
fyrirliggjandi
Sighvaiur Einarsson & Co.
Skipholti 15 — Sími 24133 og 24137
Matráðskona
óskast að hóteli úti á landi nú þegar. — Upplýsingar
í síma 33983.
Verzlunarpláss 'óskast
Fyrirtæki óskar eftir verzlunarplássi á góðum stað í
bænum. Þarf ekki að vera á jarðhæð, ef sýningar-
gluggar eru fyrir hendi. — Lysthafendur sendi
tilboð á afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld merkt:
„Verzlun og léttur iðnaður — 128“.