Morgunblaðið - 28.01.1942, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.01.1942, Blaðsíða 1
Vinnustöðvunin 1942. — 3. tbl. Bæjarsljórnarko§ningarnar. • ________ Engin veruleg röskun á fylgi fiokkanna. Sjálfstæðismenn vinna Akranes. Rauð liðar inissa meiri- hlutann á Siglufirði. GerræðiD i Hafnarfirðl. Þrír merkir Reykvíking- ar látnir. Nýlega hafa látist hjer í bæn um þrír gamlir og góðkunnir Reykvíkingar. Þeir voru allir yfir sjötugt. Þann 7. janúar Ijetst á Landa- kotsspítala Hannes Guðmunds- son, sem jafnan var kendur við Gróubæ. Merkur og vel látinn Reykvíkingur. Hann var 75 ára að aldri. Pjetur Þórðarson hafnsögu- maður andaðist þann 19. janúar síðastl. Hann var 73 ára að aldri Pjetur var um margra ára skeið hafnsögumaður hjer í Reykja- vík. Hann var faðir Erlendar Ó. Pjeturssonar íþróttafrömuð- ar. — Ásgeir Eyþórsson, faðir Ás- geirs bankastjóra og þeirra systkina, andaðist hjer í bæn- um 19. janúar. Ásgeir var 73 ára, er hann ljetst. Bæjarstjórnarkosningar fóru fram í 8 kaupstöðum, utan Reykjavíkur á sunnudaginn var. Úrslitin eru mönnum kunn og eru þau einnig birt hjer á eftir. Hvaða ályktun verður dregin af niðurstöðutölum kosning- anna? Niðurstaða kosninganna í heild sýnir, að fylgi flokkanna er mjög svipað nú og það var við síðustu bæjarstj-.kosningar, 1938. Þetta kemur greinilega í ljós á öllum þeim stöðum, þar sem um hreina flokkskosningu er að ræða. I tveim kaupstaðanna hefir orðið það mikil breyting, að raskast hefir sá meiri hluti, sem fór með völdin, og í báðum hefir breytingin orðið Sjálfstæðis • mönnum í vil. Þessir kaupstaðir eru Akranes og Siglufjörður. Á Akranesi hefir Sjálfstæðisflokk urinn unnið glæsilegan sigur, fjekk 5 menn kjörna en hafði 3 áður. Á Siglufirði hafa atkv. Sjálfstæðismanna nú fallið á tvo lista, flokkslistann og lista óháðra. Sú breyting hefir og crðið þar, að samfylking Alþýðu flokksins og kommúnista, sem hafði meiri hluta í bæjarstjórn, er nú komin í minni hluta. Hvað upp úr því kemur er hins vegar ókunnugt enn. * Útkoman hjá Alþýðpflokkn- um virðist að vísu nokkru betri nú en síðast, í tveimur kaupstöð- um, Hafnarfirði og ísafirði, en þetta eru höfuðvígi þess flokks, seiu kunnugt er. Að því er Hafn- arfjörð snertir, er skýringin eðli leg. Þar gengu Sjálfstæðismenn til kosninga án nokkurs blaða- kosts- Þar fjekk Alþýðuflokk- urjnn að beita til fulls því óheyri lega gerræðj gegn lýðræðinu, seifl hann hugðist einnig að beita gegn Reykvíkingum, en varð afstýrt á síðustu stundu. Auðvitað átti að fresta kosning- unni í Hafnarfirði eins og í Reykjavík, því að það er full- komið brot á grundvallarreglu lýðræðisins, að leyfa kosningar með þeim hætti, sem hjer var gert. Og ef nokkurntíma er á- stæða til að kæra og ógilda kosningu, þá er það þessi kosn- ing í Hafnarfirði. Þorir Alþýðu- flokkurinn að ganga til kosn- inga á ný í Hafnarfirði, eftir að flokkarnir standa jafnt að vígi með útgáfu blaða? * Á ísafirði hafa bersýnilega orðið einhver mistök á framboði hjá Sjálfstæðismönnum. Listi óháðra, sem talið var að væri sambland af mönnum úr öllum flokkum, hefir sýni- lega fengið öll atkvæðin frá Sjálfstæðismönnum, enda þótt efstu mennirnir væru ekki flokksmenn, Alþýðuflokkurinn hefir hins vegar haldið utan um sitt fylgi, og það hefir bjargað honum, en þó ekki meir en svo, að hann hefir nú færri atkvæði en síðast. Á Akureyri og Seyðisfirði gátu Sjálfstæðismenn ekki stað- ið sameinaðir um sinn flokks- lista. Á báðum stöðunum komu einnig fram listar óháðra borg- ara, með Sjálfstæðismönnum á, og þeir fengu atkvæði Sjálfstæð ismanna. Sama átti sjer einnig stað í sumum kauptúnanna, t.d. í Keflavík. Af þessu stafar það, að flokkslistarnir fá færri at- kvæðatölu en síðast. En saman- lagðar tölurnar á flokkslistun- um og listum óháðra sína, að fylgi flokksins er jafn sterkt og áður og sterkara. ¥ Úrslit kosninganna urðu þessi: Hafnarf jörður. Sjálfstæðisfl. FRAMH. Á ANNARI SÍÐU. Eftir að Rommel hershöfðingi hafði hörfað undan í Líbýu næst um út úr Cyrenaica og var kom- inn alla leið til E1 Ageihla, sneri hann síðastliðinn fimtudag við, og hóf síðan sókn á hendur Bret um. Á undanhaldinu var hann um áramót kominn til Jedabíu (Agedabia) og hörfaði enn það- an til E1 Ageihla um 120 km. sunnar. Á föstudaginn var hann kominn aftur til Jedabia og um helgina geisuðu miklar skrið- drekaorustur á stóru svæði um 100 km. fyrir norðan Jedabia. 1 London var*á mánudaginn viðurkent, að ekki væri að fullu ljóst, hver fyrirætlan Rommels væri. Var rætt um tvo mögu- leika, annan þann, að Rommel væri á stórfeldri könnunarferð og ætlaði að reyna að eyðil- leggja sem mest af liðsafla Breta. Aðferð hans myndi þá vera að sækja fram, greiða högg og hörfa síðan. — Hinn mögu- leikinn, sem menn voru farnir að telja jafn sennilegan, var að Rommel ætlaði sjer \eitthvað meira, og að hann myndi reyna að sækja fram til Barche og fara þá fram hjá Benghasi, eþa þá að halda til Benghasi, og síðan þaðan austur á bóginn. Skriðdrekaorustan, sem geis- aði yfir helgina, var háð á svæð inu milli Msus og Soluk og það- an til strandar. Bretar höfðu á mánudaginn ekki birt neinar sundurliðaðar upplýsingar um þessa orustu, en bentu á, að henni hlyti senn að verða lok- ið, þar sem báðir aðilar myndu fara að þarfnast hvíldar til þess að endurskipuleggja lið sitt og safna nýjum vistum. En Þjóðverjar og ítalir segj- ast elta undanhald hins sigraða óvinar fyrir norðan Jedabia og sögðust á mánudaginn vera bún ir að hertaka eða eyðileggja 237 skriðdreka og 116 fallbyss- ur. — „Norðlægur útvörður. Kalt víti" New York blaðið „P. M” birti nýlega smágrein um ísland und- ii yfirskriftinni: “Norðlægur út- vörður. Kalt víti“. Greinarkornið er sagt bygt á samtali við amerískan verka- menn, sem voru að koma heim frá íslandi, og gáfu þeir „svarta mynd af hinni nýju flotastöð“, eins og blaðið kemst að orði. Þeir segja m. a.: „Það er dapurlegur eyðistað- ur. Það eru svo að segja stöð- ugar rigningar, og stormurinn næðir frá fjöllunum. Afarlítil steik kostar 2 doll- ara (13 krónur). Karlmannsföt sem eru 25 dollara virði, kosta 60 dollara. Allar algengar fæðu tegundir eru þurkaðar, mjólkin, sykurinn og eggin, en súpur eru niðursoðnar. Kvikmyndirnar eru þriggja ára gamlar, en dansleikir í Oddfellowhöllinni gætu verið góðir, ef bara ekki vantaði kvenfólkið!" „Sorglegasta áfallið, sem verkamennirnir urðu fyrir, var að beiskur, heimabruggaður bjór, kostaði 2 krónur flask an, og harðasta áfallið var, að flaskan af amerísku whiskyi kostaði 30 dollara (195 krónur) 318 milj. króna heildar- viðskifti við útlönd. Útflutningurinn árið sem leið nam að verðmæti kr. 188- 504.300, en innflutningurinn kr. 129.570.450. Verslunarjöfnuður inn varð þannig hagstæður um 59 miljónir króna. Árið 1940 nam útflutningur- inn 132.908.000 krónum, inn- flutningurinn 72.317.200 krón- um og verslunarjöfnuðurinn varð þá hagstæður um 60,5 milj. krónur. Verðmæti ísfisksins nam rúm- lega helmingi (51—52%) af heildarútflutnings verðmætinu árið sem leið, en afurðir sjávar- útyegsins almennt, ísfiskur, salt- fiskur, freðfiskur, niðursoðinn fiskur, harðfiskur, síldarafurð- ir o. fl. tæpum 180 miljónum króna. Af landbúnaðar afurðum gætir raunverulega aðeins salt- aðra gæra, fyrir 4.7 milj. króna og ullar fyrir 2.8 milj. króna. Heildarviðskifti okkar við út- lönd námu árið sem leið 318 milj. kr„ en árið þar áður 250 milj. kr. Er athyglisvert að bera þetta saman við viðskiftin fyrir stríð, er heildarviðskiftin námu — 120 miljónum króna. Nýr kandidat. Samkvæmt skeyti frá sendi- ráði Islands í Kaupmannahöfn hefir Magnús Sigurðsson frá Veðramóti nýlega lokið kandi- datsprófi í viðskiftahagfræði með ágætiseinkunn, við háskól- ann í Leipzig. Vinnur hann nú að undirbúningi að doktorsrit- gerð í fagi sínu, sem hann býst við að muni taka eitt til eitt og hálft ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.