Morgunblaðið - 02.07.1929, Side 3
MORGUNBLAÐJÐ
*
MorQtmbMtb
Stofnandi: Vilh. Finsen.
UtKefandi: Fjelag i Heykjavlk.
Ritstjórar: JOn Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingast Jóri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Slml nr. 500.
Autflýsingraskrifstofa nr. 700.
Heimaslmar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
i íftajf Jald .
Innanlands kr. 2.00 á mánu&i.
Htanlands kr. 2.60 - ---
1 lausasölu 10 aura eintakið.
trísndar sfmfregnir.
Kliöfn, PB 29. júní.
Ófriðarskuldir Frakka.
Prá París er símað: Þingið hefir
rætt um skuldasamning Frakka
við Bandaríkin. Poincaré óskaði
í>ess, að samningurinn yrði stað-
f'estur, eins og sagt var frá í skeyti
öýlega. Prakkar verða að greiða
Pandarík j unum fjögur hundruð
roiljónir dollara þann 1. ágúst, ef
skuldasamningurmn verður ekki
Staðfestur fyrir þann tíma. Prank-
lin og Bouillon hafa lagt það til,
reynt verði af nýju að hefja
samningatilraunir við stjórnina í
Bandaríkjunum, um frestun þess-
ara fjögur hundruð dollaramilj-
óna. Þingið samþykti tillöguna.
Poincaré lofaði að reyna að semja
við Bandaríkin, en ljet í ljós, að
iítil von væri um árangur af því.
Bandaríkjamenn tregir að veita
gjaldfrest.
Frá París er símað: Bandaríkja-
stjórn hefir synjað beiðni Prakka
um frestun á gjalddaga þessara 400
dollara-miljóna, sem áður hefir
verið getið um í skeytum. Kveðst
Bandaríkjastjórnin ekki geta frest
að gjalddaganum, nema Frakltar
staðfesti skuldasamninginn fyrir
þ. 1. ágúst.
Flugþraut.
Prá Los Angelos er símað: —
kapt. Hawkes hafi flogið hingað
fiá New ú ork á rúmlega nítján
klukkustundum og fimm mínútum.
Hefir enginn annar flogið þessa
Lið á jafnskömmum tíma.
Flugmönnum bjargað.
Frá London er símað: Plotamála-
stjórnin tilkynnir, að breska her-
skipið „Eagle“ hafi fundið spán-
verka Atlantshafsflugmanninn
Pranco og fjelaga hans. Pann her-
skipið flugvjelina á reki sunnan
'við Azoreyjar og bjargaði mönn-
Unum. — Plugmönnunum líður
VeL
Oengið.
Kaup. Sala.
22.04 22.15
4 543/4 4.57 Vx
108.41 108.95
17.79 17.95 63.59 88 05 24.04 65.11 183.65 13.57
121.88 122.49
121 18 121.79
12109 121.70
&1- kr. 100.00
81.60.
d. kr. 82.
AtlantshaisSlngin.
Cramer, fjelagi Hassels frá í fyrra, er að leggja
á stað í Atlantshafsflug.
Khöfn, PB 30. júní.
Kaupmannahafnarblaðið „Nati-
onaltidende“ skýrir frá því, að
Cramer, sem tók þátt í flugi Hass-
els í fyrrasumar, ætli ásamt Gast
flugmanni að fljúga í næstu viku
frá Chicago, um Hobbs-stöð í
Grænlandi, Reykjavík, og Bergen,
til Berlín og hafa viðdvöl í áður-
nefndum stöðum.
Kauþmannahafnarblaðið „Polif
tiken“ skýrir frá því, að Cramer
ætli að fljúga frá Chicago, þann
13. júlí, en þó fyr ef veðurhorfur
verða góðar. Tilgangurinm er að
rannsaka möguleikana fyrir reglu-
bundnum Atlantshafsflugferðum á
framannefndri leið.
Blaðið Chieago Tribmie og blað-
ið New York Times bera kostn-
aðinn af flugferðinni.
Fulltrói Chicago Tribune samdi
í gær við Dani um lendingu í
Grænlandi.
Cramer fer að engu óðslega.
Kliöfn, FB. 1. júlí.
Prá New York City er símað:
Plugmennirnir Cramer og Gast
flugu í gær hjeðan til Chicago.
Hefja þeir Atlantshafsflugið það-
an, líklega um næstu helgi, en þó
er hugsanlegt, að þeir fari af stað
um miðbik þessarar viku. Þeir
nota stóra fjögra hreyfla Amfebie-
flugvjel.
Pyrsta daginn ætla þeir til Ru-
pert House, Canada, annan daginn
til Hobbs-stöðvar á Grænlandi,
þriðja daginn til Reykjavíkur,
fjórða daginn til Bergen og fimta
daginn til Berlínar. Þeir ætla áð
fljúga sömu leið til baka yfir
Grænland og Island.
Landsmálafundur
í Norðfirði.
Norðfirði, 1. júlí.
Landsmálafundur Sjálfstæðis-
manna hófst kl. 4 í gær og stóð
óslitið til kl. 11 y^. Pundarmenn á
fjórða lmndrað. Jón Þorláksson
hóf máls á stofnun Sjálfstæðis-;
flokksins; rakti síðan gang helstu
þingmála og vítti það, sem víta-
verðast, er í aðgerðum stjórnarinn-1
ar og stuðningsmanna hennar. Kom :
hann allvíða við og gaf gleggri j
mynd af stjórnarfarinu en ætla
mætti unt á jafn takmörkuðum
ræðutíma, % stundar. Gerðu fund-
armenn ágætan róm qð máli hans
og fanst á, að kjósendum þótti ó-
líkt betur framreitt en þeir eiga að
venjast á leiðarþingum Sveins og |
Tngvars. — Næstur skrafaði Jón
Baldvinsson af miklum móð en
rýrum rökum. Þótti mörgum þetta
linbakaður pólitískur þrumari. —
Pjarðar-Sveinn ljet lítið af fram-
söguræðunni en treystist bersýni-
lega ekki að igerast málsvari stjórn
arinnar, en helt venjulegt leiðar-
þing. Árni frá Múla flutti einarð-
lega og þróttmikla ræðu, kom víða
,við og endaði á nokkrum alvarleg-
um íhugunarorðum til Jóns Bald-
vinssonar út af mútufjenu danska
til íslenskra jafnaðarmanna. —
InRvar reyndi lítillega að verja
aðgerðir stjórnarliðsins, en tókst
aumlega sem vonlegt var; þótti
með lakasta móti framreitt af hans
hálfu. Ritstjóri Jafnaðarmannsins
kom og til liðs við Jón Baldvins-
son, en sneri síðan máli sínu aðal-
lega gegn Sveini út af aðgerðum
luins í jarðakaupamáli Neskaup-
staðar á síðasta þingi; Ilver ræðu-
maður talaði þrisvar og fór fund-
urinn prýðilega fram. Sjálfstæðis-
menn fórn með sigur af hólmi, en
Ingvar og Jón Baldvilisson þóttu
sárt leiknir. f lrvöld flytur Jón
Þorláksson erindi. Almenn ánægja
yfir hingaðkomu Sjálfstæðis-
manna. Þeir fara til Eskifjarðar á
morgun.
Pundarmaður.
Landsmálafundurinn í Siglufirði
fórst fyyir, vegna þess hvað Goða-
foss stóð þar stutt við.
Knattspymumót íslands.
K. R. vinnur íslandsbikarinn.
Á sunnudagskvold lauk hinu veg
legasta knattspyrnumóti íslands.
Kappleikar mótsins urðu að þessu
sinni 10 með úrslitaleiknum. Fjöldi
bæjarbúa kom á völlinn til að
horfa á úrslitaleikinn milli K. R.
og Vals. Áhorfendur fylgdu leikn-
um með mikilli athygli frá byi'jun
til enda. Yar úrslitaleikurinn eins
°S vera bar tvímxelalaust besti
og fjörugasti leikur mótsins.
f byrjun leiks gerði Valur
skarpt álilaup á K. R.., sem stöðv-
að var af ágætri vörn K. R. Um
15 mínútur lá þó meira á K. R.
En eftir það gei-ði K. R. mikla
sókn á Val, sem helst að miklu út
hálfleikinn. Skoraði Þorst. Jónsson
úr K. R. þá fyrsta íxiai’kið hjá Val.
Var þá eftir um 10 mínixtixr af
hálfleik, og endaði liann með 1: 0.
í seinni hálfleik var fjörug sókn
og vörn á báða bóga. Um tíma lá
þó nxeira á K. R. en síðast í leikn-
um hóf K. R. sókn og þeg-
ar 8 mínútur vorú eftir af leikn-
um skorar Daníel Stefánsson mark
hjá Aral. Eftir nokkra sttund skor-
aði Ingvar Ólafsson þriðja markið
hjá Val. Á síðustu stundu hóf Val-
ui' aft.ur sókxx og skoraði þá Agnar
Breiðfjörð mark hjá K. R. Endaði
þá leikuriim svo, að K. R. vann
Val nxeð 3:1. Leikur beggja fje-
laganna var hinn prýðilegasti og
drengilegasti og enginn efi er nú
á, hvað er hesta og næsthesta fje-
lagið senx stendur. Að ólöstuðum
himxm unga og efnilega knatt-
spyrnumanni Tngvari Ólafssyni, er
ljek í liði K. R. í stað Þorsteins
Einarssonar, nxunaði K. R. þó mik-
ið unx að hafa ekki Þorstein.
(Hann meiddist í fæti í kappleik
við Vestmannaeyinga). En á mót-
inu skoraði K. R. samtals 20 mörk,
en hin fjelögin mest 8.
Forseti í. S. í. afhenti K. R.
að leikslokum fslandsbikarinn
og hverjum keppanda í liði K. R.
heiðurspening úr gulli. K. R. held-
ur því áfram nafnbótinni „besta
knattspyrnufjelag íslands“. Er
það í sjötta sinn nú, sem K. R. hef-
ir unnið bikai’inn.
Gætið hagsmuna yðar!
Notið aðeins góðar vðrnr.
.EVERYDAY* - mjólhiii
ð erindi inn ð hvert eínasta heimili,
sakir ðuiðiafnanlegra gæla.
Heildsfilnbirgðir hjá
0. lohnson & Kaaber,
Reykjavík.
Ódýrar góðer vörur.
Léreft, Sportbuxur,
Tvisttau, Stormjakkar 12,25.
Kjölaefni, Sportsokkar,
Kjólar, Svnntnr, Skyrtnr.
Tösknr, allar stærðir, afar ódýrar. Alt
nýjar vðrnr með áreiðanlega betra verði
en á ntsölum.
Verslnn Toría G. Þórðarsonar.
Langaveg.
Hjei’ með er skorað á váti’yggixigarfjelög, sem hjer á landi starfa
og aðalumboð hafa í Reykjavík, en ekki hafa ennþá sent skýrslu um
eignir sínar í ái’slok 1928 og tekjur það ár, að senda þær skýrslur
til skattstofunnar í Hafnarstræti (Edinborg) í síðasta lagi 10. júlí
n. k. Annars kostar verða þeim áætlaðar eignir og tekjur til skatts
að þessu sinni, eins og lög standa til.
Varaskattstjórinn í Reykjavík, 1. júlí 1929.
Signrjón Markússon.
Kartöflnr.
Með e.s. SELFOSS/16. þ .m. fáum við valdar ítalsk-
ar kartöflur, sem vjer seljum á lægsta fáanlegu verði.
Kaupmenn, pantið ekki kartöflur án þess að tala
fyrst við okkur.
Eigum lítið eitt óselt af því, sem kom með e.s.
GOÐAFOSS.
Eggert Kristjánsson S Co.
Símar 1317 og 1400.