Morgunblaðið - 01.05.1921, Blaðsíða 3
t
Bannmenn s e g j a : Eigi
hafa hegningalögin verið samþykt
«f aliri kosningabærri alþýðu, og
eigi sóttvarnarlögin, en af hverju?
E g s e g i: Þarna er iinnur liöf-
uðvilla þeirra. Þeir blanda sanian
máium, sem eru jafn fjarskyld og
þessi. Eg get svarað því, hvens
vegna þessi lög hafa ekki verið
borin undir þjóðaratkvæði. Vegna
þess, að þarna er verið að vernda
einstaklingana hvern fyrir öðram,
•en ekki fyrir sjálfum sér! Eins og
eg hefi bent á áður, er það sitt
hvað, að setja lög ulm það, hveruig
tnenn eigi að hegða sér gagnvart
öðrum, eða hvernig þeir eigi að
hegða sér gagnvart sjálfum sér.
Fyrir áhrif meuningarinnar er
tiægt að setja lög um hið fyrra,
en hið síðara er úframkvæmanlegt,
vegna þess, að enginn maður er
skapaður með sömu eiginleikum og
annar.
Rann m e n n s e g j a: Vín er
eitur, sem á fara með á líkan hátt
ng arsenik, kokain, opium, strykn-
in o. fl. þess háttar.
E g s e g i: Vín er ékki eitur,
nfima 'það sé gert að eitri, og það
er hægt að gera við alla drykki. í
góðum vínum er ekki meira eitur
en í hverjnm öðrum mat. í kaffi,
tei, og ýmsum fíéiri drykkjum er
líka eitur. Engum dettur í hug að
kalla það því nafni. Misnotkun é
þessum drykkjum getur haft skað-
leg áhrif á heilsuna. Sama er að
segja um tóhak. Hver talar um að
útrýma þessu öllu? Um opium- og
kokain-nautn er ekki að tala hér.
Það er ekki nei'num lögum að
þakka, heldur því, að þessi efni
þekkjast ekki hér. Væru rnenn
koannir á að iðka þessar nautnir,
myndu lög um opiurn verða brotin
eins og hannlögin.
Bannmenn seg j a: Reynsla
annarstaðar sýnir, að bannlög hafa
gefist vel, eflt siðferðisþrek, sparn-
að, dregið úr lagabnotum og stutt
stórkostlega allskonar mennign.
E g s e g i: Bannlöig hafa 'hvergi
reynst vel. Við erum su þjeð, sem
mesta reynsluna hafum fengið, og
hefi eg þegar lítilsháttar sýnt
frara á hvernig sú reynsla er.
Lögin minka siðferðisþrekið, vegna
þess, að þau fjölga lagabrotum,
sem aftur kemur atf því, að lögin
ganga svo nærri einstaklingnum,
að, þó hann feginn vildi, getur
hann ekki látið vera að brjóta
þau. Sparnað auka þau ekki, því
tnenn eyða þeim mun meiru á öðr-
um sviðum í allskonar munaðar-
vörur og skemtanir. En eins og
ástandið er nú, þarf raunar ekki
að vera að tala um slíkt, því þeg-
ar eins mikið er drukkið og áður,
eyðast senni'lega eins rniklir pen-
ingar. Menninguua í landinu hafa
lögin ekki aukið á nokkum hátt,
heldur rýr't hana. Eg býst ekki við
að bannmenn kalli það aukna
anenningu að þjúðin kemst inn á
þá braut, að lítilsvirða löggjöf
sína, og neytir allra bragða til að
fara kringum lögin.
Bannmenn segja: Bann og
bindindi eru skilgetin böm sömu
hugsjónar. Bindindi er bannhug-
sjónin bundin við eiustaklinginn,
en bannlögm eru sú sama hugsjón
bundin við þjióðarheildina.
E g s e g i: Þetta er ö'fug skil-
greining, bara til þess að slá ryki
í augu fólks. Bindiudi er það, að
einstaklingurinn, eftir rólega yfir-
vegnn hefir ásett sér að' iáta eitt
öður annað, sem hann telur ,sér
skaðlegt, ógert. Hefir ásett sér t.
d. að neyta ekki víns eða tóbaks. j
Til þessa skuldbindur haun sig af
frjálsum vilja, annað hvort í fé-
lagi méð öðrum eð!a í kyrþey með
sjálfum sér. Slíkum mönnum þartf
ekki að banna að drekka vín eða
reykja tóbak, því þeir hatfa ásett
sér að igera hvorugt. — Bann er
það, að monnum er bannað að
gera eitthvað, sem þeir hafa sterka
tilhneigingu til, t. d. að drekka
vín. En þótt miönnum sé bannað
að gera eitthvað, eða neyta ein-
hvers, þá minkar ekki tillftieiging
þeirra til þess fyrir það. Ástilðan
or jöfn “ eftir sem áður, meðau
sinnið er hið sama.
Annar munurihn á banni og
bindindi er sá, að 'hægt er að
hanna alt og öllum, en þar með
er ekki 'fengin trygging fyrir því,
að það baim sé haldið, en eugan
er hægt að geru að bindindismanni
nema hans eigin skynsemi álíti
bindindið nauðsynlegt. Enn fremur
vil eg vekja athygli á því, að ein-
staklingurinn getur ekki verið
nema annað hvort bindindismaður
eða ekki bindindismaður. En þjóð-
iii getur verið hvorutveggja, vegna
þess, að hún er samsett af mörgum
emstaklingum, sem sumir eru bind
indismenn en aðrir drykkjumenn.
Meðan svo er, er hún tvískift, og
báðir aðiljar hafa jafnan rétt, sam
kvæmt stjóniíirskránni.
Aíf því, sem hér hefir verið sagt,
verður ályktun mín þessi: A8 bind-
indi er sjálfsákvörðun einstaklings
ins, en bann er árás á sjálfsákvörð
un manna.
Url
! Aklrei nokkru sinni hafa verið
framdir eins margir glæpir í Dan-
J mörku og um þessar mundir. Morð,
(innbrot, þjófnaðir, gripdeildir og
ofbeldisverk eru daglegir viðburð-
ir og meira að segja oft margir
stórglæpir framdir sama daginn
í Kaupmannahöfn. Yeldur tþað yfir
völdunum mikilla vandræða hve
mjög ólöghlýðni er að aukast þar
’ í landi, og hve spilling hverju
! nafni sem nefnist, er megn í land-
1 inu. —
I vetur komst upp um konu, er
Dagmar Overby nefnist, að hnn
'hafði myrt 11 ungbörn sem hún
'hafði tekið til fósturs gegn pen-
ingaborgun fyrir fram. Hún hefir
I nú verið dæmd til dauða, en síðan
: náðuð, því dauðadómar eru ekki
framkvæmdir í Danmörku.
Bankaþjónn í Landmandsbank-
auurn sveik bankann um 128 úús-
und krónur. Ættingjar haus, sem
voru ríkir, borguðu bankanum
féð — og sökudólgnum var slept.
Búðarmaður í skóbúð Hectors
| stal 1000 pörum af stígvélum
I smátt og smátt og var að því í
j hálft annað ár. Hann var í sam-
ráði við búðarmenn í stærstu versl-
ununum í Kaupmannahöfn. Höfðu
þeir myndað með sér félag og
! allir stolið. Við rannsókn kom í
ljós, að þeir voru 13 talsins þjóf-
arnir og höfðn stolið vörum alls
fyrir um % miljón krónur. — f
íbúðum fjögra þessara bófa var
öllu ríkmannlega komið fyrir, hús-
gögn af dýrustu gerð, málverk
mörg og gólfin þakin þykkum dýr
mætum austurlandadúkum. En alt
sem í íbúðunum var, var stolið.
Læknisdóttir ein á Lollandi
fæddi barn á laun og kæfði það
síðan. Hún var dæmd í 4 ára betr-
nnarluissvist.
Önnur stnlka kæfði nýfætt liarn
sitt í fjóshaugnum. Hún bíður nú
dóms.
Kona ein, sem skiliu var við
mann sinn, 'en trúlofuð var öðr-
um, átti 4 ára gamalt barn. Kær-
astinn viidi ekki taka að sér barn-
ið. Hún varpaði því í sjóinn við
Hellerup og’ druknaði barnið þar.
Hún var dæmd í 10 ára hegning-
arhússvist.
Maður nokkur, Westergaard að
nafni, var aðalbókari „Köbenhavns
Diskonto og Revisionsbank“. —
Hann var staddur á ferðalagi í
Svisslandi, er það komst upp, að
hann hafði svikið bankann um 875
þúsund krónur. Lögreglan símaði
til Sviss og lét taka hann fastan,
en haim lést nokkrum stundum
síðar.
— Það kemur varla sá dagur
fyrir, að ekki hafi blöðin fregnir
að flytja um svik, morð og þjófn-
aði.
-o~
Niöurjöínunarskráin
kemur út á mánudaginn kemur ki. II. Dug-
legir drengir óskast til að selja.
Isafoldarprentsmiðja hf.
smíðaðar og lekalausar, þar að auki
iniklu sterkari en venjulegar kjöt-«
tunnur.
pr. pro. Sláturfélag Suðurlands.
H. Thorarensen.
Vor og sumar 1920 hefir hér í verzl-
uninni verið selt. allmikið af saltkjöti
frá síðastliðnu hausti, alt metið og
saltað til útflutnings og frá þremur
kaupfélögum. Nú er okkur, áð gefnu
tilefni, ljúft að votta það, að kjöt
það, sem saltað hefir verið í eikar-
tunnur (frá Jóni beyki Jónssyni)
reyndist jafnán nokkru betra en úr
hinum venjulegu erlendu kjöttunnum.
það virt.ist liafa á sór fyrsta blóð-
pækilinn og halda sínum uppruna-
lega ilm og bragði.
Reykjavík 30. okt. 1920.
p. p. Kaupfélag Reykjavíkur
Jón Kjartansson.
T óbaksverslun
R. P. L e if I
selur
Rjól B. B. 8,50 bitann
Rullu 9,50 pr. V* kilo
Capstan cigarettur 0,75 pakkin»
Two GableB cigarett. 0,60 pakkinm
Prince of Wales 0,65 pakkinn.
SPORTFOT
mjög ódýr
nýkomið í
Irius otrsiun
Aðalstræti 9.
iini jBlmll
pað er talin dygð hverrar þjóðar
og einstaklinga, að styðja innlendan
iðnað yfirleitt. Og því er það líka
ódygð, að hnekkja honum eða gera
tilraun til þess að ósekju. Og sú
ódygð bit.nar ekki að eins á þeim,
sem reynt er að ófrægja, heldur á þjóð
inni í heild sinni; því að þar er ver-
ið að reyna að kyrkja framþróun
hennar í fæðingunni. —- Þeir menn,
er slíkt iðka, eru þjóð sinni harla
óþarfir.
Eins og kunnugt er, setti eg hér
á stofn beykisiðnaðar-verkstæði fyrir
nokkrum árum, og tel eg mér óhætt
að segja, að það hafi náð meiri þroska
en flest ef ekki öll önnur innlend
verkstæði sömu iðnar. Og tvímæla-
laust t.el eg viðgang þess því einu
að þakka, að smíðisgripir þess þóttu
yfirleitt góðir og reyndust vel.
Nú fvrir nokkru lögðust tveir ó-
valdir borgarar höfuðstaðarins á móti
mér og hafa þeir gert ítrekaðar til-
raunir til þess að hnekkja atvinnu
minni og ófrægja iðnað minn. Annar
fyrir þá sök eina, að eg neitaði hon-
um um að selja undir mínu nafni til
húsbænda hans nokkrar lélegar tunn-
ur, er hann hafði undir höndum og
vildi losna við. En hinn af enn lúa-
legri ástæðu, sem eg hans vegna vil
ekki skýra frá að svo stöddu. Nöfn
þessara manna nefni eg ekki heldur
í þetta sinn, en mun gera það síðar
og þá vægðarlaust skýra frá athæfi
þeirra gagnvart mér, ef þeir halda
uppteknum hætti.
Eg hefi í höndum fjölda vottorða
frá ýmsum mætum skiftavinum mín-
um um það, hvernig vörur þær hafa
reynst, sem unnar hafa verið á verk-
stæði mínu. Birti eg tvö þeirra hér,
sem sýnishorn, en velkomið er hverj-
um sem vill að sjá þau öll hjá mér:
Reykjavík 19. apríl 1919.
Eftir beiðpi vottast hér með að
-■áturfélag Suðurlands í Eeykjávík
hef'ir tvö undanfarin ár keypt kjöt-
lunnur, smíðaðar úr eik úr steinolíu-
fötum, af Jóni Jónssyni beyki hée í
bænum, ca. 3000 tunnur. Tunnur þess-
ar hafa reynst ágætlega, að þvi er
eg best veit, enda eru þær mjög vel
Eg læt þetta nægja að sinni, en
leyfi mér því til viðbótar að skírskota.
til allra hinna möigu skiftavina
minna, bæði hér í höfuðstaðnum • og
annarstaðar. Vænti eg þess, að þeir
— hver og einn dæmi eftir eigin
reynd, sem jafnan er ólýgnust; og
um leið og eg þakka þeim viðskiftin
á liðnum árum, treysti eg þvi, að þeir
láti ekki atvinnuróg óhlutvandra
manna spilla viðskiftunum framvegis.
Reykjavík, Klapparstíg 7,
26. apríl 1921.
Jón Jónsson, beyikir.
DAGBOK
□ EDDA 59214307 = 2
I. O. O. F. H. 10352 ekki.
„Stjörnufélagið“ heldur fund í dag
kl. 31/2 síðd. — Gestir.
KnattspyrnuféL Víkingur. Æfing
kl. 814 3. fl. og kl. 92. fl. á mánu-
daginn 2. maí. Æfing í 1. fl. á þriðjo-
daginn kl. 9.
Lúðrafélagið „Harpa“ spilar á Aust
urvelli í kvöld kl. 6, ef veður leyfir.
Togararnir. í gær: komu Gylfi með
90 tn. og Þorsteinn Ingólfsson með
um 100 tn. lifrar.
Sterling kom hingað í fyrrakvöld
um kl. 6. Meðal farþega voru Gísli
Lárusson framkvstj., Óskar Bjarna-
son verslm., Steindór Jóhannesson
verslm., Júlíus Guðmundsson kaupm.,
síra porsteinn Ástráðsson, Ragnar
Blöndal verslm., Viggo Björnsson
bankastj. og Sig. Jensson versl. o. fl.
Vélritunarkappmótið. pað er nú á-
kveðið að vélritunarkappmótið. verði
haldið 8. maí. Hafa þegar gefið sig
fram eins margir þátttakendur eins
og í hittifyrra, en nefndin tekur enn
á móti nýjum þátttakéndum til 5.
maí og er því sennilegt að ýmsir
bætist í hópinn enn. Kappmótið verð-
ur haldið á aðalskrifstofu Nathan og
Olsen og auk þriggja peningaverð-
lanua verður þeim hlutskarpasta gef-
in ein Imperial-ritvél ef verðlaunin
eru unnin á hana. Væntanlega bætast
enn nýir þátttakendur í hópinn, því
flestum vélriturum ætti að vera það
metnaðarmál að keppa.
Frá I. mai
óskast kvenmaður til að hald*
hreinum skrifstofum mínum.
O. J. Havsteen.
Riffill
Magasin riffiil til sölu. A. v. á.
Við útvegum peningaskápa
af öllum stœrðum ogjjárnhurð-
ir frá firmanu S. J. Arnheim,
Berlín, sem er stærsta verzlunar-
hús Þýskalands í þessari gretn.
Járnhurðir og skápar frá þessn
firma hafa almenna viðurkenn-
ingu fyrir traustleika og vandað
smíði.
Þórður Sveinsson & Co.
Reykjavík.
Hrainar UnfMukmr ávmlt kaypSm
hosta vmtt i fnfnlituimu^nnji
Á sjötugsafmæli Indriða skálds ffiin-
arssonar í gær, bárust honum fjðl-
margar heillaóskir víðsvegar að. Fyrir
hönd ýmsra borgara bæjarins færðn
Einar H. Kvaran, Pétur Halldórsson,
Alexander Jóhannesson og Guðmundhv
Finnbogason skáldinu álitlega ptaa-
ingagjöf í vönduðu leðurveski, — þvf
nú er gull ekki á boðstólum — «g
afhenti Einar Kvaran gjöfina mcð
nokkrum vinarorðum. En sjálfur gaf
sjötuga skáldið síunga þjóðinni þá
g.jiif, til minningar um daginn, atm
ekki verður til gulls metin: Dansiu
í Hruna.
Húsrannsókn hafði farið fram Bir í
bænum í fyrrakvöld hja mönnum nb
lögreglan hafði grunað um að selja
og brugga áfengi. Höfðu fnndist brugg
unaráhöld og áfengistunnur við leii-
ina.
Próf eru nú byrjuð í Kvennaskdl-
anum.
-A