Vísir - 08.11.1923, Blaðsíða 3
VlSíK
Bjarnargreifaroir^
Kvenhatarmn og
8ú þriöja
Sást í T.arnargötu 6 og bóka-
verslonum.
— -...... f- --
&ata þótt eg færi nú a'S ávíta þau.
En einhverntíma rekur vonandi
afe því, aS við eignumst tímarit
sem stjórnaö veröi í líkum anda
©g t. d. K r i n g s j a a meöan H.
Tambs Lyche stýröi henni, og
fiegar þaö er oröiö, veröum viö
ekki lengur jafn einangraöir and-
iega eins og nú erum viö.
Sn. J,
Málverkasýnmg
Ásgeirs Bjamþórssonar.
Ásgeir er enn þá kornungur;
íúmlega tvítugur; yngstur list-
snálara vorra. Hann málar af innri
jþörf; er ástríðufullur og óstýrilát-
ur, íslenskur og heitur í anda. —
Hann reynir margt; fer stööugt
fram og stefnir rétt. Ha'nn er má-
ske énn þá of bjartsýnh, eöa er jjaö
dirfska? Ilefir hann rétt fyrir sér
og missýnist okkur hinum, sem
sýnist heimurinn vera grár? Grá-
an lit jjekkir Ásgeir ekki.
Fjöllin hans eru blá, há og hreiii
eöa úfin, svört og jiungbúin. —
Besta myndin hahs er „Öræfi“.
Sterklega sköpuð, djarfir drættir:
miskunnarjausir litir; vilt íslensk
auön. Þekki eg fáar íslenskarí
myndir. — Þessi eina mynd marg-
feorgar heimsóknina. — Margar
fagrar myndir eru þar frá Suður-
Þýskalandi; akrar, skógar og Alp-
arnir. Nokkrar myndir úr Borgar-
firðinum. „Eiríksjökull", vatns-
Ktamynd; mjög fögur, hrein og
íétt. ,',Haust“, islenskur birkiskóg-
ur i haustklæöum.
Ásgeir ætti að iöka vatnsliti
meir en hann gerir.
Einkennilegasta myndin er pas-
teil-krítarteikning; andlitsmynd
af honum sjálfum; heitir .hún; „í
Ijósaskiftum". Situr hann við arin.
glæöur;- heitur, eirrauöur vinstri
vanginn; blásvartur skuggi skygg-
ir á hægri kinn. Hefir málverka-
safn ríkisins keypt þessa mynd;
var jiaö vel farið. Mundi margur
unna því, að eignast „Öræfi“ líka.
Ásgeir nálgast sjálfan sig með
feverjum pensildrætti. Hann á vafa-
laust rnikla framtíð fyrir sér, ef
brauöstríö og basl drepur hann
ekki, eins og svo marga aöra
„landa“, sem horföu hátt og trúðu
á sigur hugsjónanna.
Eg veit, aö enginn, sem ann ís-
Ienskum listum situr nú heima, og
eg vona, að þegar Ásgeir lokar
sýúingu sinni veröi þar engin
3Hynd óseld.
Pictor.
r \ Mikið úrval af kápu- og kjólatauum hefur
HVÍTA BÚDIN
Talsími 800. Bankastræli 14. 1J
VeðriÖ í morgun.
í Reykjavík i st., Vest-
mannaeyjum -f- 2, ísafiröi 4,
Akureyri — 6, Seyðisf. 3, Grinda-
vík 2, Stykkish. -r- 3, Gríms-
stööum -r- 3, Þórshöfn í Færeyj-
um 1, Leirvík 5, Jan Mayen -t- 1
st. Loftvog lægst (743) yfir Fær-
eyjum. Norðlæg átt, allhvöss á
Suðurlandi. Florfur: Norðlæg átt.
Kirkjuhlj ómleikar
Páls ísólfssonar verða endur-
teknir. í dómkirkjunni í kveld kl.
7J4. Aðgöngumiðar, með niöur-
settu veröi, seldir í bókabúðunum.
Til Englands
fóru í gær: Skúli fógeti, Geir
og Egil! Skallagrimsson.
Fundin taska.
í gær fanst sjórekin taska sú
sem Guðjón heitinn Finnsson
haföi meöferöis, þegar síöast
spurðist til hans. Hún var sjórek-
in við vesturgarðinn, skamt frá
örfirisey. í henni voru sparisjóðs-
bækur og ýmislegt fleira, sem í
henni átti að vera. Enn er verið aö
9
lcita að líkinu, en þaö hefir ekki
fundist.
Háskólafræ'ðsla.
Vegna veikinda Dr. Kort Kort-
sen, farast fyrirlestrar hans fyr-
ir í dag og á morgun.
Germanía,
félag þýskumælandi manna,
heldur skemtun í Iðnaðarmanna-
húsinu kl. c) á laugardagskveldið.
Leiknir verða tveir þýskir gaman-
leikar, sungnar þýskar gamanvís-
ur um Reykjavík og dansað síö-
ast. Sjá augl. í blaðinu í dag.
U. M. F. R. .
í kvöld íþróttaæfing kl. 7j4-
Félagsfundur kl. 9.
Knattspyrnufél. Rvíkur.
Félagar, athugiö auglýsingu fé-
lagsins i blaðinu í dag.
„Hellismenn".
Athygli skal vakin á því, að
leikurinn hefst kl. 8 annað kvöld,
en ekki kl. 8)4 eins og auglýst var.
Verslunarmannafél. Rvíkur
heldur skemtifund í kvöld kl.
Sj4 í Kaupþingssalnum.
Eyjólfur Jóhannsson
hefir opnað rakarastofu í Banka-
stræti 12.
Knattspyrnufél. Rvíkur.
Fimleikaæfingar félagsins veröa í vetur í fimleikahúsi barna-
skólans á mánudags og föstudagskvöldum.
Tvær æfingar verða á kvöldi. Sú fyrri er frá kl. 8—9. Þá maetí
jæir félagar, sem eru 16 ára og yngri. Sú síðari er frá kl. 9—10.
Þá mæti jieir, sem eru 17 ára og eldri.
Æfingar byrja á morgun (föstudag). Þá vevða jiátttakendur
skrásettir og eiga því að mæta hálftíma fyrír æfingatíma (kl. 7)4
og 8y2).
Heitt og kalt baö fylgir hverri æfingu. (Munið eftir handklæði)
Þeir sem geta mæti í búningi félagsins.
S t j órnin.
Lakkskór,
dans- og samkvæmisskór, fyrir karlmenn og kvenfólk, nýkomnir.
Hvannbergsbræðnr.
Skóhlífar
fyrir karla og konur; i fjölbreyttu úrvaii,
bæði hvað gæði og lag snertir.
Smábarnagúmmístígvél
( tvær góðar tegundir nýkomnar.
HVANNBERGSBRÆÐUR.
Ha t dhægt
fyrir skrifstofumenn og aðra, sem
mikið þurfa að s k r i f a og
reikna, eru pappírsrenn:
ingar.
100 pappírsrenningar
kosta 2 5 aura. Lengdin er 48)4
cm. Breiddin g% cm.
Fást á afgreiðslu Vísis.
Kom með íslandi;
Vínber
Epli
Appelsínur
Bananar
Cítrónur
Laukur
Consum & Husholdnings
Chocolade, mjög ódýrt.
Melis hg. pr. 14 kg. 0,75.
Melis st. pr. yz kg. 0.70.
Vörur sendar heim.
Halldór R. Gunnarssou
(áður versl. G. Olsen).
Sími 1318. — Aðalstræti 6.
Confektkassar
Besta tækifærísgjalír.
mikið úrval.
Landstjaruau.
Munið eftir
Fimtnðags-
ntsölnnni.
Y0RDHÖSIÐ.
mmSKSsnmm
í100 ár
hefir „DOWS“ verið viður-
kent hvervetna hið ágætasta
portvín, sem völ er á. —
Margar tegundir hafa komið
á heimsmarkaðinn síðan
„Dows“ kom fyrst fram, en
allar hafa þær orðið að þoka
fyrir smekk hinna vandlátu,
nema
„D0WS“ portvin.
Hvergi i ffænum
er eins ódýrt að fá saumaða kjóla,
kápur, peysuföt, peysufatakápur,
allskonar barnafatnað, eins og í
húsinu „VON“.
Sími 448.