Alþýðublaðið - 08.11.1956, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.11.1956, Blaðsíða 1
Afmælikveðjur til H. C. Hansens fimmtugs, sjá„ 5. s. „Stefnuyfirlýsing H. K. L.‘S sjá rammagrein á 8. s. XXXVII. árg. Fimmtudagur 8. nóvember 1956 256. tbl. s | Alþýðusambandið faidi ófram- að hafa 5 mín- ICFTU óskaði eftir því, að ísl. verka- lýður leggði niður vinnu í 5 min. í samúðarskyni við Ungverja. ALÞÝÐUSAMBANDI ÍSLANDS barst í gær skeyti frá A|þjóðasambandi frjálsra yT’kalýðsfélaga, ICFTU, um að gangast .fyrir því, að íslenzkur verkalýður hefði fimm mínútna vinnustöðvun í dag í mótmælaskyni við árás Sovétríkjanna á Ungverjaland og til þess að votta Ungverjum samúð í baráttu þeirra fyrir frelsi sínu. Alþýðublaðið átti í gær tal við Hannibal Valdimars- son, forseta Alþýðusambands íslands. Kvað hann skeytið hafa borizt of seint til þess að unnt yrði að skipuleggja aðgerðir. Vinnuhléið hefði átt að vera fyrir hádegi í morgun, en skeytið ekki borizt fyrr en síðari hluta dags í gær. Tilgreindi hann þá ástæðu, að ekki hefði verið unnt að kalla saman miðstjórnarfund í tæka tíð til þess að afgreiða málið. Öðrum tókst þó framkvæmdin. Stjórn Kadars afþakkar aðsíoð vesturvelda en þiggur rússneska Sjálíboðaliðsiveii siofnuð í Mílanó. VÍN, miðvikudag. (NTB-AFP). — Hermenn í ung- verskum einkennisbúningum, en með rauða stjörnu á búningum, komu skyndilega í ljós á nokkrum landa- mærastöðvum við landamæri Austurríkis í dag, en aðrar landamærastöðvar voru þó enn í höndum ung- verskra frelsisunnenda. Nokkra kílómetra frá landa- mærunum fara skriðdrekar Rússa reglulega um vegi. Vínarblaðið Weltpresse skýrir frá því, að rússneskar hersveitir hafi tekið sér stöðu meðfram járnbrautalínunni, sem tengir Komaron og Szom- bathely í Vestur-Ungverjalandi. AFÞAKKA AÐSTOÐ. I>tvarpssendingú Budapest útvarpsins í dag vísaði hin nýja ungverska kommúnista stjórn á bug tilboði vesturveld- anna um hjálp, en þakkaði hjálp þá, sem Sovétríkin hefðu Fólk víða um lönd léf í Ijós andúð sína á at ferlS Rússa í Ungverjal. á bylfingardaginn Kveikt í skrifstofum kommúnista í París. Kransar lagðir á gröf óþekkta her- mannsins. Þingmenn mættir. Sendu mat Rússanna til Ungverja- landshjálparinnar. PARÍS og KAUPMANNAHÖFN, miðvikudag. — Mótmæla- Samkomur og almennar fjarvistir manna frá hátíðahöldum BúsSa á Vesturlöndum vegna byltingardagsins gaf í dag ljós- lega til kynna hver hugur manna er gagnvart Rússum fyrir aðfalúr þeirra í Ungverjalandi. í París kveiktu fjöldagöngu- menn í aðalskrifstofu kommúnistaflokksins, en aðrir lögðu kransa á gröf óþekkta hemannsins í Sigurboganum í minningu fallinna manna i frelsisbaráttu Ungverjalands. í Kaupmanna- höfn kom til ákafra mótmæla og gestum rússneska sendiherr- ans var tekið með skammahrópum af mannfjöldanum fyrir utan. (Með hrópum, eins og „Lengi lifi frjálst Ungverjaland11, „Sovét-morðingjar“, „Niður með kommúnistaflokkinn“ og „Frelsið Budapest“, gengu 10000 Parísarbúar niður Champs Élysée síðari hluta dags í dag. Fjöldi kransa var lagður á gröf óþekkta hermanns ins í Sigurboganum og 300 þingmenn sungu „La Marseilla ise“, þjóðsöng Frakka, er þeir gengu framhjá gröfinni. Lögreglumenn stóðu vörð við kommúnistablaðið Human- ité, til þess að koma í veg fyr ir endurteknar árásir á þygg- inguna, en mótmælafundar- menn af Champs Élysée tóku stefnu á aðalskrifstofu komm- únistaflokksins. Hófust strax átök við kommúnista, sem stóðu vörð þar. Varðmennirnir voru ofurliði bornir og fóru menn síðan upp á aðra hæð, köstuðu öl'lu lauslegu út um.gluggann, áður ep þeir kveiktu 1 hús- inu. Þúsundir manna höfðu safn azt saman utan við sendiráð Sovétríkjanna í Kaupmanna- höfn og höfðu meðferðir 10—12 ungverska fána. Þrátt fyrir fjölda lögreglumanna, reynd- ist ómögulegt að halda mann- fjöldanum í skefjum og rudd- ust menn svo langt, að þeim tókst að brjóta glugga í sendi- ráðinu. Síðar safnaðist ævareið ur mannfjöldi saman við skrif stofu kommúnistablaðsins Land og Folk og braut þar enn fremur nokkra glugga. í Róm héldu stúdentar mót- mælafund þriðja daginn í röð óg afhentu forsætisráðherran- um, utanríkisráðhérranum og forsetanum mótmælaskjöL í Brússel ákvað bakararnir, sem pantaður hafði verið hjá matur í móttöku rússnesku sendiráðsins, að senda matinn heldur til Ungverjalandssöfn- unarinnar. í Luxemburg hélt forsætis- ráðherrann, Joseph Bach, út- varpsræðu og ávítaði þó mót- mælafundamerín, sem kveiktu í rússneska sendiráðinu í gær. Allir útifundir voru bannaðir í dag. Af NATO-löndunum sendu Danir og íslendingar einir dipló matíska fulltrúa til göngunnar á Rauða torginu. Frétzt hefur, að hérumbil algjört „boykott“ hafi verið á hátíðahöldum Rússa vegna byltingardagsins í London, París, Haag, Brussel, Bonn og Kaupmannahöfn. í Helsingfors var 500 manna móttaka með Kekkonen, for- Framhald á 2. siðu. boðið. „Stolt vort kemur í veg fyrir að taka á móti hjálp frá hinum kapítalísku ríkjum“, sagði í tilkynningunni. MATUR, LYF OG KLÆÐN- AÐUR HLEÐST UPP. Geisilegt magn af lyfjum, mat og klæðnaði hleðst upp í aðalstöðvum Rauða krossins í Austurríki, sem árangur söfn- unar fyrir ungversku þjóðina og hina um 13.000 ungversku flótta menn, sem nú dvelja í Austur- ríki. SJÁLFBOÐASVEITIR STOFNAÐAR. í dag var skýrt frá því í Mil- ano, að stúdentafélög borgarinn ar hefðu með stuðningi verka- manna og embættismanna myndað fyrstu deild sjálfboða liða, sem bjóðast til að koma ungverskum frelsisúnnendum til hjálpar. Stúdentarnir hafa hafa sett upp áróðursspjöld um allan bæinn, þar sem unglingar eru hvattir til að stofna aðrar sjálfboðasveitir, Æskulýðsfélög margra stjórnmálaflokka hafa hafið söfnun til kaupa á vopn- um hana herdeildum þessum. Sjálfboðaliðarnir hafa beðið um að vera sendir til Ungverja lands eins fljótt og auðið sé. ÞJÓÐVERJAR TAKA VIÐ 3000 FLÓTTAMÖNNUM. Vestur-þýzka fréttastofan DPA skýrði frá því í dag, að vestur-þýzka stjórnin hefði á kveðið að gera á að gizka 3000 ungverskum flóttamönnum kleift að setjast að í Þýzka- landi. Mun stjórnin nú semja við austurrísku stjórnina um formsatriði viðvíkjandi flutn- ingum á flóttamönnunum. BRETAR TAKA VIÐ 2500. Bretar hafa lýst sig fúsa til að taka við 2500 ungverskum flóttamönnum. Var það til- kynnt í efri málstofunni í dag. Gaf Reading lávarður þær upp lýsingar í deildinni frá utanrík isráðuneytinu, að óbreyttir borg arar í Ungverjalandi hafi orðið fyrir ógurlegu tjóni í bardög- unum síðustu daga. Útgöngu- bann er allan daginn, og hver, sem sést á götum úti, á það á hættu, að rússneskir hermenn skjóti hann. Að því er lávarð- urinn vissi bezt hafði rússneska stjórnin enn ekki svarað álykt- un allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um stöðvun aðgerða af hálfu Rússa í Ungverjalandi og leyfi fyrir eftirlitsmenn frá Framhald á 7. síðu. Yoltið ungverskri þjóð samúð og hæftið vinnu kl. 11-11.05 ALÞJÓÐASAMBAND frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU) hefur' sent áskorun til allra verkálýðssam* banda innan vébanda sinna um að gangast fyrir fimm mínútna vinnustöðvun í dag til þess að votta ung- versku þjóðinni samúð sína á þann hátt og um leið mótmæla ofbeldisárás Rússa á Ungverjáland. Stjórnir neðantaldra stéttarsamtaka eru þess full- vissar að meginhluti íslenzku þjóðarinnar er sama sinnis og stjórn alþjóðasambandsins, og skorar því á félagsmenn sína og alla aðra launþega að leggja nið- ur vinnu í dag frá klukkan 11 til 11,05 f. h. Sjómannafélag Reykjavíkur. Hið íslenzka prentarafélag. Verkakvennafélagið Framsókn. Múrarafélag Reykjavíkur. Félag íslenzkra rafvirkja. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Verzlunarmannafélag Reykja- víkur beinir því ennfremur vinsamlega til félagsmanna, að þeir hafi vinnustöðvutt eins og getið er um að ofan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.